Engin ein ákveðin skýring á slöku gengi Íslands á HM samkvæmt Ásgeiri Erni Ásgeir Örn Hallgrímsson, fyrrum landsliðsmaður í handbolta og núverandi sérfræðingur Seinni bylgjunnar, fór yfir leik kvöldsins hjá íslenska landsliðinu þar sem ógnarsterkt lið Frakklands bíður átekta. 22.1.2021 13:30
FIFA segir að leikmenn evrópsku Ofurdeildarinnar muni ekki geta spilað á HM Alþjóðaknattspyrnusambandið, FIFA, hefur sett fótinn fyrir hurðina sem á að opna leið stórliða Evrópu að stofnun Ofurdeildar. Leikmenn þeirrar deildar myndu ekki fá leyfi sambandsins til að taka þátt í mótum á vegum þess. 22.1.2021 06:31
Dagskrá dagsins: Suðurnesjaslagur, tekst Chorley hið ómögulega í annað sinn og nóg af körfubolta Það má með sanni segja að það sé nóg um að vera á rásum Stöð 2 Sport á þessum líka fína föstudegi. Við sýnum beint frá golfi, körfubolta og fótbolta í dag. 22.1.2021 06:00
Birta í Breiðablik Birta Georgsdóttir er gengin í raðir Íslandsmeistara Breiðabliks. Hún kemur til Breiðabliks frá FH sem féll niður í Lengjudeildina síðasta sumar. 21.1.2021 23:16
Vítaklúður Alfreðs hjálpaði Neuer að jafna met Kahn Manuel Neuer, markvörður Bayern München og þýska landsliðsins, jafnaði um helgina met Oliver Kahn yfir fjölda leikja án þess að fá á sig mark. Getur hann þakkað Alfreð Finnbogasyni fyrir að þurfa ekki að bíða lengur. 21.1.2021 23:02
Barcelona þurfti framlengingu gegn neðri deildarliði og Atlético jók forystu sína á toppnum Tvö af betri liðum spænska fótboltans unnu torsótta sigra í kvöld. Atlético Madrid vann 2-1 útisigur á Eibar í úrvalsdeildinni og Barcelona marði neðri deildarlið UE Cornellá eftir framlengdan leik. 21.1.2021 22:45
Burnley batt enda á ótrúlegt gengi Liverpool á heimavelli Burnley vann Englandsmeistara Liverpool 1-0 í kvöld er liðin mættust í ensku úrvalsdeildinni. Þar með varð Burnley fyrsta liðið til að leggja Liverpool af velli á Anfield síðan 23. apríl árið 2017. 21.1.2021 22:00
Möguleikar lærisveina Alfreðs nánast úr sögunni eftir tap gegn Spánverjum Þýskaland tapaði með fimm marka mun gegn Spáni í milliriðli á HM í handbolta í kvöld. Lokatölur 33-28 og möguleiki Þýskalands á að komast upp úr milliriðli eitt lítill sem enginn eftir tap kvöldsins. 21.1.2021 21:19
„Við kolféllum á prófinu, því miður“ Ásgeir Örn Hallgrímsson, fyrrum landsliðsmaður í handbolta og sérfræðingur Seinni bylgjunnar, segir íslenska landsliðið hafa fallið á prófinu í leiknum gegn Sviss. Leikurinn tapaðist 20-18 og var sóknarleikur Íslands í molum frá upphafi til enda. 21.1.2021 20:00
KSÍ staðfestir Davíð Snorra sem nýjan þjálfara U21 landslið Íslands Knattspyrnusamband Íslands staðfesti nú rétt í þessu að Davíð Snorri Jónasson væri nýr þjálfari U21 landsliðs Íslands. Hann tekur við af Arnari Þór Viðarssyni sem tók við A-landsliði Íslands nýverið. 21.1.2021 19:00