Skipulagsstofnun staðfestir umhverfisskýrslu First Water Skipulagsstofnun hefur gefið út álit sem staðfestir umhverfisskýrslu First Water sem áður hét Landeldi. First Water vinnur að uppbyggingu sjálfbærs laxeldis á landi í Þorlákshöfn um að auka framleiðslu félagsins í 28.000 tonn í 4 fösum. 6.7.2023 21:03
Áformuð lög um innlenda smágreiðslulausn sögð brýn Forsætisráðherra hefur birt til umsagnar í Samráðsgátt áform um lagasetningu um að koma á fót innlendri smágreiðslulausn. Sagt er að það auki þjóðaröryggi og stuðli að hagkvæmni fyrir neytendur. Seðlabankinn á í viðræðum við banka um að koma greiðslulausninni á fót. 6.7.2023 13:46
Greiddi næstum fjórðung af sjóðnum í arð vegna sölu á Tempo og Mílu Arðgreiðslusjóður Stefnis greiddi 23,5 prósent af heildarstærð sjóðsins í arð til sjóðsfélaga um síðustu mánaðarmót. Þetta háa hlutfall má rekja til þess að Origo seldi Tempo og Síminn seldi Mílu og var afrakstur sölunnar greiddur til hluthafa. Arðgreiðslur vegna þessara tveggja félaga telja tæplega 90 prósent af öllum arði til sjóðsins á nýliðnu arðgreiðslutímabili. 6.7.2023 07:00
Stjórnir fasteignafélaga á markaði mega ekki gæta hagsmuna einstaka hluthafa Lífeyrissjóðurinn Birta var á meðal hluthafa sem samþykkti tillögu stjórnar Regins í gær um að hún fái heimild til að auka hlutafé fasteignafélagsins verði af yfirtökutilboði þess í Eik. Framkvæmdastjóri Birtu segir í samtali við Innherja að stjórnir fasteignafélaganna þurfi að gæta hagsmuna hvers félags fyrir sig en ekki einstaka hluthafa eða tegundar hluthafa. 5.7.2023 15:29
Styrkás verður „töluvert“ umsvifameira við skráningu í Kauphöll Horft er til þess að Styrkás, eignarhaldsfélag Skeljungs og Kletts, verði „töluvert“ umsvifameira við skráningu þess í Kauphöll fyrir árslok 2027, að sögn forstjóra Skel fjárfestingafélags. Tækifæri eru til ytri vaxtar á sviði orku og efnavöru, tækjum og búnaði, umhverfi, iðnaði og eignaumsýslu. 5.7.2023 08:43
Styttum sumarfrí skóla Það þarf að lengja skólaárið. Sumarfrí nemenda eru of löng. Það liggur í augum uppi. Athygli vekur að enginn kennari hefur lýst því sjónarmiði yfir í fjölmiðlum eftir að fjallað var um rannsókn sýndi að nemendur sem höfðu lokið fjögurra ára framhaldsskólanámi stóðu sig betur við Háskóla Íslands en þeir sem lokið höfðu sama námi á þremur árum, eins og nú tíðkast. 4.7.2023 08:04
Óhjákvæmilegt að fasteignaverð hækki töluvert í ljósi viðvarandi skorts Það er óhjákvæmilegt að fasteignaverð muni hækka töluvert á næstu árum í ljósi viðvarandi skorts á íbúðum. Markmið stjórnvalda fyrir ári um að byggja 35 þúsund íbúðir á tíu árum mun ekki nást. Framboð á nýjum íbúðum verður því langt undir þörf. „Stjórnvöld gera byggingarverktökum æ erfiðara fyrir,“ segir framkvæmdastjóri Jáverks og nefnir að lægra endurgreiðsluhlutfall virðisaukaskatts vegna framkvæmda við íbúðarhúsnæði – sem hafi komið eins og þruma úr heiðskíru lofti – muni leiða til 400-500 milljónir króna í aukna skattbyrði á næstu þremur árum fyrir verktakafyrirtækið. 1.7.2023 09:02
Laxeldið First Water eykur hlutafé um ríflega tólf milljarða First Water, sem áður hét Landeldi og vinnur að uppbyggingu sjálfbærs laxeldis á landi í Þorlákshöfn, hefur lokið hlutafjáraukningu að andvirði 82 milljóna evra, eða um 12,3 milljarða króna. Fjárfestingarfélagið Stoðir er áfram stærsti hluthafi First Water eftir hlutafjáraukninguna. 30.6.2023 13:07
Framtakssjóðurinn TFII á leið til Landsbréfa eftir mikinn taprekstur Eigendur framtakssjóðsins TFII, sem eru að uppistöðu lífeyrissjóðir, hafa gengið til samninga við Landsbréf um rekstur sjóðsins, að sögn stjórnarformanns TFII. Sjóðurinn var áður undir hatti Íslenskra verðbréfa en því samstarfi var slitið eftir að hluthafar TFII höfðu gert ýmsar alvarlegar athugasemdir við rekstur hans hjá ÍV. 30.6.2023 07:16
Lægra olíuverð dró niður afkomu Haga Hagnaður Haga dróst saman um 30 prósent á milli ára og nam 653 milljónum króna á fyrsta árfjórðungi. Stjórnendur segja að á tímabilinu sem sé til samanburðar hafi afkoman verið „óvenju sterk“. Í ljósi þess að heimsmarkaðsverð á olíu lækkaði töluvert á milli ára, en það leiðir til lægri framlegðar af sölu til stórnotenda, dróst rekstrarhagnaður Olís saman um 63 prósent á milli ára. 29.6.2023 13:02