Kauphöllin
15 16 17 18 19 20 21 22 23 … 78 ›
Við þessar aðstæður myndast oft mikil kauptækifæri Íslenski hlutabréfamarkaðurinn hefur verið að fara í þveröfuga átt samanborið við alþjóðamarkaði. Erlendir fjárfestar hafa leitað í örugg rekstrarfélög. Þess vegna hafa fasteignafélög í nágrannalöndum okkar hækkað á meðan innlendir fjárfestar hafa selt þau „eins og enginn sé morgundagurinn.“ Við þessar aðstæður myndast oft mikil tækifæri, segir hlutabréfagreinandi. Innherji 21.3.2023 14:21
Alls ekki víst að óróleiki á fjármálamörkuðum hverfi í bráð Mikill titringur hefur verið á fjármálamörkuðum úti um allan heim í dag vegna yfirtöku á svissneska bankanum Credit Suisse um helgina. Hagfræðingur segir að það sé alls ekki víst að óróleiki á mörkuðum hverfi í bráð. Viðskipti innlent 20.3.2023 20:30
Stærstu hluthafar Bláa lónsins vilja ekki selja sig niður við skráningu á markað Stærstu hluthafar Bláa lónsins eru lítt áhugasamir um að losa um eignarhluti sína í félaginu í tengslum við áformaða skráningu á hlutabréfamarkað síðar á árinu og því horfir ferðaþjónustufyrirtækið fremur til þess að fara þá leið að auka hlutafé sitt. Erfiðar markaðsaðstæður réðu mestu um að hætt hefur verið við að stefna að skráningu félagsins núna á vormánuðum, að sögn stjórnarformanns Bláa lónsins. Innherji 20.3.2023 17:09
Tækifæri Kviku til vaxtar liggja nú fyrst og fremst á lánamarkaði Tækifæri Kviku til vaxtar liggja nú fyrst og fremst á lánamarkaði. Þótt engin sameining hafi verið á síðasta ári stækkaði efnahagsreikningur Kviku um 23 prósent. Eftir hraðan vöxt undanfarin ár er ekki ólíklegt að það dragi úr vexti félagsins. Kvika er nú stór á fjárfestingarbankamarkaði og fá tækifæri þar, segir í hlutabréfagreiningu. Innherji 17.3.2023 15:03
Stefna að skráningu Bláa lónsins í haust Stjórn Bláa lónsins, eins stærsta ferðaþjónustufyrirtækis landsins, hefur ákveðið að hefja undirbúning að því að skrá félagið í Kauphöllina í haust. Þetta staðfestir Úlfar Steindórsson, stjórnarformaður Bláa lónsins, í samtali við Innherja, en hann kynnti ákvörðunina á hluthafafundi félagsins í morgun. Innherji 17.3.2023 13:12
Telja fjármálakerfið hér standa traustum fótum Fjármálastöðugleikanefnd Seðlabankans telur að innlent fjármálakerfi standi traustum fótum. Þó hafa fjármálaskilyrði heimila og fyrirtækja farið versnandi vegna mikillar verðbólgu og hærri vaxta. Útlit er fyrir að verðbólga verði þrálát. Viðskipti innlent 15.3.2023 08:43
Ungir fjárfestar orðnir um þriðjungur af markaðnum Hluthöfum í fyrirtækjum í Kauphöllinni sem eru í aldurshópnum 20 til 39 ára hefur fjölgað umtalsvert á undanförnum árum. Hlutabréfaverð hækkaði talsvert á tímabilinu samhliða auknum áhuga yngri fjárfesta en heildarfjöldi hluthafa í skráðum félögum jókst samtals um meira en fimmtíu þúsund. Innherji 14.3.2023 07:01
Gjaldþrot banka í Kísildal smitast til fjármálamarkaða á Íslandi Gjaldþrot bankans Silicon Valley Bank í Bandaríkjunum hefur leitt til verðlækkana á hlutabréfamörkuðum um allan heim og breytt spám um stýrivaxtahækkanir. Hérlendis hafa verið umtalsverðar lækkanir á hlutabréfum og krafa á óverðtryggð ríkisskuldabréf lækkaði vegna væntinga um að Seðlabankinn hækki stýrivexti minna en áður var talið. Innherji 13.3.2023 16:40
