Lenda alltaf undir á útivelli en vinna samt Sigur Manchester United á Sheffield United í gærkvöld var tíundi sigur liðsins á útivelli í röð í ensku úrvalsdeildinni. Á þessu tímabili hefur liðið alltaf lent undir á útivelli en samt tekist að knýja fram sigur. 18.12.2020 15:30
Steinunn og Guðmundur Ágúst íþróttafólk ársins í Reykjavík Steinunn Björnsdóttir, handknattleikskona úr Fram og atvinnukylfingurinn Guðmundur Ágúst Kristjánsson úr GR eru íþróttakona og íþróttamaður ársins hjá Reykjavíkurborg árið 2020. 18.12.2020 15:16
Íslenska landsliðið fer til Póllands frá Færeyjum Knattspyrnusamband Íslands staðfesti í dag annan æfingaleik íslenska karlalandsliðsins næsta sumar. Sá er gegn Pólverjum þann 8. júní. Fer leikurinn fram í Poznan. 18.12.2020 15:01
Mikill meirihluti leikmanna vill halda áfram að krjúpa Leikmannasamtök knattspyrnumanna á Englandi hafa staðfest að stór meirihluti leikmanna deildarinnar vilji halda áfram að krjúpa fyrir leiki. Er þetta gert til að sýna stuðning í verki og sporna gegn kynþáttaníði. 18.12.2020 13:45
Valgeir þvær fötin í baðkarinu og stefnir á aðalliðið Hinn 18 ára gamli Valgeir Valgeirsson hefur æft með aðalliði Brentford nýverið en hann er á láni hjá félaginu frá HK. Valgeir býr á hóteli og hefur þurft að þvo föt sín í baðkarinu þar sem hann hefur ekki aðgang að þvottavél. 18.12.2020 12:46
Al-Arabi leikur til úrslita í fyrsta skipti í 27 ár Íslendingalið Al-Arabi leikur til úrslita í Emír bikarnum á morgun. Þó gengið í deildinni hafi ekki verið gott þá hefur liðinu gengið vel í bikarnum og er leikurinn besti möguleiki liðsins til að komast í Meistaradeild Asíu. 17.12.2020 18:00
Noregs- og bikarmeistarinn Ingibjörg í liði ársins | Myndband Landsliðsmiðvörðurinn Ingibjörg Sigurðardóttir var valin í lið ársins í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu hjá fréttastofunni NTB. 17.12.2020 17:00
Hönnuðu takkaskó sérstaklega fyrir konur Ida Sports er langt því frá stærsta íþróttavörumerki í heimi enda var það stofnað skömmu áður en kórónufaraldurinn skall á heimsbyggðinni. Sérstaða merkisins er hins vegar sú að það hannar takkaskó eingöngu fyrir kvenmenn. 17.12.2020 16:31
KR gæti leitað til Alþjóða íþróttadómstólsins Formaður knattspyrnudeildar KR segir félagið hafa tæmt allar leiðir innanlands og því sé eina sem félagið geti gert að leita til Alþjóða íþróttadómstólsins. 17.12.2020 15:35
Fjölga skiptingum ef leikmenn fá heilahristing og fjölga varamönnum Á fundi forráðamanna ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í dag var ákveðið að leyfa liðum að gera „fría“ skiptingu ef leikmaður hefur fengið heilahristing. Þá verður varamönnum fjölgað úr sjö í níu en skiptingum almennt ekki fjölgað. 17.12.2020 14:20