Skriðufall í Hítardal

Svæðið í Fagraskógarfjalli var á hreyfingu í einhvern tíma áður en skriðan féll
Veðurstofan segir að ekki sé hægt að útiloka að stórar skriður séu að verða tíðari vegna loftslagsbreytinga.

Heimamanna bíður það verkefni að finna nafn á nýja lónið sem er komið til að vera
Fullt hús var á íbúafundi í Lyngbrekku á Mýrum sem haldin var vegna skriðufalla í Hítardal um helgina.

Íbúafundur í Lyngbrekku vegna hamfaranna í Hítardal
Fundurinn er meðal annars ætlaður til upplýsingar fyrir þá íbúa sveitarfélagsins sem tengjast hamfarasvæðinu á einhvern hátt.

Nýr leigjandi að Hítará hyggst flytja klakfisk upp fyrir skriðuna
Nýr leigjandi að Hítará, sem tekur við ánni fyrir næsta veiðitímabil, ætlar að flytja klakfisk í stórum stíl upp fyrir skriðuna, sem féll nýverið yfir ána, í von um að klakið heppnist.

Afdrif laxveiði í Hítará er stærsta málið
Margra mannhæða hátt lag af aur og grjóti breiddi sig yfir hluta Hítarár þegar skriða féll úr Fagraskógarfjalli aðfaranótt laugardags. Gífurlegt tjón varð á beitar- og veiðilöndum. Alls óvíst er hvort hægt er að moka framburðinum til svo áin renni í sinn gamla farveg.

Heyrði mikla skruðninga í Hítárdal fyrir miðnætti á föstudag
Veiðimenn sem staddir voru í grennd við Fagraskógarfjalli nokkrum klukkutímum áður en að skriðan mikla féll í Hítardal á Mýrum snemma morguns á laugardag segjast hafa hafa orðið varir við skriðu úr fjallinu nokkrum klukkutímum áður en stóra skriðan féll.

Heppni að enginn hafi verið á veiðum á þeim stað sem skriðan féll
Ljóst er að veiðistaðir á svæðinu heyra sögunni til.

Hítará hefur fundið sér nýjan farveg
Íbúi í Hítardal segir vatnið leita út í Tálma, hliðará Hítarár. Það sé sá farvegur sem íbúar hafi verið að vona að áin fyndi sér fram hjá skriðunni.

„Þetta er bein afleiðing af þessum miklu rigningum“
Stór skriða féll úr Fagraskógafjalli í Hítardal snemma í morgun. Jarðfræðingur segir fall skriðunnar vera afleiðing mikils rigningarsumars.

Ótryggt ástand undir Fagraskógarfjalli
Slysavarnafélagið Landsbjörg er á svæðinu undir Fagraskógarfjalli og segir ástandið ótryggt.

Almannavarnir meta ástandið í Hítardal
Almannavarnir eru að meta ástandið í Hítardal eftir skriðufall.

Mikil grjótskriða úr Fagraskógarfjalli: „Stórt fjall í ánni“
Skriðan er sögð gríðarstór en hún féll snemma í morgun. Hítardalsá stíflaðist og hefur stórt lón myndast fyrir aftan skriðuna.