Verðmetur Reginn 66 prósentum yfir markaðsverði Jakobsson Capital verðmetur fasteignafélagið Reginn 66 prósentum yfir markaðsverði. Erlend fasteignafélög hafa hækkað nokkuð það sem af er ári. „Íslensku fasteignafélögin hafa hins vegar fátt annað gert en að lækka í verði það sem af er ári,“ segir í verðmati. „Verðtryggt greiðsluflæði og stöðugleiki ætti að heilla fjárfesta öllum stundum en sérstaklega nú á tímum verðbólgu og óvissu.“ Innherji 13.3.2023 14:01
Útgildi sem afskræma umræðu um forstjóralaun Launakjör forstjóra skráðra félaga í Kauphöllinni hafa verið í kastljósinu á undanförnum vikum. Nú þegar flest fyrirtækin hafa skilað ársuppgjöri fyrir síðasta ári er fyrirsjáanlegt að fjölmiðlar fari ofan í saumana á því hvernig forstjórunum er umbunað og ekkert athugavert við það í sjálfu sér. Það gagnast hluthöfum viðkomandi fyrirtækja, sjóðfélögum lífeyrissjóða og samfélaginu í heild sinni að stórum atvinnufyrirtækjum sé veitt aðhald í þessum efnum. Klinkið 9.3.2023 15:44
Eyrir Invest tapaði yfir 80 milljörðum eftir mikið verðfall á bréfum Marels Mikil umskipti urðu á afkomu Eyris Invest á árinu 2022 samtímis verulegri lækkun á hlutabréfaverði Marels, langsamlega stærstu eign fjárfestingafélagsins, og nam tapið samtals um 83 milljörðum króna. Til að tryggja fjárhagsstöðuna þurfti félagið að ráðast í endurfjármögnun á skuldum sínum undir lok síðasta árs en virkir vextir á breytanlegu láni sem Eyrir fékk frá erlendum sjóðum eru 17,4 prósent. Innherji 9.3.2023 10:19
SKEL tókst að hrista sofandiháttinn af Orkunni, Skeljungi og Gallon Tekist hefur að hrista sofandiháttinn af Orkunni, Skeljungi og Gallon sem einkenndi rekstur þeirra að ákveðnu leyti á meðan fyrirtækin voru samofin, sagði Jón Ásgeir Jónsson, stjórnarformaður SKELJAR fjárfestingarfélags. Innherji 8.3.2023 14:23
Hringdu Kauphallarbjöllunni fyrir jafnrétti kynjanna Kvenforstjórar félaga í Kauphöllinni hringdu í morgun bjöllu í húsnæði Kauphallarinnar fyrir jafnrétti kynjanna í tilefni af Alþjóðadegi kvenna sem haldinn er í dag. Viðskipti innlent 8.3.2023 13:02
Um starfskjör forstjóra Reynslan hefur sýnt að sífellt er verið að bæta við kaupaukum í ýmsu formi til stjórnenda fyrirtækja í Kauphöllinni án þess að það komi niður á háum föstum launum, segir framkvæmdastjóri Gildis lífeyrissjóðs. Umræðan 7.3.2023 08:00
Ekki þörf á annarri hlutafjáraukningu og vegna metsölu „safnist upp“ fjármunir Eftir að hafa lækkað í verði um þrjátíu prósent á hálfum mánuði eftir birtingu ársuppgjörs Play hefur hlutabréfaverð flugfélagsins rétt úr kútnum síðustu tvo viðskiptadaga. Mikið gengisfall mátti einkum rekja til ótta fjárfesta um að Play þyrfti mögulega að ráðast að nýju í hlutafjáraukningu og að tekjur voru minni en vonir stóðu til. Forstjóri Play hafnar því að þörf sé á að auka hlutafé og vegna sterkrar bókunarstöðu „safnist upp“ fjármunir með vorinu. Innherji 7.3.2023 06:01
