Kauphöllin
18 19 20 21 22 23 24 25 26 … 78 ›
Algalíf skráð á markað eftir tvö ár Líftæknifyrirtækið Algalíf stefnir á skráningu á markað 2025. Þá var Baldur Stefánsson, framkvæmdastjóri og einn eiganda ráðgjafafyrirtækisins Hamrar Capital Partners, kjörinn stjórnarformaður Algalífs. Innherji 16.12.2022 13:47
Alvotech fær tíu milljarða fjármögnun til að greiða niður lán frá Alvogen Alvotech hefur gengið frá tíu milljarða króna fjármögnun, jafnvirði um 59,7 milljón Bandaríkjadala, í formi víkjandi skuldabréfa með breytirétti í almenn hlutabréf í Alvotech. Innherji 16.12.2022 10:07
LIVE seldi í Origo til Alfa Framtaks en heldur eftir stórum hlut Lífeyrissjóður verzlunarmanna seldi þriggja prósenta hlut í Origo til sjóðs á vegum Alfa Framtaks. Sá sjóður mun leggja fram yfirtökutilboð í upplýsingatæknifyrirtækið. Eftir söluna á lífeyrissjóðurinn tíu prósenta hlut í Origo. Innherji 15.12.2022 11:30
Nýtt skipulag „auki líkur á rekstrarbata“ og metur Sýn 27% yfir markaðsgengi Hagræðingaraðgerðir og breytingar á skipulagi Sýnar hafa mikil jákvæð áhrif á verðmat félagsins til hækkunar, að sögn hlutabréfagreinenda. Hann telur að nýtt skipulag, sem geri upplýsingagjöf skýrari og auðveldi kennitölusamanburð við önnur fjarskiptafyrirtæki, muni „skerpa fókus stjórnenda og auka líkur á rekstrarbata“ í náinni framtíð. Innherji 15.12.2022 09:46
Eftir þungt ár er farið að rofa til varðandi verðbólguhorfur erlendis Eftir þungt ár er farið að rofa til varðandi verðbólguhorfur erlendis. Bandaríski Seðlabankinn er því kominn nær endastöð þegar litið er til vaxtahækkana. Almennt eru betri verðbólguhorfur erlendis jákvæðar fyrir vöruverðbólgu á Íslandi en veiking krónunnar síðustu mánuði vinnur gegn þessari þróun að einhverju leyti, segir sjóðstjóri hjá Akta. Innherji 14.12.2022 16:13
Lífeyrissjóður Vestmannaeyja á meðal þeirra sem seldu í Origo til Alfa Framtaks Lífeyrissjóður Vestmannaeyja var á meðal þeirra sem seldu í Origo til sjóðs í rekstri Alfa Framtaks, rétt eins og lífeyrissjóðurinn Lífsverk. Lífeyrissjóðirnir Birta, Festa og Stapi voru ekki á meðal seljanda. Sjóðirnir þrír eiga samanlagt 21,4 prósenta hlut í Origo. Innherji 13.12.2022 12:02
Sjóður Alfa Framtaks gerir yfirtökutilboð í Origo og skoðar afskráningu félagsins Félag í eigu framtakssjóðs í rekstri Alfa Framtaks hefur keypt tæplega 26 prósenta hlut í Origo og hefur ákveðið að gera tilboð í alla útistandandi hluti félagsins fyrir 101 krónu á hlut. Það er jafnhátt og síðasta viðskiptaverð hluta Origo við lokun markaða á föstudag og verðmetur félagið á rúmlega 14 milljarða. Innherji 12.12.2022 08:23
Vöxtur í fyrirtækjaútlánum í fjármálakerfinu minnkaði um helming Eftir að umfang fyrirtækjaútlána í fjármálakerfinu hafði aukist umtalsvert á fyrri árshelmingi hægði nokkuð á vextinum á þriðja ársfjórðungi. Útlán til fyrirtækja bólgnuðu þá út um liðlega 44 milljarða króna sem er helmingi minni vöxtur en hafði mælst á öðrum ársfjórðungi. Innherji 12.12.2022 07:00
