
Yfirvöld Mexíkó kæra Google
Yfirvöld í Mexíkó hyggjast kæra tæknifyrirtækið Google fyrir að breyta nafni Mexíkóflóa í Ameríkuflóa á landakortunum sínum í Bandaríkjunum. Þetta sagði Claudia Sheinbaum, forseti Mexíkó.
Fréttamaður
Silja Rún er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.
Yfirvöld í Mexíkó hyggjast kæra tæknifyrirtækið Google fyrir að breyta nafni Mexíkóflóa í Ameríkuflóa á landakortunum sínum í Bandaríkjunum. Þetta sagði Claudia Sheinbaum, forseti Mexíkó.
Meðlimir Íbúasamtaka miðborgar Reykjavíkur (ÍMR) vilja láta endurskoða nýtt fyrirkomulag Reykjavíkurborgar um rafrænt eftirlit Bílastæðasjóðs með bílastæðum borgarinnar. Þeir óska einnig eftir betri sorphirðu og að rútumál miðborgarinnar verði tekin til skoðunar.
Maður um fertugt er grunaður um að hafa haldið erlendum ferðamanni í gíslingu í nokkrar klukkustundir auk þess sem hann hafi verið vopnaður byssu. Hann var úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald fyrr í dag af Héraðsdómi Reykjavíkur samkvæmt umfjöllun RÚV.
Stofnandi Kvikmyndaskóla Íslands segist ekki hika við að lögsækja Rafmennt skyldi félagið nota nafn Kvikmyndaskóla Íslands eða námskránna sem notast var við. Námskráin sé hans eigin hugarsmíð.
Margt var um manninn í miðborg Reykjavíkur í tilefni Verkalýðsdagsins. Fólkið safnaðist saman á Skólavörðustíg og gengu þau saman niður á Ingólfstorg. Þar var útifundur þar sem Karla Esperanza Barralaga Ocón starfskona í umönnun, trúnaðarmaður og stjórnarmaður í Eflingu og Jóhanna Bárðardóttir rafveituvirki, rafvirki og trúnaðarmaður RSÍ, tóku til máls. Viktor Freyr Arnarsson ljósmyndari fangaði stemninguna.
Prestar og djáknar kalla eftir mannúð og miskunnsemi stjórnvalda í málum barna sem „eiga allt sitt undir ákvörðunarvaldi íslenskra stjórnvalda .“ Þau óska eftir dvalarleyfi fyrir sautján ára kólumbískan dreng og lýsa yfir samstöðu við hann og fjölskyldu hans.
Þjóðaröryggisráðgjafa Donalds Trump Bandaríkjaforseta hefur verið bolað úr embætti eftir að hann bætti blaðamanni óvart í spjallhóp á samskiptaforritinu Signal þar sem háleynilegar upplýsingar komu fram.
„Ég var tæplega þrítug þegar ég ákvað að láta ekki staðalímyndir, fordóma og mótlæti hafa áhrif á það hvað ég ætlaði að verða þegar ég yrði stór. Ég skráði mig í nám á rafvirkjabraut í FB og í dag get ég sagt með stolti að ég er ein af ríflega hundrað konum sem hafa lokið sveinsprófi í rafvirkjun á Íslandi,“ segir Jóhanna Bárðardóttir, formaður Félags fagkvenna. Hún var meðal þeirra sem hélt ræðu á Verkalýðsdaginn í Reykjavík.
Forsætisráðherra lagði áherslu á samvinnu stjórnvalda og verkalýðshreyfingarinnar í ávarpi sínu á Verkalýðsdaginn. Flokkar líkt og Samfylkingin þurfi áframhaldandi stuðning til að starfa í þágu vinnandi fólks.
Aukin spenna er á milli Indlands og Pakistan vegna yfirráð í Kashmír héraðinu. Íslamskir vígamenn skutu 26 manns til bana á svæði Indlands. Landamærunum milli landanna hefur verið lokað.