Fréttamaður

Freyja Þórisdóttir

Freyja er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Yngsta syst­kinið fjögurra ára og það elsta fimm­tíu og fimm

„Áhuginn minn á keppninni kviknaði út frá reynslu sem hafði mikil áhrif á mig. Einhver sem stóð mér nærri gekk í gegnum erfiða tíma, og það fékk mig til að átta mig á því hversu mikilvægt það er að hafa fyrirmyndir og fólk sem hægt er að líta upp til.Síðan þá hef ég fundið sterka þörf til að stíga fram og vera sú manneskja sem ég hefði sjálf þurft að sjá,“ segir Anna María Eiríksdóttir sem keppir í Ungfrú Ísland 2026 sem Ungfrú Selfoss.

Vilja fá fólk út í sumar með nýjum leik

Fjórir nemendur í Borgarholtsskóla hófu nýverið sölu á leiknum Flatir Fletir með það að markmiði að fá fleiri ungmenni til að verja tíma saman úti í sumar. Þeim þykir sorglegt að sumarleikir virðist vera að víkja fyrir inniveru og símanotkun. Þeir hafi viljað fanga þá „sígildu tilfinningu að standa úti á íslenskri fjöru á sumrin og fleyta kerlingar, skemmtun sem verður aldrei þreytt“.

Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun

Katrín Jakobsdóttir, fyrrverandi forsætisráðherra, og Nicola Sturgeon, fyrrverandi fyrsti ráðherra Skotlands, hlutu Velsældarverðlaunin í dag á Velsældarþinginu sem stendur yfir í vikunni og fer fram í Hörpu. 

Sögu­frægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru

Íbúar í Garðabæ hafa margir hverjir lýst yfir áhyggjum af niðurníðslu húsa á Vífilsstöðum, sem að margra mati voru virðuleg hér áður fyrr. Börn og ungmenni hafa gert það að vana sínum að brjótast inn í húsin en Garðabær og talsmenn Landspítalans segjast kappkosta að tryggja öryggi á svæðinu. Áform eru um að gera húsin upp í sinni upprunalegu mynd í samráði við Minjastofnun.

Báru fram kok­teila í vatns­byssum, páska­eggjum og kransa­kökum

Í gær kepptust margir af bestu barþjónum landsins um sigurinn með kokteila sem voru meðal annars bornir fram í kókómjólkurfernum, kransakökum og paprikum. Keppnirnar fara fram samhliða Reykjavík Cocktail Week sem hófst á mánudaginn, 13. apríl, og stendur yfir fram á sunnudagskvöld. Barþjónaklúbbur Íslands stendur fyrir þessari árlegu hátíð kokteilamenningar á Íslandi í samstarfi við helstu vínbirgja, veitingahús og bari á höfuðborgarsvæðinu.

Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi

Athafnamaðurinn Sigmar Vilhjálmsson, betur þekktur sem Simmi Vill, hefur fest kaup á bæjarblaðinu Mosfellingi og tekur við rekstri þess með það að markmiði að byggja ofan á sterkan grunn blaðsins. Þá hefur nýr ritstjóri verið ráðinn til starfa samhliða kaupunum.

Upp­eldið hjá ömmu og afa á­hrifa­mest

„Það sem hefur mótað mig mest er að hafa alist upp að stórum hluta hjá ömmu minni og afa. Þar fékk ég að upplifa mikla hlýju og öryggi sem hafði djúp áhrif á mig. Þau kenndu mér gildi eins og virðingu og þakklæti. Ég lærði líka að vera þolinmóð, hjálpsöm og standa á eigin fótum. Þessi tími mótaði ekki bara hvernig ég sé heiminn heldur líka hver ég er sem manneskja í dag,“ segir Soffía Ellín Stella Gísladóttir sem keppir í Ungfrú Ísland 2026.

„Þyngra fyrir fæti að fá vinnu“

Samdráttur í samfélaginu skilar sér í því að minna er ráðið í sumarafleysingar. Harðnað hefur á dalnum en forstjóri Vinnumálastofnunar segir það marktækt að kólnun í atvinnulífinu sé enn ríkjandi og að atvinnuleysi sé meira en undanfarin ár.

Sjá meira