Fréttamaður

Smári Jökull Jónsson

Smári Jökull er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Hafa ekki gefið Land­helgis­gæslunni upp stað­setningu Bandero

Áhöfn skipsins Bandero, skip hvalveiðiverndaraktívistans Paul Watson, hefur ekki orðið við beiðnum Landhelgisgæslunnar um að gefa upp staðsetningu skipsins sem sigldi inn í efnahagslögsögu Íslands í gær. Formaður Hvalavina hefur áhyggjur af komu skipsins til landsins.

Gefa ekki upp stað­setningu sína og Hildur boðar frekari niður­skurð

Áhöfn skips Paul Watson hefur ekki gefið Landhelgisgæslunni upp staðsetningu sína á Íslandsmiðum líkt og gæslan óskaði eftir í gær. Í fréttatímanum verður talað við formann Hvalavina sem hefur áhyggjur af komu skipsins og segir Hvalavini ekki styðja aðgerðirnar.

„Fólk sem er á bið á ekki að vera þjónustu­laust“

Formaður velferðarráðs Reykjavíkurborgar segir að breyta þurfi algjörlega hvernig NPA-þjónusta sveitarfélaga sé fjármögnuð og núrverandi staða sé óásættanleg. Þá séu tækifæri til að bæta aðra þjónustu við fólk með fötlun.

„Þegar við komum til Ís­lands munum við stöðva hann“

Landhelgisgæslan er í viðbragðsstöðu vegna mögulegrar komu skipsins Bandero til Íslands. Í myndbandi sem birt var á Facebooksíðu samtaka Paul Watson í gær segir hann að allt verði gert til að koma í veg fyrir að veiddir verði hvalir á meðan samtökin eru á Íslandi.

Þörf sé á að endur­hugsa fjár­mögnum NPA-þjónustu

Í hádegisfréttum verður rætt við formann velferðarráðs Reykjavíkurborgar sem segir að breyta þurfi algjörlega hvernig NPA-þjónusta sveitarfélaga sé fjármögnuð. Þá fjöllum við um andlega heilsu ungs fólks en þeim hefur fækkað á síðastliðnum áratug sem telja hana góða.

Verð­hækkanirnar von­brigði

Fjármálaráðherra telur tæpt að forsenduákvæði kjarasamninga haldi í haust en verðbólga hefur aukist þvert á spár. Hann segir það vonbrigði hversu mikið flugfargjöld hafa hækkað og segir grannt sé fylgst með því að lækkun olíuverðs á heimsmarkaði skili sér til neytenda.

Fella þurfi niður tungumálaþröskulda og auka traust á kerfinu

Yfirlæknir hjá samhæfingarmiðstöð krabbameinsskimana segir að fella þurfi þröskulda og auka traust á kerfum meðal erlendra kvenna hér á landi svo auka megi þátttöku þeirra í krabbameinsskimunum. Aðeins 25% kvenna með erlent ríkisfang mættu í boðaða skimun fyrir brjóstakrabbameini á síðasta ári.

„Við erum eitt þeirra landa sem skilja fisk­veiðarnar einna best“

Utanríkisráðherra Spánar segir Spánverja eiga Evrópusambandinu mikið að þakka og að uppbygging landsins frá því að það gekk í sambandið fyrir fjörtíu árum hafi að miklu leyti verið fjármögnuð með sjóðum ESB. Hann ræddi við Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur á opnum fundi í Norræna húsinu í dag.

Sjá meira