Viðskipti

Meiri samlegð af Newcastle
Þegar fyrirtæki eru keypt er gjarnan bent á að hagræðing náist fram með samlegðar-áhrifum. Erfitt er að sjá slíkt fyrir sér í kaupum Björgólfs Guðmundssonar og Eggerts Magnússonar á West Ham.
Fyrri til en danskurinn
Í Berlinske Tidende um helgina var grein þar sem því var velt upp hverjir gætu verið hver úr Matador þáttunum dönsku sem nú er verið að endurgera. Einn Íslendingur kemst á blað þar sem kandidat í Mads Skjern, en það er Jón Ásgeir Jóhannesson.

Löggild netkvittun hjá Atlantsolíu
Atlantsolía tók á föstudag í síðustu viku í notkun nýja gerð kvittana sem fást þegar dælulykill fyrirtækisins er notaður. Dælan sendir kvittun fyrir eldsneytiskaupum sem PDF-skrá í viðhengi í tölvupósti og eru þær gildir reikningar í bókhaldi fyrirtækja og einstaklinga.

Gengi 365 hf. heldur áfram að lækka
Gengi hlutabréfa 365 hf., sem áður var Dagsbrún, hefur lækkað um nærri 9,2 prósent í Kauphöll Íslands í dag. Þetta er annar dagurinn í röð sem bréfin lækka umtalsvert. Lækkunin í gær nam 8 prósentum miðað við lokagengi bréfa Dagsbrúnar áður en það félag breyttist í 365.

Glitnir tekur 49 milljarða króna sambankalán
Glitnir hefur skrifað undir þriggja ára sambankalán sem nemur um 550 milljónum evra eða 49 milljörðum íslenskra króna. Það er jafnframt stærsta sambankalán sem bankinn hefur tekið. 28 alþjóðlegir bankar og fjármálstofnanir frá tólf löndum taka þátt í láninu.

Actavis kaupir meirihluta í rússnesku lyfjafyrirtæki
Actavis hefur keypt 51 prósents hlut í rússneska lyfjafyrirtækinu ZiO Zdorovje. Kaupverðið er 47 milljónir evra eða um 4,2 milljarðar króna samkvæmt tilkynningu frá félaginu en þar af verður um helmingnum varið til að stækka verksmiðju ZiO og þannig auka framleiðslugetu fyrirtækisins.

Greiða rúmlega 14 milljarða fyrir West Ham United
Eggert Magnússon og félagar sömdu í dag um kaup á meirihluta í breska knattspyrnufélaginu West Ham United. Kaupverðið er 108 milljónir punda eða um 14 milljarðar króna.

Nafni Avion Group hf. breytt í Hlutafélagið Eimskipafélag Íslands
Óskabarn íslensku þjóðarinnar, Hf. Eimskipafélag Íslands, er á ný orðið hlutafélag í Kauphöll Íslands eftir að hluthafar samþykktu í morgun að breyta nafni Avion Group. Um leið hafa höfuðstöðvarnar verið fluttar úr Kópavogi í Sundahöfn í Reykjavík.

Þýska kauphöll sögð íhuga kaup á spænsku kauphöllinni
Þýska kauphöllin í Frankfurt, Deutsche Börse, er sögð íhuga að gera yfirtökutilboð í Kauphöll Spánar, Bolsa Y Mercados Espanoles. Ekki er nákvæmlega tilgreint hversu hátt tilboð Deutsche Börse er að öðru leyti en því að það hljóðar upp á 33 evrur á hlut.

Moody’s staðfestir skuldabréfaútgáfu ríkissóðs
Lánshæfisfyrirtækið Moody’s hefur gefið út lánshæfiseinkunn Aaa fyrir nýja skuldabréfaútgáfu ríkissjóðs Íslands til fimm ára að fjárhæð 1 milljarður evra eða 90,80 milljarða íslenskar krónur.Horfur fyrir lánshæfismatið eru stöðugar.

