Zuism

Kickstarter-bróðir fékk á aðra milljón úr Tækniþróunarsjóði
Ágúst Arnar Ágústsson var til rannsóknar vegna fjársvika á sínum tíma og Kickstarter-söfnun hans og bróður hans fyrir vindmylluverkefni var stöðvuð. Nú hefur hann fengið opinberan styrk fyrir nýsköpunarverkefni sem líkist öðru sem bræðurnir söfnuðu fyrir.

Zúistar krefja ríkið um dráttarvexti á tugum milljóna
Héraðsdómur vísaði skaðabótakröfu félagsins frá.

Zúistum fækkar um 37 prósent
Meðlimum trúfélags zúista á Ísland fækkaði um 37 prósent á tveimur árum.

Gáfu milljón til kvennaathvarfs
Kvennaathvarfið fékk í gær eina milljón króna í styrk frá trúfélaginu Zuism.

Zúistar vilja fleiri en upplýsa ekki fjárhag
Forstöðumaður zúista neitar að svara spurningum um fjármál trúfélagsins. Auglýsir þessa dagana eftir nýjum liðsmönnum til að ganga til liðs við félagið fyrir 1. desember svo sóknargjöld þeirra frá ríkinu skili sér til zúista.

Zúistar endurgreiða en gefa ekki upp hve mikið
Þeir sem hafa óskað eftir endurgreiðslu hjá félaginu hafa sumir hverjir greint frá því á Facebook að þeir hafi fengið 19.976 krónur endurgreiddar.

Zúistum fækkar í stríðinu um sálirnar og gjöldin
Andstæðir pólar zúista ýmist hvetja fólk til að skrá sig í trúfélagið eða úr því. Forstöðumaðurinn boðar endurgreiðslur sóknargjalda.

Zúistar vilja hefja endurgreiðslu á sóknargjöldum í nóvember
Trúfélagið Zuism, sem er undir stjórn Ágústs Arnar Ágústssonar, hyggst hefja endurgreiðslur á sóknargjöldum til meðlima félagsins upp úr miðjum nóvmeber.

Hvetja alla til að skrá sig úr Zúistum
Félag Zúista hefur mikið verið í umræðunni eftir að Fjársýsla ríkisins greiddi trúfélaginu út rúmar 53 milljónir króna sem haldið hafði verið eftir af sóknargjöldum frá því í febrúar í fyrra.

Svarar ekki gagnrýni forstöðumanns Zúista
Daginn sem Fréttablaðið sagði frá viðurkenningu á Ágústi Arnari Ágústssyni sem forstöðumanni Zuism skráðu 168 manns sig úr félaginu.

Um sjö prósent Zúista sögðu sig úr söfnuðinum á þriðjudag
Enn eru 2.385 manns skráðir í söfnuð Zúista.

Segir þá sem skráðu sig úr Zuism ekki fá greitt
Ágúst Arnar Ágústsson, forstöðumaður trúfélags zúista, segir starfsmann sýslumanns hafa gefið villandi upplýsingar og eytt gögnum um samskipti við keppinauta hans um völd í trúfélaginu. Boðar lofaða útgreiðslu sóknargjalda.

Segir að trúfélagsgjöld Zúista verði endurgreidd eða renni til góðgerðamála
Ágúst Arnar Ágústsson, sem nýverið var skráður forstöðumaður trúfélagsins Zuism eftir áralanga deilu, segir að trúfélagsgjöld þeirra sem skráð hafi sig í trúfélagið verði endurgreidd. Þá verði einnig í boði að ráðstafa sóknargjöldum til góðgerðarmála.

Kickstarter-bróðir fær forstöðumannsstól og 53 milljónir sem biðu Zúista
Ágúst Arnar Ágústsson, einn stofnmeðlima Zuism, er nú viðurkenndur sem forstöðumaður trúfélagsins eftir deilur og fær þar með aðgang að 53 milljóna króna sóknargjöldum.

Enn stjórnlaust hjá zúistum sem eiga nú um 50 milljóna króna sjóð
Enginn hefur enn náð stjórnartaumum í trúfélagi zúista eftir að innanríkisráðuneytið úrskurðaði í janúar síðastliðnum að Ísak Andri Ólafsson, sem verið hafði forstöðumaður frá 1. júní 2015, væri ekki réttmætur fyrirsvarsmaður félagsins.

