Umferð eykst milli ára Umferð á Hringveginum eykst um eitt prósent milli ára samkvæmt mælingum Vegagerðarinnar á fyrstu sex mánuðum ársins. Telst sú aukning lítil þar sem árleg aukning frá árinu 2022 til 2025 nam 4,8 prósentum. 8.7.2026 06:31
Handtekinn eftir röð innbrota Alls gistu þrír fangageymslur Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Hún hafði afskipti af fjölmörgum ökumönnum í nótt og maður var gripinn eftir röð innbrota. 8.7.2026 06:30
„Þetta er eins og á tónlistarhátíð“ Haraldur Ólafsson, formaður Heimssýnar, sótti stofnfund samtakanna Áfram Ísland í gær. Bæði félög munu tala fyrir málstað nei-sinna í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB. Haraldur fagnar stofnun samtakanna: „Þetta er algjörlega dásamlegt, bestu tíðindi vikunnar.“ 7.7.2026 11:09
Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Næringarfræðingur sem var til viðtals í Bítinu í morgun rak upp stór augu þegar Sigmar Vilhjálmsson, þáttarstjórnandi, dró upp þrjá próteindrykki og próteinbúðing í nesti. „Ég er að keyra svolítið á þessu,“ viðurkennir Sigmar. Elísabet Reynisdóttir, næringarfræðingur, var þangað komin til að ræða fæðubótarefni. 6.7.2026 22:14
Gul viðvörun á Suðurlandi á morgun Gul veðurviðvörun tekur gildi á Suðurlandi í fyrramálið klukkan sex og stendur fram til klukkan fjórtán síðdegis. 6.7.2026 20:43
„Enginn búið til fleiri þjóðaratkvæðagreiðslur en ég“ Fjölsóttur stofnfundur samtakanna Áfram Ísland fór fram síðdegis. Um átta hundruð manns sóttu fundinn og var húsfyllir var í Sjálfstæðissalnum við Austurvöll. Samkvæmt fyrsta ræðumanni og fundarstjóra, Halldóri Benjamín Þorbergssyni, hafa á þriðja þúsund skráð sig í samtökin. 6.7.2026 19:58
Húsfyllir á stofnfundi hjá Áfram Ísland Stofnfundur Áfram Íslands fer fram í Sjálfstæðissalnum við Austurvöll. Samtökin munu tala fyrir málstað nei-sinna í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB. 6.7.2026 17:12
Fræða almenning í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar Landskjörstjórn og Netvís – Netöryggismiðstöð Íslands hafa tilkynnt um opnun nýrra vefsvæða í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu í lok ágúst um hvort taka eigi upp þráðinn á ný í aðildarviðræðum við Evrópusambandið, þrettán árum síðar. 6.7.2026 17:07
Tugþúsundir mótmæltu í Tirana Tugþúsundir Albana mótmæltu í höfuðborginni Tirana í gærkvöldi, þrítugasta og fimmta daginn í röð. Kallað er eftir afsögn forsætisráðherrans Edi Rama, stjórnarskrárumbótum og raunhæfum aðgerðum gegn spillingu í landinu. 5.7.2026 17:05
Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Árlega hlýtur einn landsmanna titilinn rauðhærðasti Íslendingurinn en sigurvegarinn í ár er Guðný Sverrisdóttir frá Hólmavík. Bæjarhátíðin Írskir dagar fór fram á Akranesi í vikunni og hefur val á rauðhærðasta Íslendingnum öðlast sinn sess sem fastur dagskrárliður. 5.7.2026 15:36