Tvö prósent af fjárfestingum ríkisins voru græn Um tvö prósent af heildarfjárfestingu íslenska ríkisins geta talist til grænna fjárfestinga samkvæmt þröngri skilgreiningu á hugtakinu. Þetta kemur fram í svari fjármála- og efnahagsráðherra við svari Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur, þingmanni Viðreisnar. 1.7.2022 11:31
SÍ segir ráðuneytinu að vanda betur til verka með ÍL-sjóð Seðlabanki Íslands segir óheppilegt hversu lengi hefur dregist að setja reglugerð um úrvinnslu eigna og skulda ÍL-sjóðs og bankinn telur að reglugerðardrögin sem nú liggja fyrir séu óviðunandi. Þetta kemur fram í umsögn Seðlabankans. 30.6.2022 16:00
Ingólfur hættir sem forstjóri CRI, leita að alþjóðlegum stjórnenda Ingólfur Guðmundsson hefur látið af störfum sem forstjóri Carbon Recycling International (CRI) og leitar íslenska tæknifyrirtækið nú að alþjóðlegum stjórnanda til að taka við keflinu. Þetta staðfestir Þórður Magnússon, stjórnarformaður CRI, í samtali við Innherja. 30.6.2022 13:00
Lítil sem engin framvinda í innviðafjárfestingum lífeyrissjóða Þrátt fyrir að lífeyrissjóðir hafi sýnt áhuga á fjármögnun innviðaverkefna og haldið úti sérstökum sjóði fyrir innviðafjárfestingar í sjö ár hefur lítið sem ekkert gerst í þeim efnum. Hlutdeild sjóðanna í innviðum landsins er enn jafnlítil og hún var árið 2003. Þetta kom fram í máli Ólafs Sigurðssonar, framkvæmdastjóra Birtu lífeyrissjóðs, á ársfundi Landssamtaka lífeyrissjóða. 30.6.2022 09:36
Sýnataka skilaði Öryggismiðstöðinni 30 prósenta tekjuvexti Rekstrartekjur Öryggismiðstöðvar Íslands námu 6,1 milljarði króna á síðasta ári og jukust um rúmlega 30 prósent á milli ára. Tekjuaukninguna má einkum rekja til umsvifa í sýnatökum samkvæmt nýbirtum ársreikningi fyrirtækisins. 29.6.2022 12:40
Eigandi LEGO setur 5 milljarða króna í Kerecis Danska fyrirtækið KIRKBI A/S, eigandi LEGO vörumerkisins, mun fjárfesta 40 milljónum Bandaríkjadala, jafnvirði 5,3 milljörðum króna, í Kerecis og er íslenska fyrirtækið verðmetið á 73 milljarða króna í viðskiptunum. Þetta kemur fram í bréfi sem stjórn Kerecis sendi á hluthafa í gær og Innherji hefur undir höndum. 25.6.2022 07:56
Agnar hættir hjá Kviku og skuldabréfasjóðnum slitið Agnar Tómas Möller mun láta af störfum sem sjóðstjóri hjá Kviku eignastýringu samkvæmt heimildum Innherja. Í kjölfarið verður sérhæfða skuldabréfasjóðnum Kvika – Iceland Fixed Income Fund (IFIF) slitið og fjármunum skilað til hlutdeildarskírteinishafa. 24.6.2022 14:01
Stofnendur indó vilja bæta bankakjör heimila um tíu milljarða Haukur Skúlason og Tryggvi Björn Davíðsson, stofnendur indó, fengu að heyra fjölmargar ástæður fyrir því hvers vegna ómögulegt væri að stofna nýjan banka. Fjórum árum síðar er sparisjóðurinn kominn með starfsleyfi, aðgang að greiðslukerfi bankanna og stefnir að því að bjóða alla velkomna í viðskipti á seinni hluta þessa árs. Þeir hafa einsett sér að umbylta verðlagningu á bankamarkaðinum og telja að aukin samkeppni geti skilað heimilum landsins allt að 10 milljarða króna ábata. 18.6.2022 10:01
Síldarvinnslan bindur miklar vonir við uppganginn í fiskeldi „Við bindum vonir við að fiskeldi komi til með að verða ein af undirstöðuatvinnugreinum okkar í framtíðinni,“ segir Gunnþór Ingvason, forstjóri Síldarvinnslunnar, í samtali við Innherja um 15 milljarða króna fjárfestingu íslenska sjávarútvegsfélagsins í Arctic Fish. 15.6.2022 08:26
„Ég var einmana í gegnum allt þetta ferli“ Haraldur Þorleifsson, stofnandi hönnunarstofunnar Ueno, samþykkti kauptilboðið frá Twitter, lægsta tilboðið sem honum barst, vegna þess að hann sá fram á að geta haft jákvæð áhrif á umræðuna sem verður sífellt skautaðri. Í viðtali við Innherja segir hann að stærsta vandamál nútímans sé það hvernig molnað hefur undan samfélagssáttmálanum á undanförnum árum og að ekki sé gengið nógu langt í því að beita skattkerfinu til að útrýma fátækt. 11.6.2022 10:00