Krónan hélt áfram að falla þrátt fyrir ítrekuð gjaldeyrisinngrip Seðlabankans Seðlabankinn beitti umtalsverðum inngripum á gjaldeyrismarkaði í dag til að reyna stemma stigu við mikilli gengisveikingu krónunnar í tengslum við óvissu vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga. Þetta voru fyrstu inngrip bankans frá því í janúar á þessu ári en þrátt fyrir að hafa selt gjaldeyri fyrir jafnvirði nærri þrjá milljarða þá lækkaði krónan engu að síður um meira en eitt prósent gagnvart helstu myntum. 13.11.2023 17:16
Fjárfestar loka framvirkum samningum með krónunni vegna ótta við eldgos Gengi krónunnar hefur fallið skarpt á síðustu dögum samhliða því að auknar líkur eru nú taldar á eldgosi á Reykjanesskaga sem gæti meðal annars raskað verulega starfsemi stórra ferðaþjónustufyrirtækja á svæðinu. Talsvert hefur verið um að fjárfestar séu að loka framvirkum stöðum sínum með krónunni í þessum mánuði sem hefur ýtt enn frekar undir gengislækkun krónunnar. 13.11.2023 12:41
Leysti líka til sín bréf Þórðar og fer með nærri tíu prósenta hlut í Eyri Invest Arion fer með nálægt tíu prósenta eignarhlut í Eyri Invest eftir að bankinn leysti sömuleiðis til sín hluta af bréfum í fjárfestingafélaginu sem höfðu verið í eigu Þórðar Magnússonar, fyrrverandi stjórnarformanns til meira en tveggja áratuga, í tengslum við veðkall sem var gert á Árna Odd, son Þórðar og þáverandi forstjóra Marels. Feðgarnir fara nú saman með nokkuð minna en þriðjungshlut í Eyri en hluthafar félagsins, einkum bankar og lífeyrissjóðir, skoða nú að koma að stórri hlutafjáraukningu til að létta á þungri skuldastöðu. 11.11.2023 16:28
Lánshæfiseinkunn íslenska ríkisins hækkar í fyrsta sinn frá 2019 Matsfyrirtækið S&P Global Ratings hefur hækkað lánshæfiseinkunn Íslands úr A í A+, sem endurspeglar útlit fyrir áframhaldandi kraftmikinn hagvöxt, en ef opinber fjármál styrkjast meira en nú er áætlað gætu verið forsendur fyrir enn frekari hækkun. Líklegt er að hækkun á lánshæfiseinkunn ríkissjóðs muni í framhaldinu sömuleiðis skila sér í uppfærslu á lánshæfismati íslensku bankanna en S&P gerir ráð fyrir að arðsemi þeirra verði áfram sterk sem geri þá vel í stakk búna til að mæta mögulegum auknum útlánatöpum. 11.11.2023 13:21
Eyrir áformar að styrkja stöðuna með tólf milljarða innspýtingu frá hluthöfum Stjórnendur og ráðgjafar Eyris Invest eiga nú í samtölum við hluthafa fjárfestingafélagsins um að leggja því til umtalsvert nýtt hlutafé í því skyni að treysta fjárhagsstöðuna eftir mikið verðfall á stórri hlutabréfaeign þess í Marel. Landsbankinn gerði í lok síðasta mánaðar veðkall í rúmlega eins prósenta hlut Árna Odds Þórðarson, þáverandi forstjóri Marels, í Eyri Invest í gegnum samnefnt eignarhaldsfélag hans eftir að það uppfyllti ekki lengur skilmála í lánasamningi við bankann. 10.11.2023 11:57
Fjárfestar með „augun á baksýnisspeglinum“ og sjá ekki tækifæri Kviku Fjárfestar eru með „augun á baksýnisspeglinum“ gagnvart Kviku, þar sem þeir horfa framhjá tækifærum til sóknar á bankamarkaði eftir mikla fjárfestingu í fjártæknilausnum, og hratt lækkandi markaðsvirði bankans endurspeglar nú „engan veginn“ undirliggjandi virði í eignum félagsins, að mati vogunarsjóðsstjóra sem hefur byggt upp stöðu í bankanum. Þá segir hann Sýn vera „eitt undirverðlagðasta félagið“ á markaði um þessar mundir og metur mögulegt virði auglýsingamiðla fyrirtækisins á um eða yfir fimm milljarða. 6.11.2023 18:33
Skoða „ýmsar leiðir“ til að bæta afkomu Kviku af starfseminni í Bretlandi Erfiðar aðstæður á mörkuðum halda áfram að setja mark sitt á afkomu Kviku og minnkuðu tekjur af kjarnarekstri um liðlega 14 prósent á þriðja fjórðungi en framvirka bókin hjá bankanum er „miklu minni“ en áður sem hefur talsverð neikvæð áhrif á tekjumyndun, að sögn bankastjórans. Framlegðin af starfsemi Ortus í Bretlandi, sem hefur valdið vonbrigðum frá kaupunum í ársbyrjun 2022, ætti að halda áfram að batna með væntingum um hækkandi vaxtamun og verið sé að skoða „ýmsar leiðir“ til að bæta fjármögnunarkostnað félagsins. 3.11.2023 11:49
Eftirbátar annarra norrænna banka í arðsemi sem hafa stóraukið vaxtatekjurnar Stærstu bankarnir á hinum Norðurlöndunum hafa séð vaxtatekjur sínar aukast að jafnaði um liðlega helming á milli ára sem ræður hvað mestu um að þeir eru nánast undantekningalaust að skila verulega betri arðsemi en íslensku bankarnir. Á meðan vaxtamunur bankanna hér á landi hefur haldist á svipuðum stað síðustu tólf mánuði þá hefur hann aukist nokkuð hjá öðrum norrænum bönkum samhliða hækkandi vaxtastigi, einkum vegna meiri vaxtamunar þeirra á innlánum. 2.11.2023 14:31
Marel ætti að fara í hlutafjáraukningu til að grynnka á miklum skuldum Hlutabréfaverð Marels rauk upp í byrjun vikunnar eftir að greinendur ING hækkuðu talsvert verðmat sitt á félaginu en þrátt fyrir að uppgjör þriðja fjórðungs hafi verið undir væntingum telja þeir jákvæð teikn á lofti í rekstrinum sem endurspeglist meðal annars í minnkandi kostnaðargrunni. Að sögn hollenska bankans væri skynsamlegt fyrir Marel að ráðast í hlutafjáraukningu í því skyni að minnka óhóflega skuldsetningu félagsins. 1.11.2023 18:15
Fyrrverandi forstjóri VÍS ráðgjafi við uppstokkun á skipulagi Seðlabankans Þær breytingar sem hafa verið gerðar á skipulagi í starfi Seðlabanka Íslands eru lokahnykkurinn í þeirri vinnu sem hefur staðið yfir frá sameiningu bankans og Fjármálaeftirlitsins fyrir nærri fjórum árum. Fyrrverandi forstjóri VÍS var fenginn til að vera Seðlabankanum til aðstoðar við skipulagsbreytingarnar sem tilkynnt var um í gær. 1.11.2023 12:53