Á annan tug einkafjárfesta keyptu breytanleg skuldabréf á Alvotech Vel yfir tuttugu fjárfestar, einkum verðbréfasjóðir og lífeyrissjóðir, komu að kaupum á breytanlegum skuldabréfum upp á samtals um tíu milljarða sem Alvotech gaf út undir lok síðasta árs en innlendir einkafjárfestar voru um helmingurinn af þeim fjölda, samkvæmt gögnum um þátttakendur í útboðinu. Skuldabréfunum, sem bera 12,5 til 15 prósenta vexti á ársgrundvelli, má breyta yfir í almenn hlutabréf í árslok 2023 á genginu 10 Bandaríkjadalir á hlut en markaðsgengið er nú um 40 prósentum hærra, eða rúmlega 14 dalir. Innherji 6.3.2023 15:57
Kauphöllin opnar markað fyrir sígræna sjóði án líftíma Kauphöllin hefur sett á fót markað fyrir sérhæfða sjóði. Hann er fyrir sjóði sem eru sígrænir, sem sagt án líftíma, og eru markaðssettir til fagfjárfesta. Sambærilegar markaðir hafa notið vinsælda í Bretlandi og eru starfræktir á Norðurlöndunum þó í minna mæli, að sögn framkvæmdastjóra hjá Nasdaq Iceland. Innherji 6.3.2023 12:28
„Stjórnarmenn hafa ekkert að gera í tilnefningarnefndum“ Stjórnarmenn sem sitja í tilnefningarnefnd hjá sama fyrirtæki hafa augljóst forskot á aðra frambjóðendur til stjórnar og beina hagsmuni af tiltekinni niðurstöðu sem fer ekki endilega saman við hagsmuni fyrirtækisins, hluthafa þess eða annarra haghafa. Þetta segir Helga Hlín Hákonardóttir, meðeigandi hjá ráðgjafafyrirtækinu Strategíu, sem hefur um árabil veitt fagfjárfestum, stofnanafjárfestum og hinu opinbera ráðgjöf um stjórnarhætti og stefnumótun. Innherji 6.3.2023 07:00
Valentín Lago kemur nýr inn í stjórn Play í stað Auðar Bjarkar Spánverjinn Valentín Lago kemur nýr inn í stjórn flugfélagsins Play samkvæmt tillögu sem lögð verður til samþykktar á aðalfundi félagsins sem fram fer 7. mars. Lago kæmi inn í stjórnina í stað Auðar Bjarkar Guðmundsdóttur. Viðskipti innlent 3.3.2023 09:46
Markaðshlutdeild Varðar tvöfaldast á tíu árum og Sjóvá jók hlutdeild sína Markaðshlutdeild Varðar hefur vaxið hratt á síðustu árum á sama tíma og TM og VÍS hafa verið að gefa eftir. Forstjóri tryggingafélagsins segir enn tækifæri til vaxtar, einkum á fyrirtækjamarkaði, en ætla má að markaðsvirði Varðar hafi fjórfaldast frá kaupum Arion banka fyrir hartnær sex árum síðan. Innherji 3.3.2023 07:24
Leiga og verðbólga lækkaði hagnað Nova Heildartekjur fjarskiptafélagsins Nova jukust um 4,6% á árinu 2022 og fóru úr 12.083 í 12.641 milljónir króna milli ára. Þar af var 10% vöxtur í þjónustutekjum sem námu 9.110 milljónum króna á síðasta ári. Vöxturinn er sagður einkum tilkominn vegna fjölgunar viðskiptavina á árinu. Viðskipti innlent 2.3.2023 17:37
Alvotech tapaði rúmlega 73 milljörðum króna Alvotech tapaði 513,6 milljónum dollara árið 2022, rúmlega 73 milljörðum íslenskra króna. Heildartekjur á árinu voru 85 milljónir dollara og jukust um 45 milljónir milli ára. Viðskipti innlent 2.3.2023 09:18
