Fréttamaður

Samúel Karl Ólason

Samúel Karl er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Office-stjarna með ó­læknandi krabba­mein

Lucy Davis, sem er hvað þekktust fyrir að leika Dawn Tinsley, ritara í bresku Office, er með ólæknandi krabbamein. Þessu greindi leikkonan, sem er 53 ára gömul, frá í færslu á Instagram í dag og sagðist hún reyna að lifa sínu besta lífi á meðan hún getur það.

Skemmdir á nýrri vatns­leiðslu til Eyja

Tjón varð á nýrri vatnslögn til Vestmannaeyja þegar verið var að leggja hana um síðustu helgi. Lögnin kallast NSL-4 almannavarnalögn en útlagning hennar hefur verið stöðvuð á meðan verið er að greina stöðuna.

Pútín vildi ekkert fyrir Banda­ríkja­mann í rúss­nesku fangelsi

Yfirvöld í Rússlandi hafa sleppt bandarískum uppgjafarhermanni úr fangelsi. Robert Gilman hafði setið inni í meira en fjögur ár á grunni umdeildra ákæra og við slæmar aðstæður. Donald Trump segir Vladimír Pútín hafa samþykkt að sleppa honum í mannúðarskyni en Gilman er sagður vera mjög heilsulítill.

Dregur enn frekar úr líkum á samningi með skaða­bóta­kröfu

Donald Trump krafðist þess í dag að klerkastjórnin í Íran greiddi skaðabætur vegna þeirra sem hann sagði ríkisstjórnina hafa banað í stríðum, árásum og mótmælum í gegnum árin. Þá ættu þeir einnig að greiða skaðabætur til íbúa Líbanon, Sýrlands, Jemen og á Gasa. Þetta sagði Trump í kjölfar þess að ráðamenn í Íran fóru fram á skaðabætur vegna árása á Íran og að refsiaðgerðir yrðu felldar niður.

Fylgdust með rúss­neskum njósnara gefa út­sendara gjöf

Forsvarsmenn Sænsku öryggislögreglunnar Säpo segja að komið hafi verið í veg fyrir ráðabrugg rússneskra njósnara og útsendara þeirra úr sendiráði ónefnds Evrópuríkis. Markmið Rússanna mun hafa verið að hafa áhrif á stjórnmál í Svíþjóð og að kasta rýrð á ríkisstjórnina, Atlantshafsbandalagið og Evrópusambandið.

Aðal­lega „karlar að drepa aðra karla“

Einhver breyting virðist hafa átt sér stað hér á landi, hvað varðar manndrápsmál, um árið 2020. Þá fór slíkum málum að fjölga töluvert en erfitt er að greina einhverjar ástæður fyrir því. Helgi Gunnlaugsson, prófessor í félags- og afbrotafræði við Háskóla Íslands, segir eðli manndrápa hér á landi enn á þann veg að gerandi og fórnarlamb tengist með einhverjum hætti.

Billy Long kominn á klakann

Billy Long, sendiherra Bandaríkjanna hér á landi, tók formlega við embætti í dag þegar hann afhenti Höllu Tómasdóttur, forseta, trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Long vakti mikla athygli hér á landi þegar hann grínaðist í fyrra með það að ætla að gera Ísland að 52. ríki Bandaríkjanna, sem hann baðst svo afsökunar á.

Fólks­fjöldi á Hellis­sandi tí­faldast

Skipuleggjendur Eclipse Festival á Hellissandi búast við því að fólksfjöldi þar muni tífaldast meðan á hátíðinni stendur. Þegar er búið að selja um þrjú þúsund miða til gesta frá 75 þjóðum, sem eru væntanlegir í vikunni. Hátíðin er fimm daga tónlistar- og upplifunarhátíð sem hefst á miðvikudaginn.

Tollar kísilframleiðslu í Kína

Donald Trump tilkynnti í gærkvöldi tolla á fjölkristallaðan kísil og kísilafurðir frá Kína sem notaðar eru í framleiðslu sólarrafhlaðna og hálfleiðara. Markmiðið með þessum fimmtán prósenta tollum er að ýta undir innlenda framleiðslu í Bandaríkjunum en hann tekur þó ekki gildi fyrr en eftir þingkosningarnar í nóvember en kjósendur vestanhafs hafa ítrekað kvartað yfir hækkandi verðlagi í Bandaríkjunum.

Íranir segja við­ræður á lokametrunum

Ráðamenn í Íran segja að samkomulag um framtíðarstjórn Hormússunds sem erindrekar ríkisins hafa unnið að í Óman vera á lokametrunum. Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur gefið til kynna að samkomulag gæti verið opinberað í þessari viku. Opnun sundsins gæti verið stórt skref í að binda enda á átök Bandaríkjanna og Íran.

Sjá meira