Viðskipti
Einn dalur á hvern haus
Fyrir aðalfund hátæknifyrirtækisins Flögu Group, sem er skráð í Kauphöllina, liggur fyrir tillaga að stjórnarmenn fái einn Bandaríkjadal í laun fyrir störf sín á síðasta ári. Einn dalur samsvarar um sjötíu krónum.

Volvo kaupir í Nissan Diesel
Sænski bílaframleiðandinn Volvo hefur keypt 13 prósenta hlut í japanska fyrirtækinu Nissan Diesel, sem framleiðir vöruflutningabíla. Kaupverðið nemur 1,5 milljörðum sænskra króna, jafnvirði rúmra 13,6 milljarða íslenskra króna.

Hráolíuverð lækkaði í dag
Hráolía lækkaði í verði á helstu mörkuðum í dag m.a. vegna upplýsinga um að olíubirgðir hafi aukist í Bandaríkjunum og komi í veg fyrir olíuskort vegna minni olíuframleiðslu í Nígeríu.

Ekki lokað á samruna kauphalla
Í síbreytilegu umhverfi og aðstæðum skoða menn stöðugt alla möguleika með tilliti til hvernig best sé að þróa kauphallir áfram, segir Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallar Íslands. Fram kom um helgina gagnrýni Sigurðar Einarssonar, stjórnarformanns Kaupþings banka, á að ekki skyldi gengið til sameiningarviðræðna við OMX kauphöllina fyrir áramót.
Nýr forstjóri ver bónusgreiðslur
Stig Vilhelmsson, nýr forstjóri Carnegie í stað Karin Forseke sem lét af störfum með óvæntum hætti fyrir skemmstu, hefur litlar áhyggjur af þeim fjölda starfsmanna og stjórnenda sem hafa yfirgefið Carnegie að undanförnu, enda sæki 750 manns um hvert starf sem losnar, og ver rausnarlegt bónuskerfi til starfsmanna.

Dregur úr vísitöluhækkun
Samkvæmt útreikningum Hagstofu Íslands er vísitala byggingarkostnaðar, reiknuð eftir verðlagi um miðjan mars, 325,9 stig. Það samsvarar 0,18 prósenta hækkun frá því í febrúar. Vísitalan gildir fyrir apríl.
Moodys staðfestir mat sitt
Alþjóðlega matsfyrirtækið Moodys Investors Service birti uppfært álit fyrirtækisins á lánshæfi Kaupþings banka.
Fjárfestir fyrir 1,1 milljarð
Eignarhaldsfélagið Norvest, sem er í eigu Jóns Helga Guðmundssonar í BYKO, hefur keypt hlutabréf í KB banka fyrir rúman 1,1 milljarð króna. Eignarhlutur Norvest og fjárhagslegra tengdra aðila nemur um tveimur prósentum af hlutafé KB banka.

Hráolíuverð lækkaði
Heimsmarkaðsverð á hráolíu lækkaði á helstu mörkuðum í gær m.a. vegna minni eldsneytisþarfar og aukinna hráolíubirgða í Bandaríkjunum. Sérfræðingar OPEC-ríkjanna spá áframhaldandi lækkun á hráolíuverði á næstu mánuðum.
Jóhann Ólafsson & Co kaupir Volta ehf
Jóhann Ólafsson & Co hefur keypt allt hlutafé í Volta ehf. Í kjölfarið fer í hönd áreiðanleikakönnun og munu eigendaskiptin fara fram þann 4. apríl næstkomandi.

Permira hættir við tilboð í HMV
Forsvarsmenn verðbréfasjóðsins Permira hafa ákveðið að draga til baka kauptilboð sitt í bóka- og tónlistarverslunarkeðjunni HMV. Lýstu þeir yfir vonbrigðum vegna þess að stjórn HMV ákvað í síðustu viku að taka ekki yfirtökutilboði sjóðsins upp á 210 pens á hlut, eða 845,4 milljónir punda.

Hráolía lækkaði í verði
Heimsmarkaðsverð á hráolíu lækkaði á helstu mörkuðum í dag m.a. vegna þess að talið er að eldsneytisþörf muni minnka á næstu mánuðum auk þess sem birgðir af hráolíu hafa aukist mikið í Bandaríkjunum. Sérfræðingar OPEC-ríkjanna spá áframhaldandi lækkun á hráolíuverði á næstu mánuðum vegna þessa.

Vísitala byggingarkostnaðar hækkar
Vísitala byggingarkostnaðar, reiknuð eftir verðlagi um miðjan mars, er 325,9 stig en það er 0,18 prósenta hækkun frá því í febrúar. Vísitalan gildir fyrir apríl, að sögn Hagstofunnar. Vísitala byggingarkostnaðar hefur hækkað um 4,2 prósent síðastliðna 12 mánuði.

Hlutabréf hækkuðu í Japan
Gengi hlutabréfa hækkaði talsvert í kauphöllinni í Tókýó í Japan í dag og hefur lokagildi Nikkei-225 hlutabréfavísitölunnar ekki verið hærra í sex vikur. Ástæður fyrir hækkuninni er útgáfa hagtalna í vikunni en búist er við að þar komi fram mikil hagnaðaraukning japanskra fyrirtækja á árinu.

Lánshæfi staðfest
Alþjóðlega matsfyrirtækið Standard & Poors staðfesti fyrir helgi lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs á langtímaskuldbindingum í erlendri mynt AA- og AA+ fyrir langtímaskuldbindingar í íslenskum krónum.