Krefst formennsku hjá zúistum og kvartar undan sýslumanni
Inneign zúista hjá ríkinu á sóknargjöldum nálgast 50 milljónir króna. Stofnfélaginn Ágúst Arnar Ágústsson kvartaði til umboðsmanns Alþingis.

Vindmylla Kickstarter-bræðra komin í sölu
Bræðurnir Ágúst Arnar og Einar Ágústssynir, sem nefndir hafa verið Kickstarter-bræðurnir, hafa hafið sölu á vindtúrbínu. Fjármögnun verkefnisins fór fram á fjáröflunarsíðunni Kickstarter árið 2014 en á ýmsu hefur gengið frá því að söfnunin hófst.

Kickstarter-bræður fá ekki sóknargjöld zúista í bili
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur vísað frá máli stofnenda og skráðra forsvarsmanna trúfélags zúista á Íslandi á hendur ríkissjóði en málið var höfðað vegna 33 milljóna króna sóknargjalda sem ekki hafa verið greidd út til félagsins.

Meintir hrappar sitja um sóknargjöld zúista
Ekki er vitað hvort yfir 33 milljónir króna af skattfé sem renna áttu til zúista á Íslandi verði endurgreiddar sóknarbörnum eða fari til fyrrum forsvarsmanna félagsins. Innanríkisráðuneytið vinnur í málinu.

Dráttur á endurgreiðslum Zúista vegna kærumáls
"Verið er að vinna í málinu og við munum greina frá því hér þegar niðurstaða hefur fengist.“

Stofnendur zúista gera tilkall til sóknargjalda
Núverandi stjórn hefur heitið að endurgreiða sóknargjöld sem nema um 35 milljónum. Stofnendur hafa höfðað mál á hendur Ríkissjóði.

Félag Zúista á Íslandi í biðstöðu
Zúistar á Íslandi hafa ekki fengið að skrá rekstrarfélag sitt hjá ríkisskattstjóra.

Stundum barið á kirkjunni
Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, segir kirkjuna sterka í nærsamfélögum en í fjölmiðlum sé rætt um aðra kirkju, þessa sem er stofnun. Hún segir eðlilegt að traust minnki þegar einhver bregst manni.

Pírati leggur til að Litla-Hraun verði skráð sem nýtt trúfélag
"Ég var skráð utan trúfélags, en er nú orðin zúisti. Þetta er bara svo frábært hakk á kerfinu."

Flestir zúistar karlmenn á þrítugs og fertugsaldri
Sjötíu prósent félaga í Zuism eru fæddir á árunum 1984-1996.

Þjóðkirkjan verður af ellefu milljónum vegna zúista
Breyting á trúfélagaskráningu er töluverð frá október til nóvember. Mest fjölgar hjá zúistum og fækkunin er mest hjá þjóðkirkjunni.

Zúistar orðnir álíka margir og ásatrúarmenn
Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá eru meðlimir Trúfélags zúista orðnir fleiri en þrjú þúsund. Þeim fjölgaði í gær þrátt fyrir fréttaflutning RÚV um að meintir fjárglæframenn hafi komið að rekstrarfélagi zúista.

Fjöldi zúista hefur þrefaldast síðasta sólarhring
Voru 1124 síðdegis í gær en eru nú 2955. Hægt er breyta skráningu sinni í trú-og lífsskoðunarfélög til miðnættis í kvöld.

Framsóknarmaður fyrir austan telur fólk skrá sig í félag zúista til að fá pening í vasann
Stefán Bogi Sveinsson, fulltrúi Framsóknarflokksins í bæjarstjórn og bæjarráði Fljótsdalshéraðs, segir félag zúista ekki trúfélag heldur í besta falli áhugafélag um breytta löggjöf.

Zúistar orðnir fleiri en múslimar á Íslandi
Zúistar eru nú orðnir eitt af stærstu trúfélögum landsins og hefur þeim fjölgað um ríflega þúsund á tveimur vikum. Yfirlýst markmið zúista er að koma sóknargjaldakerfinu af og leggja félagið síðan niður