Júdó

Sveinbjörn færist nær Tókýó 2020
Sveinbjörn Iura átti góðu gengi að fagna á Grand Slam Osaka mótinu í júdó sem haldið var í Japan um helgina. Hann nældi sér þar í mikilvæg stig í baráttunni um sæti á Ólympíuleikunum í Tókýó 2020.

Sveinbjörn mun hækka á heimslistanum
Sveinbjörn Iura komst í þriðju umferð í 81 kg flokki á heimsmeistaramótinu í júdó sem fram fer þessa dagana í Bakú í Aserbaídsjan. Sveinbjörn sat hjá í fyrstu umferð keppninnar, en mætti Cedrick Kalonga í annarri umferðinni.