Baldvin mun leiða Evrópuútgerð Samherja Baldvin Þorsteinsson mun taka við stjórnartaumunum hjá Deutsche Fischfang Union, dótturfélagi Samherja í Þýskalandi og verða í forsvari fyrir útgerðarstarfsemi samstæðunnar í Evrópu. Hann tekur við af Haraldi Grétarssyni sem lætur af störfum í apríl. 5.1.2021 16:44
Lífeyrissjóðir höfnuðu yfirtökutilboði í Skeljung Lífeyrissjóðirnir Frjálsi, Birta, Festa, Stapi og Lífsverk og Gildi hafa hafnað yfirtökutilboði fjárfestahópsins Strengs ehf. á Skeljungi. Lífeyrissjóðirnir eru stærstu eigendur félagsins og fara alls með um 37% hlut. 5.1.2021 14:20
137 misstu vinnuna í þremur hópuppsögnum í desember Þrjár tilkynningar um hópuppsagnir bárust Vinnumálastofnun í desember þar sem 137 starfsmönnum var sagt upp störfum. Þar af voru 94 starfsmenn í menningar, íþrótta og tómstundastarfsemi, 32 í iðnaði og 11 í flutningastarfsemi. Uppsagnirnar koma allar til framkvæmda í apríl 2021. 5.1.2021 13:12
Bílastæðasjóður endurgreiðir þrettán milljónir vegna oftekinna gjalda Bílastæðasjóður Reykjavíkur mun endurgreiða bifreiðareigendum oftekin gjöld sem innheimt voru vegna tiltekinna stöðubrota á tímabilinu 1. janúar til 24. september á síðasta ári. 5.1.2021 12:27
Öllum verslunum nú óheimilt að selja plastpoka Um áramótin tóku í gildi reglur sem banna afhendingu plastburðarpoka í verslunum. Bannið tekur jafnt til þunnu, glæru grænmetispokanna og innkaupaburðarpokanna, en nær ekki yfir plastpoka sem eru seldir í rúllum í hillum verslana. 5.1.2021 11:46
73 prósent íbúa á hjúkrunarheimilum á geðlyfjum 58,5% íbúa á íslenskum hjúkrunarheimilum voru með geðsjúkdómagreiningu árið 2018 og tóku 72,5% íbúa einhvers konar geðlyf að staðaldri. Neysla slíkra lyfja hefur aukist frá árinu 2012 og eru þunglyndislyf mest notuð. 4.1.2021 22:00
Ætlað að efla netöryggissveitina í skugga aukinna netárása Guðmundur Arnar Sigmundsson hefur verið ráðinn forstöðumaður netöryggissveitarinnar CERT-IS og kemur til með að leiða starfsemi sveitarinnar og áframhaldandi uppbyggingu hennar. 4.1.2021 16:13
Ráðningin til marks um aukna áherslu á stafræna þróun Eiður Eiðsson hefur verið ráðinn framkvæmdarstjóri stafrænnar þróunar og upplýsingatækni hjá verslunarfyrirtækinu Högum. 4.1.2021 15:36
Landspítali búinn að ráða 135 úr bakvarðasveit Landspítalinn hefur gert ráðningarsamninga við 135 einstaklinga úr bakvarðasveit heilbrigðisþjónustunnar. 8.4.2020 16:09
Yfir helmings samdráttur hjá hótelum í mars Verulegur samdráttur var í gistinóttum hótela í mars ef marka má bráðabirgðatölur Hagstofunnar. 8.4.2020 15:18