Ætla að endurskoða viðbrögð við erfiðum áföllum starfsfólks Sjávarútvegsfyrirtækið Brim hf segir miður hvernig mál sjómannsins Boga Theodórs Ellertssonar hafi þróast. Verkferlar verði skoðaðir en fyrirtækið tjái sig ekki um málefni einstakra starfsmanna. Viðskipti innlent 11.12.2022 21:57
Stormur á verðbréfamarkaði leiðir til að verðmat Sjóvar lækkaði um níu prósent Hinn fullkomni stormur á verðbréfamarkaði var á þriðja ársfjórðungi. Hann bitnaði á rekstri tryggingafélaga. Arðgreiðsla næsta árs verður væntanlega ekki há sem hefur umtalsverð áhrif á verðmat tryggingarfélaga að þessu sinni. „Að auki hefur ávöxtunarkrafa til eigin fjár rokið upp,“ segir í hlutabréfagreiningu. Innherji 10.12.2022 10:00
Alvotech á aðalmarkað Nasdaq á Íslandi Viðskipti með hlutabréf Alvotech færðust af First North markaðnum yfir á Aðalmarkað Nasdaq á Íslandi í morgun. Viðskipti innlent 8.12.2022 15:02
Nýtt tölvukerfi Nasdaq „að öllu leyti háð ákvörðunum erlendra aðila“ Nýtt tölvukerfi Nasdaq fyrir verðbréfaskráningu og -uppgjör sem hefur verið innleitt hérlendis er nú rekið frá Lettlandi en hýst í Svíþjóð. Það er „að öllu leyti háð ákvörðunum erlendra aðila.“ Mikið samstarf er þó milli seðlabanka Lettlands og Íslands og eru kröfurnar hinar sömu og gerðar voru þegar kerfið var rekið á Íslandi. Kerfi Verðbréfamiðstöðvar Íslands er hins vegar alfarið á Íslandi. Innherji 8.12.2022 14:34
Birkir Jóhannsson tekur við sem forstjóri TM af Sigurði Viðarssyni Birkir Jóhannsson hefur verið ráðinn forstjóri TM sem er dótturfélag Kviku banka. Hann tekur við af Sigurði Viðarssyni sem var ráðinn aðstoðarforstjóri bankans á mánudag samhliða umfangsmiklum breytingum á skipuriti og framkvæmdastjórn Kviku. Sigurður var forstjóri TM samfellt frá árinu 2007. Innherji 8.12.2022 09:39
Stundvísi komin yfir níutíu prósent Flutningatölur flugfélagsins Icelandair frá nóvembermánuði sýna aukningu á farþegum í mánuðinum á milli ára. Einnig var stundvísi félagsins 91 prósent. Viðskipti innlent 6.12.2022 22:32
Tveir stærstu lífeyrissjóðir landsins seldu í Íslandsbanka fyrir um milljarð Eftir að hafa stækkað stöðugt við hlut sinn í Íslandsbanka um langt skeið minnkuðu tveir stærstu lífeyrissjóðir landsins stöðu sína í bankanum í liðnum mánuði. Áætla má að sjóðirnir hafi selt bréf í Íslandsbanka fyrir hátt í einn milljarð króna. Innherji 6.12.2022 12:00
Af hverju kaupa fyrirtæki eigin hlutabréf? Þegar félag kaupir eigin bréf má oft túlka þá ákvörðun annars vegar á þann veg að forsvarsmenn fyrirtækisins telja ekki til staðar umfangsmikil hagkvæm fjárfestingatækifæri til vaxtar og hins vegar að forsvarsmenn fyrirtækisins telja að virði félagsins sé hærra en markaðsverð. Það sé því hagkvæmara fyrir fyrirtæki að kaupa eigin bréf í þeim aðstæðum heldur en að greiða út arð. Umræðan 6.12.2022 09:03
