Helmingur íbúa vill úr landi Nærri helmingur Marokkómanna, eða 44 prósent, vill flytja úr landi. Þetta sýna niðurstöður skoðanakönnunar sem Arab Barometer gerði fyrir BBC News Arabic. 28.6.2019 06:45
Útlit fyrir að Íran brjóti gegn samningnum Ef fram heldur sem horfir mun Íran gerast brotlegt við ákvæði JCPOA-kjarnorkusamningsins innan fáeinna daga og eiga meira auðgað úran en samningurinn heimilar. Þetta hafði Reuters eftir erindrekum sem vitnuðu til gagna rannsakenda á vegum Sameinuðu þjóðanna. 28.6.2019 06:30
Tugir fórust í átökunum Tugir létust í átökum í Amhara-héraði Eþíópíu um síðustu helgi er uppreisnarmenn reyndu að steypa héraðsstjórninni af stóli. 27.6.2019 08:00
Bandaríkjamenn bjartsýnir á lausn deilunnar við Kína Fjármálaráðherra Bandaríkjanna segir viðræðurnar við Kínverja vera komnar níutíu prósent áleiðis. Forsetar ríkjanna tveggja munu hittast í Japan um helgina. Viðræðum var slitið í maí og bentu ríkin tvö hvort á annað. 27.6.2019 07:00
Fór á fund drottningar Hin nýja danska stjórn hefur birt átján blaðsíðna stjórnarsáttmála þar sem loftslagsmálin vega einna þyngst. 27.6.2019 07:00
Ekkert táragas til Hong Kong Stjórnvöld á Bretlandi ákváðu í gær að banna sölu á öllum verkfærum sem óeirðalögreglumenn nota, til að mynda táragasi, til Hong Kong. Sömuleiðis var kallað eftir rannsókn á átökum lögreglu og mótmælenda í kínverska sjálfstjórnarhéraðinu. 26.6.2019 09:00
Kynntu áætlun fyrir Palestínu Jared Kushner, tengdasonur og ráðgjafi Donalds Trump Bandaríkjaforseta, kynnti í gær áætlun Bandaríkjastjórnar um að fjárfest verði í palestínsku hagkerfi fyrir fimmtíu milljarða Bandaríkjadala og þannig sótt í átt að friði á milli Palestínu og Ísraels. 26.6.2019 08:00
Vill loforð um enga seinkun Útgöngu hefur áður verið frestað og Hunt sagt dagsetninguna sjálfa merkingarlausa. 26.6.2019 08:00
Trump segir að öllum árásum verði svarað af fullum krafti Forseti Írans segir Bandaríkjaforseta stríða við þroskahömlun eftir tilkynningu um nýjar þvinganir. Sá bandaríski segir yfirlýsinguna móðgandi og segir að hverri árás á bandarískt skotmark verði svarað af fullum krafti, í sumum tilfellum af gjöreyðingarmætti. 26.6.2019 07:30
Vilja að hætt sé við framsal Lögmenn Meng Wanzhou, fjármálastjóra kínverska tæknirisans Huawei, biðluðu í gær til Davids Lametti, dómsmálaráðherra Kanada, um að meðferð á framsalsbeiðni Bandaríkjanna á hendur Meng yrði hætt. Þetta sagði í fréttatilkynningu lögmannanna. 25.6.2019 08:00