Daníel með slitna hásin Markvörðurinn Daníel Freyr Andrésson sleit hásin á æfingu með FH í vikunni. 15.8.2026 12:01
Þór/KA fær til sín leikmann frá Bandaríkjunum Þór/KA hefur gengið frá samningi við Lauren Lapomarda sem mun leika með liðinu út yfirstandandi tímabil. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Lapomarda er með bandarískt og ítalskt ríkisfang og kemur til Akureyrar frá Dallas Trinity FC í USL-deildinni í Bandaríkjunum. 15.8.2026 12:01
„Vona að allir sem voru á vellinum hafi fundið fyrir þessu“ „Þetta var ótrúleg upplifun og ég vona að allir sem voru á vellinum hafi fundið fyrir þessu í öllum líkamanum,“ segir Freyr Alexandersson, þjálfari Rosenborg, eftir að hans menn unnu dramatískan sigur á Noregsmeisturum Víking í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta í gærkvöld og það er óhætt að segja að íslenski þjálfarinn hafi verið sáttur við lokaflautið. 15.8.2026 11:30
Íslendingarnir ljúka keppni í einstaklingskeppni á EM Fjórir Íslendingar kepptu í undanrásum á næstsíðasta degi Evrópumeistaramótsins í morgun. Þar með hafa allir íslensku keppendurnir lokið keppni í einstaklingsgreinum. 15.8.2026 10:31
Torres fékk að sleppa æfingu til að ganga frá samningi við PSG Spænski knattspyrnumaðurinn Ferran Torres fékk í dag leyfi til að sleppa æfingu hjá Barcelona til að ganga frá félagaskiptum til Paris Saint-Germain. 12.8.2026 17:30
Um ótrúlegt met KR: „Langskemmtilegustu leikirnir“ KR-ingar slógu í gær 33 ára gamalt markamet. Liðið hefur nú skorað 64 mörk í Bestu-deildinni í aðeins átján leikjum. Það gerir 3,5 mörk að meðaltali í leik. 12.8.2026 13:00
„Mjög stoltur af sjálfum mér að hafa komist í gegnum þetta“ Knattspyrnumaðurinn Eggert Aron Guðmundsson segir að hnémeiðsli sem hann varð fyrir seint á síðasta ári hafi verið erfið og endurkoman tekið á. Hann hefur verið heill síðasta mánuðinn. 12.8.2026 10:03
„Búið að gerast á frekar fyndinn hátt hjá mér síðustu ár“ Hrannar Snær Magnússon stoppaði stutt við í Noregi en Víkingar festu kaup á honum í síðustu viku. Víkingar kaupa Hrannar frá norska félaginu Kristiansund og gerir leikmaðurinn fjögurra og hálfs árs samning við félagið eða út árið 2030. 11.8.2026 11:01
Kominn með samning við risafyrirtæki og fær eigin pílur Pílukastarinn Alexander Veigar Þorvaldsson er fyrsti Íslendingurinn sem fær samning við stórfyrirtæki í pílukastheiminum. Hann segir að samningurinn við Shots breyti miklu fyrir sig. 11.8.2026 10:00
Hilmar í úrslit í sleggjunni Sleggjukastarinn Hilmar Örn Jónsson er kominn í úrslit á EM í frjálsum eftir góða frammistöðu í sínum riðli í Birmingham í morgun. 10.8.2026 17:01