Dillandi danskur Bond til bjargar blokkinni Dönsk leyniþjónustukona flytur í íslenska blokk til að komast í kyrrð og ró en getur ekki setið auðum höndum og fer að vasast í málum íbúa með misjöfnum árangri. Danska konan er ferskur andblær í íslensku sjónvarpi með skemmtilegum stílbrögðum, kostulegum hasarsenum og stjörnuframmistöðu Trine Dyrholm. 11.2.2026 07:02
Forsetinn, fjölmiðlaskvísur og kempur í Borgarnesinu Það var glatt á hjalla á Söguloftinu í Borgarnesi á laugardag þegar Þjóðleikhúsið frumsýndi í samstarfi við Landnámssetrið glænýjan einleik Unnar Aspar Stefánsdóttur, Sölku - ástina og dauðann í leikstjórn Björns Thors. 10.2.2026 18:00
Fimm frækin fylltu Landsbankahúsið Listamennirnir Sindri Dýrason, Anna Jansdóttir, Jón Múli, Jón Sæmundur og Narfi Þorsteinsson héldu málverkasýningu í gamla Landsbankahúsinu í samstarfi við Vetrarhátíð Reykjavíkurborgar föstudaginn 5. febrúar. Um fimm hundruð gestir mættu til að dást að listinni. 10.2.2026 12:51
Glímdi við kaupfíkn og fór í gjaldþrot: „Það kemur alltaf að skuldadögum“ Lína Birgitta Sigurðardóttir, áhrifavaldur og eigandi fatamerkisins Define the Line, opnaði sig í hlaðvarpinu Viltu finna milljón? um kaupfíkn sína og stjórnlausa neyslu sem leiddu hana til Umboðsmanns skuldara þegar hún var rétt rúmlega tvítug og gjaldþrots nokkrum árum síðar. 10.2.2026 11:15
Metnaðarfull Mamma Mia í Hafnarfirðinum Nemendur Víðistaðaskóla í Hafnarfirði frumsýna uppsetningu á söngleiknum Mamma Mía á föstudaginn með fimmtíu manna leikhópi. Foreldrar, kennarar og nemendur hafa setið sveittir við að smíða leikmynd og búninga. 10.2.2026 11:02
Seldu upp og undirrituðu samning til 666 ára Rokkhátíðin Hellfoss fór fram í fyrsta skipti í miðbæ Selfoss, tónleikagestir komu víða að og seldist upp á hátíðina. Í tilefni af vel heppnaðri hátíð undirrituðu Davíð Lúther, eigandi Sviðsins, og Rúnar Hroði, stofnandi Hellfoss, samning til 666 ára um að hátíðin verði áfram haldin í miðbæ Selfoss. 10.2.2026 10:02
Listapör, dansfjölskylda og rjómi senunnar á Garðinum Íslenski dansflokkurinn frumsýndi dansverkið Garðinn í leikstjórn Antonio de Rosa og Mattia Russo og stuttmyndina Paradísarfugla í Borgarleikhúsinu á laugardaginn. Margt var um manninn á frumsýningunni og rjómi danssenunnar mætti. 9.2.2026 15:46
Úr Eurovision í jógað: „Var ekki nógu góð við sjálfa mig eftir þetta“ Ingibjörg Stefánsdóttir var aðeins tvítug þegar hún söng með rave-sveitinni Pís of keik, keppti í Eurovision með laginu „Þá veistu svarið“og lék í Veggfóðri: Erótískri ástarsögu árið 1993. Hún tók í kjölfarið algjöra u-beygju, lærði jóga og hefur rekið Yoga Shala-jógastöðina í tuttugu ár. 9.2.2026 10:27
Alaska og Birnir sigursæl Tónlistarverðlaun Reykjavík Grapevine voru haldin á skemmtistaðnum Lemmy í gærkvöldi og var hiphop-senan sigursæl. Alaska1867 var valin listamaður ársin, Dyrnar eftir Birni var valin plata ársins og „eh plan“ með Digital Ísland valið lag ársins. 6.2.2026 17:04
Karlmennskan rís úr öskunni Kynjafræðingurinn Þorsteinn V. Einarsson hefur endurvakið Karlmennskuna rúmum fjórtán mánuðum eftir að hann tilkynnti að ekki yrðu teknir upp fleiri þættir af hlaðvarpinu. Áður hafði hann velt því fyrir sér hvort hann væri dottinn úr tísku. Hann segist endurvekja hlaðvarpið til að bregðast við upplýsingaóreiðu og afbökun í umræðunni. 6.2.2026 15:27