Lífeyrissjóðir vilja auka vægi erlendra hlutabréfa eftir lækkanir á mörkuðum Margir af stærstu lífeyrissjóðum landsins hafa sett sér það markmið að auka talsvert hlutfall erlendra hlutabréfa í eignasöfnum sínum á komandi ári, að því er lesa má út úr nýlega samþykktum fjárfestingastefnum sjóðanna. Sömu lífeyrissjóðir áforma meðal annars að minnka samtímis vægi eigna sinna í ríkisskuldabréfum og þá ráðgera einnig sjóðir eins og Gildi og LSR að leggja minni áherslu á innlend hlutabréf frá því sem nú er. Innherji 6.12.2022 06:31
Stokkað upp í stjórnendateymi Kviku og Sigurður tekur við sem aðstoðarforstjóri Gerðar hafa verið umfangsmiklar breytingar á skipuriti og framkvæmdastjórn Kviku banka. Þær fela það meðal annars í sér að Ármann Þorvaldsson, sem hefur verið aðstoðarforstjóri bankans, lætur af því starfi og mun einbeita sér að uppbyggingu á starfsemi Kviku í Bretlandi og við stöðunni hans tekur Sigurður Viðarsson en hann hefur verið forstjóri TM samfellt frá árinu 2007. Innherji 5.12.2022 09:45
IFS ráðleggur fjárfestum að halda bréfum í Sýn Gera má ráð fyrir að skipulagsbreyting Sýnar og einföldun í rekstri sem kynnt var í vikunni hafi „aðeins verið fyrsta breytingin“ á komandi mánuðum, að sögn greinenda. „Rekstur félagsins hefur ekki verið nógu sterkur og verður fróðlegt að sjá hvaða frekari plön nýju eigendurnir hafa til að bæta rekstur félagsins.“ Innherji 3.12.2022 11:05
Nýja flaggskipið höfðar vel til karlmanna Íslenska tölvuleikjafyrirtækið Solid Clouds hefur gefið út nýjan alþjóðlegan tölvuleik sem gerist í geimnum. Solid Clouds var skráð í íslensku kauphöllina í júní í fyrra og heldur nú úti tveimur tölvuleikjum en þessi nýjasti á að vera flaggskipið. Viðskipti innlent 2.12.2022 17:07
IFS mælir með sölu á hlutabréfum í Símanum IFS mælir með sölu á hlutabréfum í Símanum. Markaðsgengið er fjórum prósentum lægra en matsgengið. Reksturinn á þriðja ársfjórðungi gekk vel. Framlegðin batnaði samhliða auknu kostnaðaraðhaldi. Innherji 2.12.2022 16:00
Verðmetur VÍS töluvert lægra en markaðurinn Nýtt verðmat á VÍS er tíu prósentum lægra en markaðsgengi. Efnahagsaðstæður eru ekki hagfelldar tryggingafélögum um þessar mundir. Undanfarið ár hefur verið það versta á verðbréfamörkuðum í áratugi. Það er bæði neikvæð ávöxtun af hluta- og skuldabréfum. Auk þess er „kröftugur viðsnúningur“ í efnahagslífinu og mikil fjölgun ferðamanna. Við það fjölgar tjónum og það dregur úr afkomu af tryggingarekstri. „Til að toppa svo allt saman hefur ávöxtunarkrafa til eigin fjár hækkað hratt síðustu vikur.“ Innherji 2.12.2022 14:01
Róbert Wessman sest í stól forstjóra Alvotech Róbert Wessman, stjórnarformaður og stofnandi Alvotech, mun taka við starfi forstjóra félagsins eftir að Mark Levick forstjóri ákvað að biðjast lausnar. Viðskipti innlent 2.12.2022 07:05
