Dæmdur fyrir ofbeldisfullt rán en ekki „fyllerísslagsmál“ Heimildin greinir frá því að samkvæmt dómi yfir Kristjáni Einari Sigurbjörnssyni, oftast þekktum sem Kleina, hafi hann ekki gerst sekur um „fyllerísslagsmál“ líkt og hann hafi haldið fram, heldur ofbeldisfullt rán. Þá hafi honum ekki verið sleppt eftir að fangelsisyfirvöldum þar í landi var mútað heldur þegar hann játaði aðild sína að umræddum ránum. 21.4.2023 12:59
Gísli hættir og Karl Óttar tekur við Karl Óttar Einarsson mun um mánaðamótin taka við af Gísla Páli Pálssyni sem forstjóra Grundarheimilanna. Gísli mun þó ekki kveðja heimilin þar sem hann hefur verið ráðinn í hlutastarf sem stjórnarformaður Grundar. 21.4.2023 11:15
Wilson Skaw komið á flot Flutningaskipinu Wilson Skaw var komið á flot á tíunda tímanum í morgun. Varðskipið Freyja fikrar sig nú hægt áfram með skipið en nokkuð er um blindsker á svæðinu. 21.4.2023 10:21
Tók tveggja ára hlé og missti af hlutverkum í fimm stórmyndum Kanadíska leikkonan Rachel McAdams ákvað að flytja aftur heim og taka sér tveggja ára hlé frá leiklistinni árið 2006. Á þessu tveggja ára tímabili var henni boðið hlutverk í fimm kvikmyndum sem enduðu á því að verða gríðarlega vinsælar. 21.4.2023 09:25
Tvær klappstýrur skotnar eftir að hafa sest upp í vitlausan bíl Tvær klappstýrur voru skotnar af manni eftir að önnur þeirra settist óvart upp í bílinn hans. Var hann handtekinn og hefur verið kærður af lögreglu. 21.4.2023 08:37
Fræga fólkið ekki lengur auðkennt á Twitter Einungis þeir sem eru áskrifendur að Twitter Blue eru nú með bláa staðfestingarmerkið merkið á samfélagsmiðlinum. Í gær misstu stærstu stjörnur heims, til að mynda Cristiano Ronaldo, Justin Bieber og Kim Kardashian merkið sitt. 21.4.2023 07:38
Allt að þrettán stiga hiti Hiti gæti náð allt að þrettán stigum í dag. Það er annað uppi á teningnum hjá íbúum á Norðurlandi en þar verður hiti í kringum frostmark í dag. Vindur verður norðan- og norðaustanátt fimm til þrettán metrar á sekúndu. 21.4.2023 07:19
Milljarðatjón ár hvert fyrir birgja og neytendur Kona sem flytur inn og framleiðir lífrænar vörur hefur tapað þrjú hundruð þúsund krónum á því að rekstraraðili verslunarinnar Frú Lauga er farinn í gjaldþrot. Hún gagnrýnir framkvæmd og regluverk í kringum gjaldþrot verslana og segir neytendur tapa milljörðum á ári vegna þeirra. 20.4.2023 15:36
Matthew McConaughey og Woody Harrelson gætu verið bræður Leikararnir Matthew McConaughey og Woody Harrelson gætu verið bræður að eigin sögn. Möguleiki er á að leikararnir eigi sama föður. Harrelson hefur nefnt að hann vilji fara í DNA-próf en málið er ögn flóknara fyrir McConaughey. 20.4.2023 12:36
Sprengdu Starship eftir bilun í aðskilnaðarbúnaði Fyrirtækið SpaceX mun reyna aftur í dag að koma stærstu eldflaug sögunnar út í geim. Stefnt er að því að skjóta flauginni klukkan hálf tvö í dag. 20.4.2023 11:09