Nasdaq fer í óvinveitta yfirtöku á LSE
Stjórn bandaríska hlutabréfamarkaðarins Nasdaq ákvað í dag að gera óvinveitt yfirtökutilboð í kauphöllina í Lundúnum í Bretlandi (LSE) eftir að stjórn LSE ákvað að taka ekki yfirtökutilboði markaðarins fyrr í dag.

Trichet varar við aukinni verðbólgu
Jean-Claude Trichet, bankastjóri evrópska seðlabankans, varaði við því á fundi seðlabankastjóra 10 stærstu iðnríkja heims í Ástralíu í dag að verðbólga geti farið úr böndunum á næsta ári þrátt fyrir lækkun á eldsneytisverði. Hann sagði bankann fylgjast grannt með þróun mála í Evrópu.

Íslandsdagur í Kauphöllinni í New York á morgun
Geir H. Haarde forsætisráðherra tekur á morgun þátt í Íslandsdegi í Kauphöllinni í New York (New York Stock Exchange) en hann hélt utan í dag vegna þess. Ráðherra mun flytja ávarp og eiga fund með fulltrúum Kauphallarinnar og aðilum úr íslensku og bandarísku viðskiptalífi ásamt því sem hann mun hringja út viðskiptin í Kauphöllinni síðdegis.

LSE hafnaði yfirtökutilboði Nasdaq
Stjórn Kauphallarinnar í Lundúnum í Bretlandi (LSE) hafnaði í dag yfirtökutilboði bandaríska hlutabréfamarkaðarins Nasdaq í alla hluti LSE. Tilboðið hljóðaði upp á 2,7 milljarða punda eða 357 milljarða íslenskra króna. Þetta var í annað sinn sem Nasdaq gerir tilboð í LSE.

Rekstur Esso og Bílanausts sameinaður
Eigendur Olíufélagsins Esso og Bílanausts og dótturfélaga hafa ákveðið að sameina rekstur félaganna snemma á næsta ári. Þetta var tilkynnt á fundi með starfsmönnum beggja félaga í dag en hvort tveggja er í eigu eignarhaldsfélagsins BNT.

Eigendur Olíufélagsins og Bílanausts sameina reksturinn
Eigendur Olíufélagsins hf. og Bílanaust hf. hafa ákveðið að sameina rekstur félaganna snemma á næsta ári. Bæði félögin eru í fullri eigu BNT hf.
Stærsti koparframleiðandi í heimi verður til
Bandaríska námafyrirtækið Freeport-McMoran hefur ákveðið að kaupa samkeppnisaðila sinn Phelps Dodge fyrir 25,9 milljarða bandaríkjadali eða 1.830 milljarða íslenskra króna. Með viðskiptunum verður til stærsti koparframleiðandi í heimi.

Nasdaq gerir yfirtökutilboð í LSE í annað sinn
Bandaríski hlutabréfamarkaðurinn Nasdaq hefur gert yfirtökutilboð í alla hluti Kauphallarinnar í Lundúnum í Bretlandi. Tilboðið hljóðar upp á 2,7 milljarða punda eða 357 milljarða íslenskra króna. Búist hefur verið við skrefi sem þessu hjá Nasdaq en markaðurinn hefur þegar keypt 28,75 % hlutafjár í LSE.

365 hf. ekki skráð í vísitölu Kauphallar í dag
Skipting Dagsbrúnar hf. í tvö félög, Teymi og 365 hf., sem samþykkt var á hluthafafundi félagsins sl. föstudag, veldur því að ekki er til viðskiptasaga fyrir 365 hf. í núverandi mynd. 365 hf. mun því ekki verða í hlutabréfavísitölum Kauphallarinnar í dag. Hlutir Teymis verða hins vegar skráðir í kauphöllina.
SP-Fjármögnun - Eignarhaldsfélagið kaupir ráðandi hlut í Verði
Eignarhaldsfélagið ehf. keypti í dag 98% hlutafjár í Verði Íslandstryggingu hf. Kaupin eru háð samþykki Fjármálaeftirlitsins um að kaupendur fari með ráðandi hlut í félaginu. Samhliða kaupunum mun Guðmundur Jóh. Jónsson verða ráðinn framkvæmdastjóri félagsins.

