russian.girls taka lagið í beinni Annað myndbandið úr nýrri seríu frá útvarp 101 og Stúdíó Sýrlandi er nú frumsýnt hér á Vísi en í myndbandinu tekur hljómsveitin russian.girls lagið Hundrað í hættunni í beinni. 2.8.2022 13:00
Stjörnulífið: Þjóðhátíð, ástin og brjóstagjöf Stjörnulífið þessa vikuna náði hápunkti um helgina þar sem Íslendingar skemmtu sér um land allt á fjölbreyttan hátt í tilefni Verslunarmannahelgarinnar. Klara Elias samdi og flutti Þjóðhátíðarlagið í ár sem hefur slegið í gegn og Magnús Kjartan Eyjólfsson kom sá og sigraði í brekkusöngnum. 2.8.2022 11:57
Vaknaði berrassaður úti í móa og tjaldið horfið Fréttamaður Stöðvar 2 náði tali af tveimur gestum Þjóðhátíðar sem höfðu ansi hreint ólíkar sögur að segja af fatnaði. Annar var klæddur í sitt fínasta púss en hinn rifjaði upp þegar hann vaknaði berrassaður úti í móa síðast þegar hann var á Þjóðhátíð. 1.8.2022 17:33
Verbúðin lifandi á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum Þorsteinn Þór Traustason ákvað að endurverkja Verbúðina í hvíta tjaldi sínu á þjóðhátíð í ár. Það má líkja því við að stíga inn í tímavél að heimsækja skrautlegt tjaldið. Þorsteinn segir markmiðið að láta fólki sem heimsæki tjaldið líða eins og það sé komið heim til ömmu sinnar í kleinur. 31.7.2022 20:36
Sveppi og Steindi rifu sig úr að ofan á stóra sviðinu Laugardagurinn á Þjóðhátíð náði hápunkti þegar FM95Blö stigu á svið þar sem Sveppi og Steindi rifu sig úr að ofan við mikil fagnaðarlæti. Brekkan safnaðist saman á dansgólfinu til þess að fylgjast með félögunum taka öll sín bestu lög. 31.7.2022 17:01
Tilhugalífið með eiginkonunni stendur upp úr Hafsteinn Þorsteinsson er Eyjamaður sem segir samveruna, gleðina og hamingjuna vera það sem einkennir hátíðina ár hvert og segir það hafa verið alvöru sorg þegar hún var lögð niður síðustu tvö árin. 31.7.2022 08:01
Mikil stemning í Eyjum Stemningin á Þjóðhátíð er stórkostleg þar sem hún fer fram í fyrsta skipti síðan árið 2019. Veðrið leikur við gesti hátíðarinnar sem njóta þess að fylgjast með skemmtilegri dagskrá, rölta á milli hvítu tjaldanna og spóka sig um í sólinni. 30.7.2022 22:00
Missti af Þjóðhátíð fyrir Ólympíuleikana, Jordan og Magic Sigmar Þröstur Óskarsson hefur alltaf mætt á Þjóðhátíð nema árið 1992 þegar hann missti af hátíðinni því sem hann var staddur í Barcelona að keppa á Ólympíuleikunum. Þar hitti hann Michael Jordan og Magic Johnson. 30.7.2022 20:01
„Yfirleitt klárast hann“ Hrafnhildur Andrésdóttir stendur vaktina í veitingatjaldi ÍBV í dalnum um helgina og segir lundann yfirleitt seljast upp á hátíðinni en hún segir krakkana vera spennta að smakka. 30.7.2022 18:00
„Alltaf síðan ég fæddist“ Guðbjörg Hrönn Sigursteinsdóttir hefur aldrei misst af Þjóðhátíð á allri sinni lífstíð. Jafnvel þegar hátíðin féll niður tvö ár í röð vegna Covid var helgin haldin hátíðlega á Lóðahátíð sem fangaði andann. 30.7.2022 09:00