Fréttamaður

Freyja Þórisdóttir

Freyja er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Ekki lengur á­kærður fyrir til­raun til manndráps

Fjörutíu og átta ára maður var ákærður fyrir manndráp og tilraun til manndáps í Danmörku í gær en hann hefur nú verið úrskurðaður í gæsluvarðhald og ákærunni hefur verið breytt að hluta. Hann hefur sagst ekki muna hvað átti sér stað á föstudag.

Skógræktar­starfsmönnum haldið í gíslingu í hjól­hýsi

Tveimur starfsmönnum bandarísku skógræktarinnar (á ensku U.S. Forest Service) hefur verið sleppt eftir að þeim var haldið í gíslingu og þeim hótað ofbeldi. Var þeim haldið föngnum í hjólhýsi í skógi í Kaliforníu-fylki í um fimmtán klukkustundir. Hinir grunuðu eru feðgar en talið er líklegt að þeir hafi valið starfsmennina vegna þess að þeir eru ríkisstarfsmenn.

Fjöl­skyldur kvennanna í sárum eftir nýjar fréttir

Eigandi áfengisverksmiðju í Laos hefur verið ákærður eftir að fjöldi fólks lést úr metanól-eitrun í borginni Vang Vieng, þar á meðal áströlsku bakpokaferðalangarnir Bianca Jones og Holly Morton-Bowles. Þær voru einungis nítján ára gamlar þegar þær létust eftir að hafa verið fluttar fárveikar á sjúkrahús í Tælandi. Foreldrar stúlknanna gefa lítið fyrir viðbrögð í Laos.

Ferða­maðurinn fundinn heill á húfi á Suður­landi

Allar björgunarsveitir frá höfuðborgarsvæðinu og austur á Höfn voru kallaðar út til að leita erlends ferðamanns sem nú hefur fundist heill á húfi. Hann hafði farið af stað í göngu í nótt ofan við Foss á Síðu á Suðurlandi en skilaði sér ekki til baka.

Ríf­lega fimm þúsund látnir í kjöl­far skjálftanna

Fjöldi slasaðra í jarðskjálftunum sem riðu yfir Venesúela í júní er talinn vera í kringum sextán þúsund og sjö hundruð en hamfarirnar urðu ríflega fimm þúsund manns til bana. Skjálftarnir, sem voru 7,2 og 7,5 að stærð, riðu yfir með um mínútu millibili þann 24. júní og lögðu strandríkið La Guaira, norður af Caracas, í rúst.

Á­rásar­maðurinn hafi sagst „ekki geta meir“

Fjörutíu og átta ára maður sem var færður fyrir dómara fyrir skömmu hefur verið ákærður fyrir manndráp og tilraun til manndráps í tengslum við skotárásina í Nørresundby norðan við Álaborg í gær. Hann hefur játað að hafa skotið sextíu og tveggja ára mann í gær með þeim afleiðingum að sá lést, auk lögreglumanns sem er særður.

Sjö­tugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara

Sjötugur maður sem nýlega opnaði sig um að hafa misst aleiguna til fjárkúgara hefur lifað í stöðugum ótta síðan kúgunin hófst. Vinur hans segir frá því að alls hafi hann greitt hópi fólks ríflega hundrað og átta milljónir en þau hótuðu honum að ljúga upp á hann öllu illu og beita hann ofbeldi ef hann neitaði að borga.

Gluggar þaktir klósett­pappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“

Dæmi eru um að ferðamenn bóki nótt á gististöðum hérlendis, afbóki svo og fái endurgreitt eftir að þeir hafi notað aðstöðuna. Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segir það undir þeim sem leiga út gistingu komið að ákveða hvort mál séu tilkynnt lögreglu. Hann telji það þó eðilegt ef um svik eða skemmdarverk sé að ræða.

Sjá meira