Leggja gervigras í Hljómskálagarðinum Framkvæmdir við að byggja upp viðburðarsvæðið í Hljómskálagarðinum hefjast á næstu dögum. Meðal þess sem verður gert er að leggja gervigras á völlinn. Búist er við því að framkvæmdum verði lokið fyrir menningarnótt. 18.4.2023 10:57
Fjórtán prósent grunnskólanema með erlent móðurmál Fjórtán prósent nemenda í grunnskólum landsins hafa erlent móðurmál. Fjölgar þeim þó nokkuð milli ára. Algengasta erlenda móðurmálið er pólska. Aldrei hafa verið fleiri nemendur í skyldunámi á Íslandi. 18.4.2023 09:20
4,2 stiga skjálfti vestur af Grímsey Stór jarðskjálfti varð tæplega 35 kílómetra vestur af Grímsey klukkan átta í morgun. Skjálftinn varð á tíu kílómetra dýpi og hafa þó nokkrir eftirskjálftar yfir tveimur að stærð mælst. 18.4.2023 09:13
Tork gaur: Kraftmikill fjölskyldujepplingur Bílaþættirnir Tork gaur halda áfram á Vísi í dag. Í sjötta þætti annarrar þáttaraðar er Porsche Cayenne Coupe tekinn fyrir. 18.4.2023 07:01
Lagahöfundur Snjókorn falla er látinn Skoski lagahöfundurinn Bob Heatlie er látinn, 76 ára að aldri. Hann samdi fjölda laga og stefja fyrir hina ýmsu tónlistarmenn og sjónvarpsþætti. 17.4.2023 16:59
Íbúar á Austurlandi duglegri við að ganga í hjúskap Alls gengu 4.416 einstaklingar í hjúskap hér á landi árið 2022. 39,2 prósent þeirra gerðu það hjá Þjóðkirkjunni. Íbúar á Austurlandi voru líklegri en aðrir til að ganga í hjúskap á árinu. Íbúar á höfuðborgarsvæðinu voru duglegri að ganga frá lögskilnaði en aðrir. 17.4.2023 16:23
Friðrik hættir sem kaupfélagsstjóri Friðrik Mar Guðmundsson hefur ákveðið að láta af störfum sem kaupfélagsstjóri Kaupfélags Fáskrúðsfirðinga og framkvæmdastjóri Loðnuvinnslunnar á Fáskrúðsfirði. Hann hefur starfað hjá félögunum undanfarin nítján ár. 17.4.2023 15:37
Óperudraugurinn hefur sungið sitt síðasta Sýningin um Óperudrauginn var sýnd í síðasta sinn á Broadway í gær. Óperan var sýnd í 35 ár í leikhúsum Broadway og enduðu sýningarnar á að vera tæplega fjórtán þúsund talsins. 17.4.2023 14:51
„Allt að 70% afsláttur“ reyndist iðulega einungis fimm prósent Dekkja- og bílaþjónustan ehf., rekstraraðili dekk1.is, hefur verið sektað vegna viðskiptahátta sinna. Auglýstur var allt að 70 prósent afsláttur í „Cyberviku“ en einungis var hægt að finna dekk á mun lægri afslætti, iðulega einungis fimm prósenta. Þarf félagið að greiða 200 þúsund króna sekt. 17.4.2023 11:53
Gervigreind framleiddi lag með röddum Drake og The Weeknd Gervigreind framleiddi á dögunum lag með röddum tónlistarmannanna Drake og The Weeknd. Drake sjálfur vera kominn með nóg af gervigreindinni en útgáfufyrirtæki þeirra beggja er sagt hafa óskað eftir því að lagið yrði fjarlægt af öllum streymisveitum. 17.4.2023 11:25