Guðni segir að ferðaþjónustan sé að drepa íslenskan landbúnað Fyrrverandi formaður Framsóknarflokksins og landbúnaðarráðherra gagnrýnir ríkisstjórnina og Alþingi harðlega fyrir sofandi hátt varðandi erfiða stöðu bænda og segir að hrina gjaldþrota blasi við verði ekkert gert. Þá segir hann ferðaþjónustuna vera að drepa hinn hefðbundna landbúnað. 30.9.2023 21:31
Um 100 manns taka þátt í flugslysaæfingu á Húsavík Það er mikið umleikis á Húsavíkurflugvelli í dag því þar fer fram flugslysaæfing þar sem um eitt hundrað viðbragðsaðilar á svæðinu taka þátt. Æfingin gengur út á það að tuttugu manna flugvél hafi hrapað á vellinum þar sem margir eru illa slasaðir og einhverjir látnir. 30.9.2023 13:15
Bestu vinkonurnar eru sextíu geitur Geitabóndi í nágrenni við Höfn í Hornafirði segir fátt skemmtilegra en að umgangast geiturnar sínar því þær séu svo uppátækjasamar og stríðnar. Bóndinn hvetur fólk til að fá sér geitur því þær séu svo góðir vinir manns. 27.9.2023 21:01
Svandís matvælaráðherra hefur eignast nöfnu í Keldudal Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra hefur eignast nöfnu en það er kýr á bænum Keldudal í Hegranesi í Skagafirði. Kýrin, sem er rétt rúmlega eins árs þykir efnileg og á vonandi eftir að mjólka mikið í framtíðinni. 25.9.2023 20:17
15 þúsund skammtar af mat á dag hjá Skólamat í Reykjanesbæ Fimmtán þúsund matarskammtar fara út á hverjum virkum degi í einu fullkomnasta eldhúsi landsins til leik- og grunnskólabarna á Suðurnesjum og á höfuðborgarsvæðinu. Vinsælasti maturinn er hakk og spaghettí og grjónagrautur. Hér erum við að tala um fyrirtækið Skólamat í Reykjanesbæ. 24.9.2023 20:06
Bæjarstjóri áhyggjufullur yfir fyrsta viðbragði Bæjarstjóri Hornafjarðar hefur miklar áhyggjur af öryggisinnviðum í sveitarfélaginu þegar ferðamenn eru annars vegar. Hann segir að fyrsta viðbragð eins og heilbrigðiskerfið og löggæsla hafa ekki fylgt mikilli fjölgun ferðamanna í sveitarfélaginu. 24.9.2023 15:03
Með sitt eigið gróðurhús á hjúkrunarheimilinu Hornbrekku Heimilisfólk á hjúkrunarheimilinu Hornbrekku í Ólafsfirði ræður sér ekki af kæti eftir að þau fengu gróðurhús við heimilið þar sem þau ræktar allskonar gómsætt grænmeti. 24.9.2023 09:31
Íbúum Snæfellsbæjar fjölgar smátt og smátt Íbúum Snæfellsbæjar er smátt og smátt að fjölga en vandamálið þar eins og svo víða í öðrum sveitarfélögum úti á landi er vöntun á húsnæði fyrir nýja íbúa. Þá hefur fjöldi ferðamanna í Snæfellsbæ sjaldan eða aldrei verið eins mikill og í sumar og haust. 23.9.2023 13:30
Rækta níu tegundir af grænmeti í Þingeyjarsveit Þeir garðyrkjubændur, sem eru með útiræktað grænmeti keppast nú við að taka grænmetið upp áður en það fer að frysta. Á bænum Vallakoti í Þingeyjarsveit eru ungir bændur að rækta níu tegundir af grænmeti með góðum árangri. 22.9.2023 08:31
Reynir Pétur á rafskutlu á Sólheimum Einn þekktasti göngugarpur landsins, Reynir Pétur Ingvarsson á Sólheimum í Grímsnesi hefur lagt gönguskóna meira og minna á hilluna og ferðast nú um allt á rafskutlu. Þá er hundur á Sólheimum, sem veit ekkert skemmtilegra en að vera í körfu eiganda síns þegar hún ekur um svæðið á sinni rafskutlu. 20.9.2023 20:06