Bretar verjast yfirtöku Þjóðverja
Breska gervihnattasjónvarpsstöðin BSkyB hefur keypt 17,9 prósenta hlut í ITV, einu stærsta einkarekna sjónvarpsfélagi Bretlands. Kaupverð nemur 940 milljónum punda eða 124,3 milljörðum íslenskra króna. Kaupin eru sögð vörn Breta gegn yfirtöku þýskrar sjónvarpsstöðvar á ITV.
Stjórnarformaður Visa International segir upp
Christopher Rodrigues, stjórnarformaður Visa International, hefur sagt upp störfum. Uppsögnin mun vera óánægja með almennt hlutafjárútboð í greiðslukortafyrirtækinu og skráningu þess á markað.

House of Fraser semur við birgja
Stjórn bresku verslanakeðjunnar House of Fraser ætlar að senda birgjum bréf í næstu viku þar sem þess er óskað að fyrirtækinu verði veittur afsláttur af vöruverði auk þess sem greiðslufrestur til birgjaverði lengdur.

Tvöfalda hagnaðinn
Hagnaður fjárfestingafélagsins Atorku Group nam rúmum 555 milljónum króna á þriðja fjórðungi ársins samanborið við 224 milljónir á sama tíma í fyrra. Séu öll félög Atorku tekin með skilaði samstæðan 32,2 milljóna króna hagnaði á tímabilinu. Félagið skilar uppgjöri í tvennu lagi, móðurfélagi annars vegar og samtæðu hins vegar.
Hands Holding til starfa
Sá hluti af fyrirtækjum innan gömlu Dagsbrúnar sem féll ekki að kjarnastarfsemi 365 og Teymis hefur verið settur í eignarhaldsfélagið Hands Holding sem fyrst kallaðist K2. Hluthafar félagsins eru Teymi, 365, Milestone og Straumur-Burðarás. Teymi er stærsti hluthafinn með hlut á bilinu 40-50 prósent.

Dagsbrún lýkur störfum
Félaginu verður skipt upp í tvö skráð rekstrarfélög, 365 á sviði fjölmiðla og afþreyingar en Teymi á sviði upplýsingatækni og fjarskipta. Jón Ásgeir Jóhannesson er nýr stjórnarformaður 365 en Þórdís Sigurðardóttir fer fyrir stjórn Teymis.

Peningaskápurinn ...
Uppskipting Dagsbrúnar þýðir að Dagsbrúnarnafnið er á lausu, en ekki var laust við að einhverjir firrtust við þegar félagið tók sér nafnið sem áður prýddi Verkamannafélagið Dagsbrún, en það rann svo með fleirum inn í Eflingu. (Svo er náttúrlega til Ungmennafélagið Dagsbrún í Austur-Landeyjum.)
Minna tap hjá Atlantic Petroleum
Atlantic Petroleum tapaði 257,8 milljónum danskra króna eða um 3 milljörðum króna á þriðja fjórðungi ársins. Þetta er talsvert betri afkoma en fyrir ári þegar félagið tapaði 2,5 milljörðum danskra króna eða 30 milljörðum króna.
Fræðibókaútgáfa skiptir um hendur
Bandaríska fræðibókaútgáfan John Wiley & Sons Inc greindi frá því í dag að félagið hefði keypt útgáfufyrirtækið Blackwell Publishing Holdings Ltd. Kaupverð nemur 572 milljónum bandaríkjadala eða rétt rúmum 40 milljörðum króna. John Wiley & Sons var stofnað árið 1807 og gaf meðal annars fyrst út bækur eftir þá Edgar Allan Poe og Herman Melville.

Kaupþing spáir 7,1 prósents verðbólgu
Greiningardeild Kaupþings spáir því í endurskoðaðri verðbólguspá sinni í dag að vísitala neysluverð hækki um 0,2 prósent í desember. Gangi spáin eftir fer 12 mánaða verðbólga hér á landi 7,1 prósent. Verðbólga mælist nú 7,3 prósent.