Árið 2021 var „alger sprengja“ í rekstri Eimskips en árið í ár er „enn betra“ Rekstrarhagnaður Eimskips af gámasiglingum meira en tvöfaldaðist milli ára á fyrstu níu mánuðum ársins. Á sama tíma jókst magn í gámasiglingum einungis um tæp sjö prósent. Trúlega hafa verðhækkanir á flutningum á sjó á milli Evrópu og Bandaríkjanna stuðlað að afkombatanum. Samkvæmt upplýsingum frá Drewry Supply Chain Advisors hefur flutningaverð á leiðinni í ár hækkað um ellefu prósent til Rotterdam frá Bandaríkjunum og um 21 prósent til New York frá Rotterdam. Innherji 30.11.2022 17:30
Verðið í útboði Íslandsbanka var „eins gott og hugsast gat“ STJ Advisors, ráðgjafi Bankasýslunnar við söluna á Íslandsbanka, segir að ef reynt hefði verið að fá hærra verð en 117 krónur á hlut í útboðinu í mars, hefði skapast sú hætta að horfið yrði frá stórum hluta af pöntunum, þar á meðal frá „hágæða fjárfestum“ og núverandi hluthöfum. Allar nauðsynlegar upplýsingar sem máli skiptu um mögulega heildareftirspurn fjárfesta hafi legið fyrir þegar ákvörðun um leiðbeinandi lokaverð hafi verið tekin. Innherji 30.11.2022 14:08
Væntir frekari samruna fyrirtækja á næsta ári Líkur eru á frekari samþjöppun og samrunum fyrirtækja á næsta ári, einkum á sviði upplýsingatækni og sjávarútvegs- og matvælaiðnaði. Á sama tíma mun fjöldi fjölskyldufyrirtækja þurfa á meira fjármagni að halda til fjárfestinga. Innherji 29.11.2022 14:10
Ráðinn í starf framkvæmdastjóra eignaumsýslusviðs Reita Jón Kolbeinn Guðjónsson hefur verið ráðinn í starf framkvæmdastjóra Eignaumsýslusviðs Reita. Viðskipti innlent 29.11.2022 12:36
Stöðugildum fækkað og nýir framkvæmdastjórar ráðnir Stjórn Sýnar hefur samþykkt nýtt skipulag félagsins sem miðar meðal annars að því að bæta arðsemi félagsins, einfalda starfsemina og búa félagið undir frekari vöxt. Stöðugildum verður fækkað og nýir framkvæmdastjórar verða ráðnir. Viðskipti innlent 29.11.2022 09:04
Þrátt fyrir mikinn útlánavöxt er Kvika enn fjárfestingarbanki Sveiflur í afkomu Kviku varpa ljósi á að félagið er enn fjárfestingarbanki jafnvel þótt vægi útlána hafi vaxið hratt. Útlán Kviku hafa aukist um 45 prósent frá áramótum en á sama tíma hefur efnahagsreikningurinn vaxið um 21 prósent. „Stærri efnahagsreikningur og stærra útlánasafn leggja grunninn að stöðugri og sterkari grunnrekstri til framtíðar,“ segir í verðmati Jakobsson Capital. Innherji 28.11.2022 12:01
Fjárfestu seldu sig út úr verðbréfasjóðum fyrir meira en tíu milljarða Talsvert var um innlausnir fjárfesta í verðbréfasjóðum í október, einkum í sjóðum sem fjárfesta í skuldabréfum, þrátt fyrri að bæði vísitala hlutabréfa og skuldabréfa hafi hækkað í Kauphöllinni í síðasta mánuði. Óvenju miklar verðlækkanir samtímis útflæði á árinu þýðir að eignir skuldabréfasjóða hafa minnkað um 44 milljarða frá áramótum og ekki verið minni frá því í ágúst í fyrra. Innherji 28.11.2022 09:48