Fréttamaður

Sigurgeir Þorkelsson

Sigurgeir er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Skipuð rektor MH fyrst kvenna

Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, hefur skipað Helgu Jóhannsdóttur í embætti rektors Menntaskólans við Hamrahlíð. Helga er fyrsta konan til að vera skipuð rektor MH. Helga hefur starfað við skólann í yfir 30 ár sem kennari, konrektor og nú síðast sem settur rektor.

Þúsund ís­lensk ung­menni leggja undir sig Krít

Útlit er fyrir að rúmlega eitt þúsund íslenskir framhaldsskólanemar verði á grísku eynni Krít í byrjun júní. Stórt verkefni er að koma öllum til og frá eynni og þarf að nýta leiguflug til að ferja mannskapinn.

Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst fé­laga

Vörður hefur bætt frjósemisvernd við hefðbundnar sjúkdómatryggingar. Er það í fyrsta sinn á Íslandi sem tryggingavernd tekur á þessum vanda. Frjósemisverndin hefur það að markmiði að vera stuðningur við fólk ef það greinist með ófrjósemi og þarf að gangast undir frjósemismeðferð. Umræða um frjósemisvanda hefur aukist mjög á síðustu árum og er talið að einn af hverjum sex glími við ófrjósemi.

Sex kafarar látnir á Maldíveyjum

Yfirvöld á Maldíveyjum hafa fundið lík fjögurra ítalskra kafara sem saknað hafði verið síðan í síðustu viku. Hópurinn var frá háskólanum í Genóa og var þar til að sinna rannsóknum. Maldíveyjar eru sjálfstætt ríki staðsett í Indlandshafi og þykja búa yfir gífurlegri náttúrufegurð. Þar á meðal eru fjölskrúðug kóralrif sem hópurinn hugðist rannsaka.