Hæsta úthlutun Afrekssjóðs ÍSÍ frá upphafi Framkvæmdastjórn Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands samþykkti í gær tillögur stjórnar Afrekssjóðs ÍSÍ að úthlutun fyrir árið 2021. Styrkveitingar ÍSÍ til sambandsaðila nema rúmlega 515 milljónum króna og er um að ræða hæstu úthlutun Afrekssjóðs ÍSÍ frá upphafi. 29.12.2020 17:31
Metfjöldi smita í ensku úrvalsdeildinni Í nýjustu skimun ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu kom í ljós að alls eru átján aðilar, leikmenn eða starfsmenn félaganna, smitaðir af kórónuveirunni. Aldrei hafa fleiri greinst smitaðir í einni og sömu skimuninni. 29.12.2020 16:04
Wednesday lætur Pulis fara eftir aðeins tíu leiki Í gærkvöld tilkynnti enska B-deildarliðið Sheffield Wednesday að það hefði látið Tony Pulis fara eftir aðeins 45 daga í starfi. Alls stýrði hann liðinu í tíu leikjum. 29.12.2020 15:00
Costa fær að yfirgefa Atlético Atlético Madrid samþykkti í dag að rifta samningi framherjans Diego Costa. Samningurinn átti að renna út næsta sumar en verður nú rift svo Costa geti fundið sér nýtt lið er janúarglugginn opnar. 29.12.2020 14:31
Ánægð með að fara á lán til Svíþjóðar fyrst og stefnir á að vera best í heimi Í gær var staðfest að Sveindís Jane Jónsdóttir, landsliðskona í knattspyrnu, hafi samið við Þýskalandsmeistara Wolfsburg. Hún verður þó lánuð til Svíþjóðar fyrst þar sem hún mun leika með Íslendingaliði Kristianstad. 29.12.2020 13:00
PSG staðfestir brottrekstur Tuchel Franska knattspyrnuliðið Paris Saint-Germain hefur loks staðfest brottrekstur sinn Thomas Tuchel, þýska þjálfara liðsins, sem var rekinn á dögunum eftir tvö og hálft ár við stjórnvölin. 29.12.2020 10:46
Costa vill rifta samningi sínum hjá Atlético Diego Costa, framherji Atlético Madrid, vill rifta samningi sínum nú í janúar en samningurinn á að renna út næsta sumar. 28.12.2020 22:01
Alaba gæti leyst Ramos af hólmi hjá Real Samkvæmt heimildum The Athletic er Real Madrid næsti áfangastaður David Alaba. Gæti farið svo að hinn fjölhæfi Austurríkismaður myndi leysa fyrirliðann og goðsögnina Sergio Ramos af hólmi. 28.12.2020 20:00
Naomi Osaka og LeBron James valin íþróttafólk ársins hjá AP Fréttaveitan Associated Press, AP, valdi í dag tennisstjörnuna Naomi Osaka sem íþróttakonu ársins og körfuboltakappann LeBron James sem íþróttamann ársins. Eru verðlaunin veitt fyrir árangur innan sem utan vallar á árinu sem er að líða. 28.12.2020 19:00
Federer missir af Opna ástralska í fyrsta sinn á ferlinum Hinn 39 ára gamli Roger Federer mun missa af Opna ástralska meistaramótinu í tennis sem fram fer í febrúar vegna meiðsla. Er það í fyrsta sinn sem hann missir af mótinu á ferli sínum en hann hefur alls sex sinnum staðið uppi sem sigurvegari í Ástralíu. 28.12.2020 18:01