Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Þeir Kai Havertz og Jurriën Timber áttu sinn þátt í 2-2 jafntefli Arsenal gegn Manchester City í toppslag ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í gær. Hvorugur þeirra átti þó eina einustu sendingu á samherja. 23.9.2024 08:01
Glæsimörk Mundu eftir tveggja ára bið Knattspyrnukonan Áslaug Munda var hetja Harvard-háskólaliðsins í gær þegar það gerði 2-2 jafntefli á útivelli gegn Santa Clara Broncos í bandaríska háskólaboltanum. 23.9.2024 07:37
Veðmál systkina til lykta leitt: „Veit að ég mun aldrei tapa fyrir honum“ „Ég veit að ég mun náttúrulega aldrei tapa fyrir honum,“ segir Eygló Rún Karlsdóttir sem ásamt bróður sínum, Óttari Gunnlaugssyni, keppir í fyrsta sinn í bakgarðshlaupi í dag. Refsing bíður þess sem kemst styttra og virðast systkinin afar misvel undirbúin. 21.9.2024 07:03
Var kennari og þjálfaði karlalið þegar hann stýrði kvennalandsliðinu Jörundur Áki Sveinsson, fyrrverandi landsliðsþjálfari kvenna og nú yfirmaður knattspyrnumála hjá KSÍ, mætti í heimsókn til Helenu Ólafsdóttur þar sem hitað var upp fyrir 3. umferð efri hluta Bestu deildar kvenna í fótbolta. 20.9.2024 15:16
Segir Arsenal sífellt betra en vill engar ásakanir um sálfræðistríð Pep Guardiola, stjóri Manchester City, vill ekki vera sakaður um neinn sálfræðihernað (e. mind games) en segir að Arsenal sé sífellt að verða betra lið undir stjórn Mikels Arteta. Liðin mætast í sannkölluðum stórleik í ensku úrvalsdeildinni á sunnudag. 20.9.2024 14:31
„Hún reif í mig og hraunaði yfir mig, á Marilegan hátt“ Ásdís Björg Pálmadóttir, vörumerkjastjóri í Sportvörum, er á leið í sitt fimmta bakgarðshlaup á morgun og ætlar sér að hlaupa að minnsta kosti hundrað kílómetra. Hún fékk góða aðstoð frá drottningu bakgarðshlaupanna, Mari Järsk, þegar hún rauf hundrað kílómetra múrinn fyrst. 20.9.2024 14:01
Aðeins einn löglegur dúkur svo Valur og FH byrja saman í Krikanum Það verður sannkölluð handboltaveisla í Kaplakrika 15. október þegar Íslendingaliðin Gummersbach, undir stjórn Guðjóns Vals Sigurðssonar, og Porto mæta þangað og spila við FH og Val í Evrópudeild karla. 20.9.2024 11:00
Arftaki Kristjáns óvænt hættur Svíar eru í leit að nýjum landsliðsþjálfara í handbolta eftir að Glenn Solberg tilkynnti óvænt að hann væri hættur, tveimur árum fyrir lok samningstíma. 20.9.2024 10:02
Víkingar spila á Íslandi í dagsbirtu Víkingur Reykjavík mun spila heimaleiki sína á Kópavogsvelli í Sambandsdeild Evrópu í fótbolta. Vegna ófullnægjandi flóðlýsingar munu leikir Víkings fara fram snemma dags. 20.9.2024 09:51
Sparkað eftir tapið rosalega gegn Bayern Þjálfarinn Sergej Jakirovic fékk bara að stýra Dinamo Zagreb í einum leik í Meistaradeild Evrópu í fótbolta í vetur því hann var rekinn eftir 9-2 tapið gegn Bayern München á þriðjudaginn. 19.9.2024 16:33
Bankastjóri Íslandsbanka: „Ég samdi við Brynju strax á fyrsta alvöru stefnumótinu...“ Atvinnulíf