Guðmundur Ingi á sjúkrahúsi Þingmenn stjórnarandstöðunnar gagnrýndu embættisfærslur mennta- og barnamálaráðherra við upphaf þingfundar í morgun og lýstu áhyggjum af því hvernig hann hafi beitt sér í máli skólameistara Borgarholtsskóla. Forseti þingsins benti á að málið varði ekki störf þingsins eða fundarstjórn forseta en upplýsti að Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra, væri á sjúkrahúsi og geti sökum þessa ekki verið viðstaddur umræður á Alþingi. Hann er ekki sagður alvarlega veikur. 4.12.2025 10:44
Koma Ársæli til varnar og telja ráðherra refsa honum fyrir skoðanir sínar Fulltrúar úr fráfarandi skólanefnd Borgarholtskóla skora á mennta- og barnamálaráðherra að falla frá ákvörðun sinni um að framlengja ekki skipunartíma Ársæls Guðmundssonar skólameistara skólans. Fulltrúar sem setið hafa í skólanefndinni telja ákvörðun ráðherra órökstudda og án aðdraganda auk þess sem þau gruni að með ákvörðun sinni sé ráðherra að refsa Ársæli fyrir gagnrýni sem hann hafi haldið á lofti um áform stjórnvalda um málefni framhaldsskóla. 4.12.2025 09:57
Ekki á leið í framboð í borginni og hugsi yfir „óskalista“ ríkisstjórnarinnar Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, segist ekki vera að hugleiða framboð í komandi borgarstjórnarkosningum. Hann er sem stendur með hugann við störf sín í landsmálapólitíkinni, meðal annars við samgönguáætlun sem kynnt var í gær. Hann segir áætlunina í raun vera „óskalista“ núverandi ríkistjórnar um hvað sú næsta eigi að gera í samgöngumálum. 4.12.2025 09:09
Örlög Ísrael í Eurovision ráðast á aðalfundi sem hefst í dag Við Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, Eurovision, blasir barátta fyrir framtíð keppninnar á fundi sem markar „vatnaskil“ sem hefst í Genf í Sviss í dag. Svo er því lýst í umfjöllun BBC í dag en viðbúið er að örlög Ísrael í keppninni verði ráðin á fundinum. Ísland er meðal þeirra ríkja sem hefur sett fyrirvara um þátttöku í keppninni þar til fyrir liggur niðurstaða um hvað skal gera vegna Ísrael. 4.12.2025 07:47
Fjarðarheiði lokuð vegna umferðarslyss Vegurinn um Fjarðarheiði er lokaður sem stendur vegna umferðarslyss. Samkvæmt upplýsingum á vef Vegagerðarinnar verður vegurinn lokaður á meðan viðbragðsaðilar sinna störfum á vettvangi. Slysið varð við árekstur tveggja bifreiða, nokkrir farþegar auk ökumanna voru í bílunum en ekki liggur fyrir hve margir eru slasaðir né hvort um alvarleg slys sé að ræða. 3.12.2025 15:06
Þorgerður mætt en söguleg fjarvera Rubio vekur furðu Utanríkisráðherrar aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins hittast á fundi í höfuðstöðvum bandalagsins í Brussel í dag. Athygli hefur vakið að Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hyggst ekki mæta á fundinn. Það er sögulega afar sjaldgæft að ráðherra Bandaríkjanna sjái sér ekki fært að mæta þegar ráðamenn NATO-ríkja hittast, en framkvæmdastjóri bandalagsins kveðst sýna fjarveru Rubio fullan skilning. 3.12.2025 10:47
Gervigreindin hughreysti ferðamann sem björgunarsveit kom til bjargar Björgunarsveitir í Árnessýslu voru kallaðar út rétt fyrir klukkan eitt í nótt til aðstoðar við ferðamann sem hafði fest bíl sinn á Nesjavallaleið og var orðinn verulega kaldur eftir að hafa gengið um fimm kílómetra frá bílnum. Ferðamaðurinn mun hafa spurt gervigreindina hvort aðstoð myndi berast og ekki stóð á svörum. 3.12.2025 09:21
Á fjórða hundrað erlendra fanga frá 56 löndum afplánað á Íslandi frá 2020 Alls hafa 327 fangar með erlent ríkisfang frá 56 löndum hafið afplánun í fangelsum á Íslandi undanfarin fimm ár. Flestir erlendir fangar á þessu ári, og alls yfir tímabilið, eru pólskir og spænskir ríkisborgarar og yfirgnæfandi meirihluti þeirra erlendu fanga sem afplána á Íslandi sitja inni vegna fíkniefnabrota. Áætlaður meðalkostnaður vegna hvers fanga á dag nemur tæpum 57 þúsund krónum á þessu ári. 3.12.2025 08:10
Þingmenn mæta í vinnuna á laugardögum í desember Þingfundadögum hefur verið fjölgað og þingmenn gætu þurft að mæta í vinnuna á laugardögum í desember sökum anna í þinginu fyrir jólafrí. Ákveðið hefur verið að þingfundur verði á föstudaginn sem ekki var gert ráð fyrir í starfsáætlun, auk þess sem fyrstu tveir laugardagarnir í desember verði þingdagar. Þingmenn stjórnarandstöðunnar gagnrýna seinagang í þingstörfum og kalla eftir því að allar nauðsynlegar upplýsingar liggi fyrir eins fljótt og auðið er svo unnt sé að ræða fjárlög á réttum forsendum. 2.12.2025 14:39
„Brunaútsala“ á hlutabréfum eftir eldsvoðann í Hong Kong Hlutabréfaverð í danska þjónustufyrirtækinu ISS hrapaði í dönsku kauphöllinni í dag en lækkunin er rakin til stórbrunans í Hong Kong í síðustu viku. Um 7% lækkun er rakin til dótturfélags ISS, EastPoint í Hong Kong, sem ku hafa gegnt lykilhlutverki við framkvæmdir í byggingunum sem sagðar eru hafa orsakað eldsvoðann sem varð yfir 150 manns að bana. 2.12.2025 13:52