Skilur angist foreldra og hefur fulla trú á að málið endi vel Forstjóri Menntamálastofnunar segir stofnunina hafa lagt sig fram við að finna lausn fyrir Kristján Jakov Lazarev sem er ekki enn kominn með menntaskólapláss. Leitað sé allra leiða til að finna skóla sem henti þörfum hans. Þá segir að það sé skýr stefna að breyta framkvæmd innritunar til að gæta best hagsmuna barna. 22.8.2023 10:06
Bein efnahagsleg áhrif hvalveiða lítil og greinin ekki arðbær síðustu ár Bein efnahagsleg áhrif hvalveiða á Íslandi eru ekki mikil í þjóðhagslegu samhengi. Þá verður ekki séð að hvalveiðar hafi verið arðbær atvinnugrein á síðustu árum. Þrátt fyrir mikla andstöðu gagnvart hvalveiðum meðal almennings erlendis virðist það ekki hafa efnahagsleg áhrif á Ísland. 22.8.2023 08:10
Vara við netsvikurum á Booking.com Netöryggissveit íslenskra stjórnvalda, CERT-IS, varar við netsvikurum á Booking.com. Árásaraðilar hafi þar komist yfir aðganga gististaða og sendi pósta á fólk sem eigi bókaða gistingu á stöðunum með það að markmiði að svíkja út fé. 21.8.2023 15:41
Útskrifaðist úr grunnskóla í vor en byrjar ekki í menntaskóla í dag eins og önnur börn Kristján Jakov Lazarev útskrifaðist úr Klettaskóla í vor en byrjar ekki í menntaskóla í dag eins og önnur börn. Móðir hans segir að honum hafi verið synjað um pláss í skólunum tveimur sem hentuðu honum en hann er einhverfur, mállaus og með þroskahömlun. Hún segist hafa verið send á milli fólks í kerfinu og fái engin almennileg svör. 21.8.2023 14:42
Tuttugu ár frá því að Eliza flutti með Guðna til Íslands Í dag eru tuttugu ár frá því að Eliza Reid, forsetafrú, flutti til landsins með þáverandi unnusta sínum, Guðna Th Jóhannessyni. Hún minnist þess hvernig halloumi-ostur var ófáanlegur og hvernig hún gat ekki leigt spólur vegna stirðra reglna. Hún hafi verið heppin að mæta ekki sömu fordómum og aðrir innflytjendur. 21.8.2023 13:10
Mun aldrei sleppa úr fangelsi Dómari í Bretlandi dæmdi í morgun hjúkrunarfræðinginn Lucy Letby í lífstíðarfangelsi fyrir að hafa banað sjö börnum og reynt að bana sex til viðbótar á barnadeild sjúkahúss í Chester á árunum 2015 og 2016. 21.8.2023 12:15
Soffía Svanhvít kjörin forseti Hallveigar Soffía Svanhvít Árnadóttir var kjörin forseti Hallveigar – Ungs jafnaðarfólks í Reykjavík á föstudag. Hún tekur við af Pétri Marteini Urbancic Tómassyni sem hefur gengt stöðunni undanfarin tvö ár. 21.8.2023 10:06
Skín við sólu Skagafjörður eða stefnir í snjókomu? Þeir sem skoðuðu veðurspá fyrir Skagafjörð fyrir morgundaginn hafa rekið upp stór augu þegar þeir sáu að snjókomu var spáð frá klukkan 11 til 17. Að sögn veðurfræðings er biluðum hitamæli sennilega um að kenna. 20.8.2023 23:55
Bíll í ljósum logum á Miklubraut Slökkviliðinu barst tilkynning um bíl í ljósum logum á Miklubraut við göngubrúna við Grundargerði rétt hjá Skeifunni. Slökkviliðið segir alla farþega komna út úr bílnum og að verið sé að slökkva eldinn. 20.8.2023 23:17
Tesla Cybertruck á Íslandi Það sást til Cybertruck, óútkomins pallbíls frá Tesla, á Langjökli í gær. Á myndbandi frá jöklinum virðist sem verið sé að taka upp auglýsingu fyrir bílinn sem á að koma út á seinni hluta ársins. 20.8.2023 23:08