Útför Björgvins opin almenningi Útför tónlistarmannsins Björgvins Halldórssonar verður opin almenningi og fer hún fram frá Hallgrímskirkju þriðjudaginn 28. apríl klukkan 15. Björgvin lést þann 9. apríl og hefði orðið 75 ára í dag. 16.4.2026 19:26
Flúði heimili sitt eftir að hafa hótað stofnun Lögreglu var í dag tilkynnt um yfirstandandi innbrot í íbúð í miðborg Reykjavíkur. Þegar hún fór á vettvang kom í ljós að um var að ræða iðnaðarmann sem var að gera við hurð íbúðarinnar. 16.4.2026 17:59
Vara dýraeigendur við: Gruna að eitrað hafi verið fyrir tveimur dýrum Tvö gæludýr hafa greinst með einkenni frostlagareitrunar á þremur dögum eftir að hafa étið pylsubita sem fundust á jörðinni við Hvamm í Kjós. Dýralæknar vara gæludýraeigendur við hættunni og eru málin til skoðunar hjá MAST. 13.4.2026 22:14
Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Héraðssaksóknari hefur ákært félögin Eimskipafélag Íslands hf. og Eimskip Ísland ehf. vegna sölu á tveimur skipum sem Umhverfisstofnun kærði til héraðssaksóknara árið 2020. Skipaflutningafélagið var kært vegna meintra brota á lögum um meðhöndlun úrgangs. 13.4.2026 19:26
Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Maður sem var hífður upp úr Ölfusá á laugardag er látinn. Lögreglan á Suðurlandi fer með rannsókn málsins en tilkynning barst um mann í ánni um fjögurleytið á laugardag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögregluembættinu sem hyggst ekki veita frekari upplýsingar um málið. 13.4.2026 18:27
Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Hópur lögreglumanna tók þátt í aðgerð í Skútuvogi í Reykjavík nú síðdegis. Ásmundur Rúnar Gylfason, stöðvarstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir að ökumanni hafi verið veitt eftirför þegar hann sinnti ekki stöðvunarskyldu. Hann hafi að lokum verið handtekinn í Skútuvogi. 13.4.2026 16:06
„Þetta er erfiður mánudagur“ Bilun kom upp í vélbúnaði farþegaferjunnar Herjólfs og siglir skipið nú á takmörkuðu afli. Siglingartími hefur lengst vegna þessa. Ferðir eru enn á áætlun þrátt fyrir bilunina og siglir Herjólfur til Þorlákshafnar í stað Landeyjarhafnar vegna aðstæðna í höfninni. 13.4.2026 15:37
Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Hversu vel fylgdist þú með í vikunni sem leið? Spreyttu þig á Krakkatíunni! Í henni beinum við kastljósinu bæði að því sem gerðist síðustu daga og öðrum spurningum úr ýmsum áttum. 12.4.2026 06:02
Komið að ögurstundu Leiðtogar stærstu stjórnmálaflokka Ungverjalands héldu sína síðustu kosningafundi á laugardagskvöld á lokametrum langrar baráttu sem endar með kosningum á sunnudag. Viktor Orbán hefur setið á forsætisráðherrastóli í sextán ár og stendur nú frammi fyrir sinni stærstu pólitísku prófraun til þessa þegar mið-hægriflokkurinn Tisza mælist með tveggja stafa forskot í flestum óháðum skoðanakönnunum. 12.4.2026 00:06
Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Níu ára gömlum dreng var bjargað á dögunum eftir að hafa verið innilokaður í sendibíl föður síns í austurhluta Frakklands frá árinu 2024, að sögn saksóknara á svæðinu. Barnið hefur verið lagt inn á sjúkrahús og er faðir þess í haldi lögreglu. 11.4.2026 22:44