Íslenskir vogunarsjóðir í varnarbaráttu á ári þar sem svartsýni réð ríkjum Íslenskir vogunarsjóðir fóru ekki varhluta af erfiðum markaðsaðstæðum 2022 þegar fjárfestar höfðu í fá skjól að leita og bæði skuldabréf og hlutabréf féllu í verði. Gengi allra sjóðanna, sem hafa fjárfestingarheimildir til að gíra skort- eða gnóttstöður sínar margfalt, gaf talsvert eftir, einkum sem fjárfestu í hlutabréfum, og þeir sem skiluðu lökustu ávöxtuninni lækkuðu um vel yfir 20 prósent, samkvæmt úttekt Innherja. Innherji 2.3.2023 07:00
Fjórði fjórðungur Festar „heldur erfiður“ en verðmat nokkuð yfir markaðsgengi Rekstur Festis á árinu 2022 gekk ágætlega, en fyrri hluti ársins var nokkuð betri en sá seinni. Seinasti fjórðungur ársins var heldur erfiður, afkoma af eldsneytissölu var slök og dagvörusvið gaf eftir undan kostnaðarþrýstingi, og heilt yfir var afkoma ársins örlítið undir væntingum, að sögn hlutabréfagreinenda. Innherji 1.3.2023 10:51
Sýn kaupir allt hlutafé móðurfélags Já Sýn hefur gengið frá samkomulagi um kaup á öllu hlutafé Eignarhaldsfélagsins Njálu, móðurfélags upplýsingatæknifyrirtækisins Já, sem rekur meðal annars vefsíðuna og appið ja.is ásamt því að veita upplýsingar í símanúmerinu 1818. Seljendur eru að stærstum hluta íslenskir lífeyrissjóðir. Innherji 28.2.2023 09:31
Fjárfestar selja í sjóðum þrátt fyrir viðsnúning á mörkuðum Fjárfestar losuðu um stöður sínar í helstu verðbréfasjóðunum á fyrsta mánuði ársins 2023 sem einkenndist engu að síður af verðhækkunum á mörkuðum eftir erfitt ár í fyrra. Í tíu skipti á síðustu tólf mánuðum hefur verið hreint útflæði úr innlendum hlutabréfasjóðum. Innherji 27.2.2023 10:21
VÍS minnkar enn verulega vægi skráðra hlutabréfa í eignasafninu Markaðsvirði skráðra hlutabréfa í eignasafni VÍS minnkaði samanlagt um liðlega fjóra milljarða á árinu 2022 samtímis erfiðum aðstæðum á mörkuðum og aukinni áherslu á að draga úr áhættu í eignasafni tryggingafélagsins. Vægi óskráðra hlutabréfaeigna VÍS er núna orðið nánast jafn mikið og skráðra hlutabréfa félagsins. Innherji 27.2.2023 07:00
„Af hverju ættum við að fara í þrot?“ „Af hverju ættum við að fara í þrot?“ spyr Birgir Jónsson, forstjóri flugfélagsins Play, sem kveðst þreyttur á sögusögnum um að félagið sé á barmi gjaldþrots. Hann segir að merki séu um að þrotlaus vinna sé farin að skila sér. Viðskipti innlent 25.2.2023 12:04
Íslensk stjórnvöld stundum „eins og eyðiland í Evrópu,“ segir forstjóri Brims Forstjóri og aðaleigandi Brims gagnrýnir íslensk stjórnvöld, sem hann segir að séu eins og „eyðiland“ í Evrópu, fyrir að neita að ræða við Rússland um nýtingu á veiðirétti Íslands í Barentshafi. Fyrirtækið skilaði metafkomu í fyrra samhliða hagstæðum markaðsaðstæðum fyrir sjávarafurðir og horfur fyrir þetta ár líta „þokkalega út.“ Innherji 24.2.2023 11:21
Agnar kemur inn í stjórn Íslandsbanka sem fulltrúi Bankasýslunnar Agnar Tómas Möller, sem starfaði síðast sem sjóðstjóri skuldabréfa hjá Kviku eignastýringu, kemur nýr inn í stjórn Íslandsbankabanka en bankinn á núna í viðræðum um samruna við Kviku. Er hann tilnefndur af Bankasýslunni, sem heldur utan um 42,5 prósenta hlut ríkisins í Íslandsbanka, en stofnunin fer núna með þrjá stjórnarmenn í stað fjögurra áður. Innherji 22.2.2023 19:46