Gjaldþrot

Nýtt húsnæði Tölvuteks reyndist mikill dragbítur
Flutningar og breytingar á rekstri eru ekki síst ástæður þess að eigendur Tölvuteks munu óska þess að fyrirtækið verði tekið til gjaldþrotaskipta.

424 milljarða þrot Baugs
Rúmum áratug eftir að Baugur Group hf. var úrskurðað gjaldþrota í Héraðsdómi Reykjavíkur er skiptum á þrotabúinu nú lokið.

Gjaldþrot Smellinn nam 650 milljónum króna
Skiptum er lokið í þrotabú byggingafyrirtækisins Smellinn á Akranesi sem framleiddi einingarhús. Lýstar veðkröfur í búið námu 657 milljónum króna.

12 milljarða gjaldþrot fasteignafélags BM Vallá
Gjaldþrot Fasteignafélagsins Ártúns, sem stofnað var árið 2005 til að halda utan um fasteignir BM Vallá, nam tæplega 12 milljörðum króna.

Gjaldþrot Hraðbrautarfélags nemur rúmum milljarði
Rétt tæp þrjú prósent fengust upp í almennar kröfur í þrotabú fasteignafélagsins Faxafen ehf.

Smálánaþrotin námu hátt í hálfum milljarði
Skiptum er lokið á þrotabúi fyrirtækjanna Smálána og Kredia sem bæði voru úrskurðuð gjaldþrota fyrir nokkrum árum. Lýstar kröfur í búin tvö námu á fimmta hundrað milljónum. Smálánaváin lifir enn úr dönsku skjóli.

Kröfðu Smálán ehf. um 171 milljón
Skiptum í þrotabú smálánafyrirtækisins Smálán ehf., sem fór í þrot árið 2016, lauk í upphafi mánaðar.

Hneykslaðir á fordæmalausum sérsamningi WOW air við Isavia
Air Lease Corporation (ALC) segir að forsvarsmenn WOW air hafi samþykkt að afhenda Airbus farþegaþotu í apríl áður en til gjaldþrots íslenska flugfélagsins kom.

200 milljóna króna gjaldþrot byggingaverktaka
Skiptum í þrotabú byggingaverktakans Nova Buildings ehf lauk þann 16. apríl. Lýstum kröfum í búið námu 195 milljónum króna samanlagt en 97 milljónir króna voru samþykktar við skiptameðferðina.

Skiptastjóri frá helvíti í boði Arion banka
Mælikvarði Arion banka á vanhæfi skiptastjóra er vægast sagt sérkennilegur. Bankinn telur annan skiptastjóra WOW vanhæfan vegna þess að sem lögmaður stendur hann í málaferlum gegn dótturfélagi bankans.

Leigusalar hafa beðið með að breyta útliti WOW flugvéla
Skiptastjóri þrotabús WOW air segir mikinn þrýsting vera á þeim sem vilja kaupa rekstrarhlutann, bæði frá leigusölum flugvélanna sem bíða með að breyta útliti vélanna og frá þeim sem úthluta lendingarleyfum. Öllum lendingarleyfum WOW air hefur verið úthlutað tímabundið til annarra flugfélaga á meðan óvissa ríkir um framhaldið.

Toppfiskur í þrot og tugir missa vinnuna
Fjörutíu starfsmenn Toppfisks hafa leitað aðstoðar Eflingar vegna gjaldþrotsins.

Skiptafundur WOW air á Hilton
Búið er að boða til skiptafundar vegna gjaldþrots flugfélagsins WOW air, sem formlega var tekið til gjaldþrotaskipta í liðinni viku.

Rúmlega 470 misstu vinnuna í hópuppsögnum í mars
Uppsagnir hjá Wow air og aðrar uppsagnir vegna gjaldþrota eru þó ekki í þessum hópuppsögnum.

WOW air tekið til gjaldþrotaskipta
Sveinn Andri Sveinsson og Þorsteinn Einarsson hafa verið skipaðir skiptastjórar.

Vintris gjaldþrota
Ekkert fékkst upp í rúmlega 8 milljóna kröfur.

Gjaldþrot Aurláka nam 1,8 milljörðum
Gjaldþrot Aurláka ehf., félags í fullri eigu fjárfestisins Karls Wernessonar, nam alls rúmlega 1,8 milljörðum króna.

Byggingarfélag Hótels Varmalands í 350 milljóna þrot
Ekkert fékkst upp í rúmlega 350 milljóna kröfur í þrotabú byggingafélagsins Lava-Hótel Varmaland, sem skömmu fyrir gjaldþrotið tók upp heitið L.H.V. ehf.

Sólning á leið í gjaldþrot
Tekjur Sólningar námu tæpum tveimur milljörðum 2017 og hagnaðurinn tveimur milljónum.

73 milljóna gjaldþrot Hvíta riddarans
Ekkert fékkst upp í rúmlega 73 milljóna kröfur í þrotabú félagsins HR2015 ehf.

Kabbalah tórir þrátt fyrir gjaldþrotið
Ekkert fékkst upp í rúmlega 8 milljóna kröfur í þrotabú félagsins Kabbalah á Íslandi ehf, sem tekið var til gjaldþrotaskipta í fyrravor.

Sverrir grætur sína gjaldþrota starfsmannaleigu
Fyrrverandi eiganda starfsmannaleigunnar Proventus ehf. þykir miður hvernig fór fyrir rekstri fyrirtækisins.

114 milljóna gjaldþrot starfsmannaleigu Sverris
Lýstar kröfur í þrotabú starfsmannaleigunnar Proventus ehf. námu alls rúmlega 114 milljónum króna, ef marka má Lögbirtingablaðið í dag.

Ekkert fékkst upp í 25 milljóna gjaldþrot Hróa veitinga
Félagið lýst gjaldþrota árið 2014.

Margdæmdur „útfararstjóri“ jarðsetur enn eitt félagið
Margdæmdur fjárglæfra- og kynferðisafbrotamaður keyrði byggingafélag í þrot á tveimur mánuðum.

Starfsmenn Bílanausts sendir heim
Verslunum Bílanaust hefur verið skellt í lás.

Argentína keyrð í 137 milljóna gjaldþrot
Engar eignir fundust í búi BOS ehf., sem rekið hafði steikhúsið Argentínu við Barónstíg.

Gjaldþrot Kredia nam 252 milljónum króna
Engar eignir fundust í búi Credit one ehf., sem rekið hafði smálánafyrirtækið Kredia.

Segir sjálfsagt að Aron og Kristbjörg beri fjárhagslega áhættu eins og aðrir
Kolfinna Von Arnardóttir segir að hún hafi ítrekað reynt að semja við Aron Einar Gunnarsson og Kristbjörgu Jónasdóttur, en án árangurs.

Aron Einar fer fram á gjaldþrot Kolfinnu
Landsliðsfyrirliðinn telur Kolfinnu Von Arnardóttur hafa hlunnfarið sig í tengslum við fjárfestingu í fatamerkinu JÖR.