Fréttamaður

Lillý Valgerður Pétursdóttir

Lillý er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Erfitt að segja til um upp­tök gróðureldanna

Þrjátíu og tveggja hektara svæði brann í gróðureldunum við Elliðavatn í gær en svæðið er torsótt og reyndist erfitt að koma slökkvibílum að. Mikil sina er víða eftir frost og töluverðan þurrk undanfarið og biðlar slökkviliðið til fólks að fara varlega með eld og láta vita strax ef það verður vart við gróðurelda.

Grafalvarlegt að berklasmit hafi greinst

Forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins segir það grafalvarlegt mál að tveir starfsmenn heilsugæslunnar hafi greinst með berklasmit við skimun. Ráðist verður í frekari skimanir í framhaldinu.

Ný sam­ræmd próf lögð fyrir

Ný samræmd próf verða lögð fyrir í grunnskólum landsins í mars. Forstjóri Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu segir miklar vonir bundnar við prófin og að niðurstöðurnar muni hjálpa foreldrum að átta sig betur á því hvar börnin þeirra standa.

Lægðirnar nái ekki til landsins

Öfgar í veðrinu eru að aukast um allan heim og má búast við meiri úrkomu hér á landi samhliða loftlagsbreytingum að mati veðurfræðings. Óvenjulegt sé að hér á landi sé sama veðurlag til lengri tíma líkt og sést hefur í vetur.

„Þarf maður að fara að finna ein­hverja nýja fjöru?“

Eitt mesta landrof í manna minnum hefur orðið í Reynisfjöru í Mýrdal. Landeigandi segir óvíst hvort ásýndin sé breytt til framtíðar. Gjörbreytt landslag blasir nú þar við ferðamönnum en í stað svörtu fjörunnar sem hefur dregið marga víða að blasa nú við steinar úti um allt. Þá hefur sjórinn náð að grafa sig inn í fjöruna og myndað nokkurra metra háan vegg.

Ný Ölfusárbrú farin að taka á sig mynd

Framkvæmdir við nýja Ölfusárbrú eru í fullum gangi og hún farin að taka á sig mynd. Nýja brúin liggur austar en sú gamla sem liggur inn á Selfoss og er ætlunin að færa umferðina fjær þéttbýlinu. Gert er ráð fyrir að brúin verði til haustið 2028.

„Á­standið hefur aldrei verið jafn slæmt“

Ástandið á leikskólum borgarinnar hefur aldrei verið verra að mati formanns Eflingar. Leikskólakerfið eins og það sé nú gangi ekki upp og ástandið bitni á andlegri og líkamlegri heilsu starfsfólksins. Hún hvetur stjórnvöld til að lengja fæðingarorlofið til að létta á kerfinu.

Sorg­legt að sonurinn sé að­eins tala á blaði

Foreldrar þrettán ára fatlaðs drengs segja sorglegt að upplifa að sonur þeirra sé aðeins tala á blaði sem skipti engu máli. Langir biðlistar séu eftir nær öllum stuðningi og úrræðum sem hann þurfi. Hann bíði að meðaltali í tvö ár eftir viðeigandi þjónustu hverju sinni sem sé langur tími í lífi barns.

Margir sem þurfa að horfa eða hlusta til að sofna

Meira en helmingur þátttakenda í könnun Maskínu fyrir Fjölmiðlanefnd um gervigreind og samfélagsmiðla segir upplifun sína af samfélagsmiðlum verri nú en þegar þeir byrjuðu að nota þá. Um helmingur sagðist oft vera í símanum á salerninu, um þriðjungur segist eiga erfitt með að horfa á mynd, þátt eða íþróttaviðburð án þess að kíkja í símann og 19 prósent eiga erfitt með að borða án þess að skoða símann.

Sjá meira