Björgunarsveitir

Fréttamynd

Á annan tug ferða­langa fastir á Holta­vörðu­heiði

Björgunarsveitir hafa verið boðaðar út norðan og sunnan Holtavörðuheiðar vegna á annan tug ferðalanga sem eru í að minnsta kosti fimm föstum bílum á heiðinni. Þó nokkuð hefur verið um að björgunarsveitir hafi aðstoðað ferðalanga sem hafa fest bíla sína í dag.

Innlent
Fréttamynd

Bjargað af þakinu eftir að bíllinn fór í kaf

Björgunarsveitin Berserkir var kölluð út í hádeginu í dag vegna ferðafólks sem hafði lent utan vegar á Snæfellsnesi, rétt austan Stykkishólms. Bíll þeirra fór hálfur í kaf og sat fólkið á þakinu þegar björgunarsveit náði til þeirra. Fólkið var flutt í Stykkishólm.

Innlent
Fréttamynd

Leituðu skjóls í Hreysinu

Björgunarsveitarmenn komu í gær tveimur skíðagöngumönnum til bjargar sem höfðu leitað sér skjóls í gömlu neyðarskýli við Hreysiskvísl, töluvert norðan Þórisvatns á Sprengisandsleið.

Innlent
Fréttamynd

Strætó fór út­af á Holta­vörðu­heiði

Strætisvagn fór út af veginum á Holtavörðuheiði á sjöunda tímanum í dag. Björgunarsveitirnar Húnar á Hvammstanga, Blanda á Blönduósi og Heiðar í Borgarfirði voru kallaðar út til aðstoða um fimmtán manns sem voru í vagninum.

Innlent
Fréttamynd

Tölu­verður við­búnaður vegna til­kynningar um kajak

Lögregla, björgunarsveit og slökkvilið var kallað út þegar tilkynning barst um kajak á hvolfi við Skildinganes í Reykjavík rétt eftir klukkan tíu. Eftir leit með dróna var aðgerðum hætt þegar viðbragðsaðilar höfðu leitað af sér allan grun. 

Innlent
Fréttamynd

Á sjötta hundrað lentu í vand­ræðum

Farþegar í á sjötta hundrað farartækja lentu í vandræðum undir Eyjafjöllum í gærkvöldi vegna skafrennings. Það var samvinnuverk að koma bílunum aftur af stað sem björgunarsveitir, Vegagerðin og bændur á svæðinu tóku þátt í.

Innlent
Fréttamynd

Gengu tíu kíló­metra til að geta óskað eftir að­stoð

Flugbjörgunarsveitin í Varmahlíð og björgunarsveitin Skagfirðingasveit á Sauðárkróki komu fjórum ferðamönnum til aðstoðar í gær sem höfðu fest bíla sína í Mælifellsdal. Fólkið gekk tíu kílómetra í 18 stiga frosti til að komast í símasamband til að láta vita af sér.

Innlent
Fréttamynd

Klappar fyrir ferða­löngunum í ó­veðrinu

Tugir sátu fastir í bílum sínum klukkustundum saman þegar ofsaveður reið yfir á þjóðvegi 1 milli Jökulsárlóns og Skaftafells í gær. Björgunarsveitir komu um tvö hundruð manns til aðstoðar. Björgunarsveitarmaður ber ferðalanga lofi sem hafi þurft að dúsa í bílum sínum í lengri tíma við erfiðar aðstæður.

Innlent
Fréttamynd

Hringvegurinn opinn á ný

Opnað hefur verið fyrir umferð um hringveginum á milli Kálfafells og Jökulsárslóns. Veginum var lokað vegna hríðarveðurs sem gekk þar yfir í gær og í nótt.

Innlent
Fréttamynd

Tvö hundruð manns bjargað af þjóð­vegi 1

Tuttugu og fimm björgunarsveitamenn komu um tvö hundruð manns til bjargar þegar ofsaveður reið yfir á þjóðvegi 1 milli Jökulsárlóns og Skaftafells í dag. Unnið er að því að koma fólkinu af fjöldahjálparstöð á Hofi í Öræfum að Hnappavöllum, þar sem það fær að gista í nótt.

Innlent
Fréttamynd

Hátt í hundrað á fjöldahjálparstöð

Hátt í þrjátíu manns hafa verið ferjaðir með bílum björgunarsveita á Suður- og Suðausturlandi á fjöldahjálparstöð í Hofgarði í dag. Um fjörutíu ökutæki sitja föst við Kotá.

Innlent
Fréttamynd

Týnda göngufólkið reyndist vera í Reykja­vík

Lögreglan á Suðurlandi óskaði eftir aðstoð björgunarsveita og Landhelgisgæslunnar vegna týndra göngumanna. Samferðarmaður þeirra hafði samband við lögreglu eftir að göngumenn skiluðu sér ekki. Þau reyndust hafa komið sér til Reykjavíkur án þess að láta vita af sér.

Innlent
Fréttamynd

Dæmi um að fólk hafi flúið upp í sveit

Sala björgunarsveita á flugeldum gekk mjög vel þessi áramótin. Fólk hafi almennt farið varlega við að skjóta þeim upp, en nokkrir leituðu á bráðamóttöku með áverka á augum. Loftgæði eru aftur komin í lag eftir mengaða nýársnótt. 

Innlent
Fréttamynd

Mikil­vægi björgunar­sveitanna

Við erum einstaklega lánsöm hér á landi að njóta öflugra björgunarsveita um land allt. Björgunarsveitirnar eru bornar uppi af sjálfboðaliðum og með stuðningi almennings, fyrirtækja og hins opinbera. Ég sé ekki hvernig samfélagið myndi standa að jafn öflugum neyðaraðgerðarflota og við búum yfir án þeirra.

Skoðun