Ritstjóri

Hörður Ægisson

Hörður er ritstjóri Innherja.

Nýjustu greinar eftir höfund

Gefur Al­vot­ech nauð­syn­leg svig­rúm og losar um ó­vissu sem vofði yfir fé­laginu

Yfir tuttugu milljarða hlutafjáraukning Alvotech átti ekki að koma á óvart með hliðsjón af þróun lausafjárstöðu á fyrsta fjórðungi og áformum um áframhaldandi miklar fjárfestingar, að sögn erlendra greinenda, en þeir segja stjórnendur núna hafa meiri sveigjanleika til að mæta rekstrarþörf félagsins auk þess sem búið sé að styrkja og einfalda fjárfestasöguna. Mikil velta hefur verið með bréf félagsins frá opnun markaðarins vestanhafs í dag og gengið hækkað talsvert frá útboðsgenginu.

Controlant freistar þess að klára allt að tíu milljóna dala fjár­mögnun

Íslenska hátæknifyrirtækið Controlant, sem þróar og framleiðir vöktunarlausnir fyrir lyf og heilbrigðisvörur, vinnur nú að því að klára fjármögnun í þessum mánuði frá innlendum fjárfestum í formi útgáfu breytanlegra skuldabréfa fyrir allt að tíu milljónir Bandaríkjadala. Félagið er samhliða því að endursemja um rýmri lánaskilmála við stærsta lánveitenda sinn, breskt sjóðastýringarfyrirtæki.

Al­vot­ech efnir til út­boðs í Banda­ríkjunum og á­formar að sækja yfir 15 milljarða

Alvotech hefur ákveðið að efna til sölutryggðs hlutafjárútboðs í Bandaríkjunum samhliða því að áforma að bjóða tilteknum fagfjárfestum á EES-svæðinu að kaupa bréf á sama gengi, en félagið væntir þess að söluandvirði hlutabréfanna muni samtals nema um 125 milljónum Bandaríkjadala. Hlutabréfaverð Alvotech hefur fallið skarpt á eftirmarkaði vestanhafs í kvöld en hlutafjáraukningin kemur í kjölfar þess að sjóðstaða félagsins hafði þrengst nokkuð á fyrstu mánuðum ársins.

Grein­endur spá því að verð­bólgan fari undir fimm pró­sent í fyrsta sinn á árinu

Gangi meðalspá fimm greinenda eftir mun tólf mánaða verðbólgan í þessum mánuði fara undir fimm prósent í fyrsta sinn á þessu ári, en það sem helst er talið að muni drífa áfram hækkun á vísitölu neysluverðs í júní eru meðal annars flugfargjöld og húsnæðisliðurinn. Skýr merki eru hins vegar um kólnun á vinnumarkaði með auknu atvinnuleysi og lausum störfum fækkar sem ætti að draga úr launaþrýstingi.

Færa niður verð­miðann á Good Good um nærri helming

Tveir stærstu hluthafar Good Good, sem hefur verið að reyna hasla sér völl á Bandaríkjamarkaði með sölu á matvörum án viðbætts sykurs, hafa fært niður verðmiðann á félaginu um tæplega helming í bókum sínum. Good Good var verðmetið á yfir sex milljarða þegar framtakssjóður hjá Stefni fjárfesti félaginu fyrir fáeinum árum.

AGS varar við aukinni hættu á að hag­vöxtur reynist minni en verð­bólga meiri

Taumhald peningastefnu Seðlabankans þarf áfram að vera „nægjanlega þétt um nokkurt skeið“ eigi að tryggja varanlega og sjálfbæra hjöðnun verðbólgu, að mati Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, en sendinefnd sjóðsins varar einnig við því að vegna átakanna við Persaflóa sé aukinn áhætta á að hagvöxtur muni reynast minni en verðbólga meiri. Þá leggur sjóðurinn til að opinberir starfsmenn taki þátt í kjaraviðræðum samhliða einkageiranum þannig að samningalotur séu betur samstilltar, sem myndi þá stuðla að launaþróun í samræmi við framleiðnivöxt og verðbólgu.

Mæla með kaupum og telja að það horfi til betri vegar eftir mikinn ólgu­sjó

Eftir að hafa verið í miklum ólgusjó síðustu misseri þá horfir til betri vegar hjá Alvotech með umsóknum um markaðsleyfi á nýjum lyfjum til FDA, samkvæmt nýrri greiningu, en félagið er verðmetið langt yfir markaðsgengi og því spáð að tekjur þessa árs verði við efri mörk útistandandi afkomuáætlunar. Greinendur vara samt við því að ef það verða hnökrar í ár á rekstri Alvotech, sem skuldar samtals um 1,7 milljarða dala, með tilheyrandi neikvæðum áhrifum á áætlanir næstu ára þá séu „töluverðar líkur“ á að félagið lendi í erfiðleikum.

Sjá meira