Vill efla löggæsluna og horfa meira til dróna og gervigreindar Nýr ríkislögreglustjóri segir að efla þurfi löggæsluna á næstu árum og nýta betur tækninýjungar á borð við dróna og gervigreind. Halla Bergþóra Björnsdóttir, sem tekur við embættinu mánudaginn 20. apríl, segir fyrstu vikurnar fara í að hitta fólkið, fara yfir verkefnin og meta hvar þurfi helst að styrkja starfsemina. 16.4.2026 18:24
Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu Samtök verslunar og þjónustu styðja tímabundna lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti en telja að ríkisstjórnin sé um leið að setja upp óþarft eftirlitslag ofan á kerfi sem sé þegar til staðar. Framkvæmdastjóri samtakanna segir þetta bera með sér vantraust á olíufélögin, kasta rýrð á þau að ósekju og opna á verðstýringu sem reynslan sýni að geti farið illa. 15.4.2026 23:31
Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Lögregla hald á um tug lítra af fíkniefnum í vökvaformi um borð í Dettifossi, gámaflutningaskipi Eimskips, á mánudag samkvæmt heimildum fréttastofu. 15.4.2026 18:38
Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Daði Kristjánsson hjá Visku segir sláandi að ný atvinnustefna ríkisstjórnarinnar til næstu tíu ára fjalli svo lítið um gervigreind. Að hans mati er verið að vanmeta tækni sem sé þegar farin að breyta störfum og geti á fáum árum haft afgerandi áhrif á hagvöxt, vinnumarkað og samfélagið allt. 14.4.2026 21:00
Bílastæðamálin fæli fólk frá miðborginni Umsvifamiklir veitingamenn í miðborg Reykjavíkur segja núverandi fyrirkomulag bílastæðamála gera fólki erfiðara fyrir að sækja miðbæinn og grafa undan rekstri á svæðinu. Þeir kalla eftir því að hætt verði að rukka fyrir bílastæði á kvöldin og um helgar og segja að ef stæðum sé lokað verði það að skila einhverju sem bæti miðborgina. 9.4.2026 19:31
Á brattann að sækja fyrir aðildarsinna Nýjustu kannanir benda til þess að þeir sem vilja halda áfram aðildarviðræðum við Evrópusambandið standi frammi fyrir erfiðu verkefni. Eiríkur Bergmann stjórnmálafræðingur segir þó ekki hægt að tengja það beint við vaxandi óánægju með ríkisstjórnina. 8.4.2026 12:07
Hvenær verður hlaðvarp að fjölmiðli? Hvenær hættir hlaðvarp að vera bara hlaðvarp og verður fjölmiðill? Hvenær er maður orðinn eitthvað meira en bara manneskja með hljóðnema, sterkar skoðanir og fasta útgáfu? Og hver á eiginlega að draga þá línu? 8.4.2026 07:03
Fyrstu merkin um kostnaðinn við stjórnarsetuna Ólafur Þ. Harðarson stjórnmálafræðingur segir ekkert óvænt við að óánægja með ríkisstjórnina mælist nú í fyrsta sinn meiri en ánægja frá því hún var mynduð. Hann segir slíka þróun hafa einkennt flestar ríkisstjórnir frá hruni, þó núverandi stjórn hafi að hans mati haldið velli betur en margar aðrar á fyrsta einu og hálfa ári sínu. 7.4.2026 15:43
Furðubandið sem tryllti netið Það hefur verið erfitt að komast hjá Angine de Poitrine á netinu undanfarið. Myndband af sveitinni í KEXP-upptöku hefur gengið manna á milli, áhorfið hlaupið á milljónum og sveitin orðin að einhvers konar fyrirbæri. 7.4.2026 14:16
Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Ráðast þarf í breytingar á íslenska lífeyriskerfinu til að skapa varanlegar forsendur fyrir lægri vöxtum á íbúðalánum, að mati Benedikts Gíslasonar, bankastjóra Arion banka. Í aðsendri grein á Innherja heldur hann því fram að núverandi fyrirkomulag lífeyriskerfisins, þar sem verðtrygging og föst raunávöxtunarforsenda séu í lykilhlutverki, haldi uppi hærra vaxtastigi en ella og bitni sérstaklega á ungu fólki á húsnæðismarkaði. 1.4.2026 13:26