Íslensku bankarnir endurheimta traust í Evrópu
Vaxtaálag á bréf íslensku bankanna á eftirmarkaði skuldabréfa í Evrópu lækkaði dag frá degi í síðustu viku. Þróunin endurspeglar heldur jákvæðari tón í skrifum greiningardeilda og viðleitni bankanna til að leiðrétta misskilning.

Styrk staða áréttuð
Landsbanki Íslands sendi í gær upplýsingar um stöðu bankans til Kauphallar Íslands, en það var sagt gert í ljósi nýlegrar umræðu í erlendum fjölmiðlum og greininga á íslenskum efnahagsmálum og bankakerfinu hér.

Dræmar viðtökur á yfirtökutilboði
Actavis Group hefur sent stjórnendum króatíska semheitalyfjafyrirtækisins PLIVA óformlegt tilboð um kaup á öllu hlutafé félagsins, sem skráð er í kauphöllinni í Króatíu og London. Tilboðið kveður á um að greitt verði HRK 570 fyrir hvern hlut í félaginu, sem er um 35 prósenta yfirverð miðað við meðalgengi hlutabréfa félagsins síðustu þrjá mánuði. Markaðsvirði félagsins, að teknu tilliti til yfirverðs, er sagt vera um 1,6 milljarðar dollara eða um 110 milljarðar króna.

Verður þriðja stærsta samheitalyfjafyrirtækið ef af kaupum verður
Actavis Group gæti orðið þriðja stærsta samheitalyfjafyrirtæki í heimi innan nokkurra mánaða ef óformlegu tilboði félagsins í króatíska samheitalyfjafyrirtækið PLIVA verður tekið. Velta Actavis myndi aukast um 70 prósent og starfsmönnum fjölga um ríflega helming við kaupin.
Lítil verðbólga í samræmdri mælingu
Samræmd vísitala neysluverðs í ríkjum Evrópska efnahagssvæðisins hækkaði um 0,3 prósent milli janúar og febrúar meðan lækkaði hér um 0,2 prósent. Hér mælist 12 mánaða verðbólga í samræmdri mælingu þar sem ekki er tekið tillit til húsnæðisverðs 1,2 prósent.

Actavis býður í króatískt samheitalyfjafyrirtæki
Actavis Group hefur gert óformlegt tilboð í króatíska samheitalyfjafyrirtækið Pliva, sem skráð er í kauphöllinni í Króatíu og London. Markaðsvirði félagsins er um 1,6 milljarðar dollara eða um 110 milljarðar króna.

Stofnandi Opera í Noregi látinn
Geir Ivarsøy sem stofnaði Opera Software með Jóni S. von Tetzchner í Noregi árið 1995 lést fyrir um viku síðan eftir langvinna baráttu við krabbamein. Á vef Opera Software í dag er hans minnst, en Geir verður borinn til grafar í dag frá Grefsen kirkju í Osló.

Actavis býður í PLIVA
Actavis Group hefur sent stjórnendum króatíska semheitalyfjafyrirtækisins PLIVA, óformlegt tilboð um kaup á öllu hlutafé félagsins, sem skráð er í kauphöllinni í Króatíu og London.
FTSE yfir 6000 stig
FTSE, enska hlutabréfavísitalan fór yfir 6000 stig þegar Kauphöllin í Lundúnum opnaði í morgun. Það er í fyrsta sinn í 5 ár.
Samræmd vísitala neysluverðs 100,8 stig
Samræmd vísitala neysluverð í EES-ríkjunum var 100,9 stig í febrúar og hækkaði um 0,3 prósent frá fyrri mánuði. Vísitalan fyrir Ísland var 100,8 stig og lækkaði hún um 0,2 prósent frá fyrri mánuði. Verðbólga á Evrópska efnahagssvæðinu var mest í Lettlandi.

Hlutur í Livedoor seldur
Yasuhide Uno, forstjóri japanska kapalfyrirtækisins Usen Corp., ákvað í gær að kaupa sjálfur allan hlut Fuji Television Network í japanska netfyrirtækinu Livedoor fyrir 9,5 milljarða jena, jafnvirði 5,7 milljarða íslenskra króna. Lokað var fyrir öll viðskipti í kauphöllinni í Tókýó í Japan 18. janúar síðastliðinn þegar grunur vaknaði um misferli hjá stjórnendum fyrirtækisins.

Hermenn fá gervihné Össurar
Fjallað var um nýtt og háþróað gervihné gervilima- og stoðtækjafyrirtækisins Össurar í úttekt Los Angeles Times síðasta föstudag um stuðning stjórnvalda í Bandaríkjunum við hermenn sem tapað hafa útlim í Íraksstríðinu.

SAS hefur ekki keypt í Icelandair
SAS hefur neitað þeirri frétt sem birtist á vefsíðu tímaritsins Travel People að félagið hafi eignast hlut í Icelandair.

Meiri krónubréf
Þýski ríkisbankinn Rentenbank gaf út krónubréf fyrir 2 milljarða krónur á miðvikudag til tveggja ára og bera bréfin 9 prósenta vexti. Þetta er fyrsta útgáfa krónubréfa í mars og þriðja útgáfan frá því Fitch breytti horfum á lánshæfismati ríkisins úr stöðugum í neikvæðar.
Segir bankana standa vel
Greiningardeild hollenska bankans ABN Amro segir fjármögnun íslensku bankanna trausta og greiðslugetu næga.