
Kvöldfréttir

Barn á gjörgæslu, offframboð miðaldra karla og hjartnæmir endurfundir
Eitt barn er á gjörgæslu vegna E. coli-sýkingar sem rakin er til leikskólans Mánagarðs. Alls liggja sex börn inni á Barnaspítala Hringsins og talið er að tólf séu með sýkinguna. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður fjallað um málið og rætt við sérfræðilækni sem segir flest börnin mjög ung.

Sviptingar hjá Pírötum, sárir kennarar og óvenjuleg verðhækkun
Línur eru farnar að skýrast í framboðsmálum flokkanna fyrir kosningar og brátt fer að verða ljóst hverjir munu berjast um sæti á Alþingi Íslendinga. Sviptingar eru á lista Pírata sem kynntu niðurstöður prófkjörs síðdegis í dag. Við verðum í beinni frá prófkjörsfögnuði Pírata og heyrum frambjóðendum.

Ný könnun, frægir á þing og Íslandsmet í augsýn
Samkvæmt nýrri könnun Maskínu vill þjóðin sjá formenn flokka sem ekki voru í síðustu ríkisstjórn leiða þá næstu. Við förum yfir glænýja könnun í kvöldfréttum Stöðvar 2 og ræðum við þau sem flestir vilja sjá í embættinu – og fæstir.

Ásmundur og Ólöf ræða stöðuna á Stuðlum og framboðslistar Sjálfstæðisflokksins
Ekkert fæst gefið upp um eldsupptök í bruna á meðferðarheimilinu Stuðlum, þar sem sautján ára piltur lést í gær. Barnamálaráðherra og forstjóri Barna- og fjölskyldustofu koma í myndver til að ræða stöðuna í málaflokknum.

Stjórnlaus rasismi og spenna í Kraganum
Leigubílstjóri, innflytjandi frá Afganistan, varð fyrir árás í starfi í mánuðinum. Hann segist merkja skarpa breytingu, nú sé rasisminn nær stjórnlaus og hann er hræddur fyrir hverja vakt. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Fyrstu skoðanakannanir eftir stjórnarslit og öll auglýsingapláss uppbókuð
Fylgi Samfylkingarinnar, Pírata og Flokks fólksins minnkar milli mánaða á meðan Viðreisn bætir við sig töluverðu fylgi. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 rýnum við í fyrstu skoðanakannanirnar sem gerðar voru eftir að tilkynnt var um stjórnarslit.

Sögulegur fundur á Bessastöðum og átakanleg saga af Stuðlum
Ríkisráðsfundur hófst á Bessastöðum klukkan sex, þar sem ráðherrar Vinstri grænna biðjast formlega lausnar úr embætti. Við verðum í beinni útsendingu frá sögulegum fundi á Bessastöðum í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30.

Hinsti fundur ríkisstjórnar og uppstokkun hjá Play
Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Framsóknar og Vinstri grænna fundaði í síðasta skipti nú síðdegis, þar sem tilkynnt var að forsætisráðherra og fjármálaráðherra taki við ráðuneytum fráfarandi ráðherra Vinstri grænna. Við förum yfir vendingar dagsins í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30.

Þingkosningar í nóvember, viðbrögð VG og nýr íslenskur söngleikur
Halla Tómasdóttir forseti Íslands hefur fallist á þingrofs- og lausnarbeiðni Bjarna Benediktssonar forsætisráðherra. Gengið verður til þingkosninga 30. nóvember. Fjallað verður um nýjustu vendingar í pólitíkinni í kvöldfréttum.

Viðbrögð stjórnarandstöðunnar, rödd almennings og landsleikur
Ekki er einhugur um það meðal leiðtoga á Alþingi hvort forseti eigi að verða við ósk forsætisráðherra um þingrof eða hvort honum beri að biðjast lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt. Forseti Íslands ræddi við leiðtoga allra flokkanna í dag.

Viðbrögð VG við stjórnarslitum og stjórnarandstaða í kosningagír
Ríkisstjórnin er sprungin. Þetta varð ljóst á blaðamannafundi sem Bjarni Benediktsson forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins boðaði til með skömmum fyrirvara nú síðdegis. Hann gengur á fund forseta á Bessastöðum á morgun, og leggur til þingrof og kosningar í lok nóvember.

Óvissa um framtíð ríkisstjórnarinnar og milljarðasamningur í Kína
Framtíð ríkisstjórnarsamstarfsins er ekki ljós, en forystumenn stærstu stjórnarandstöðuflokkanna segjast tilbúnir í kosningar. Þeir útiloka ekki að mynda ríkisstjórn hvor með öðrum, fái þeir til þess umboð kjósenda.

Hver er framtíð ríkisstjórnarinnar?
Engin niðurstaða fékkst á þingflokksfundi Sjálfstæðisflokksins sem boðað var til í skyndi í dag. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 förum við yfir nýjustu vendingar í beinni útsendingu og spáum í stöðu og framtíð ríkisstjórnarinnar, sem er þrungin óvissu. Við ræðum við formann Sjálfstæðisflokksins og fáum Ólaf Þ. Harðarson stjórnmálafræðing í myndver.

Verkfallsnemendur með áhyggjur af náminu og tendrun jólageitarinnar
Ekki er útilokað að boðað verði til verkfalla í fleiri skólum en að óbreyttu leggja kennarar í átta skólum niður störf síðar í mánuðinum. Nemendur segjast spenntir að fá lengra vetrarfrí en hafa áhyggjur af áhrifum á námið.

Kvíðin í aðdraganda hamfara og spenna í þingheimi
Óttast er að fellibylurinn Milton, sem skellur á Flórída af fullum þunga í nótt, verði mannskæður og hafi katastrófískar afleiðingar víða í ríkinu. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður rætt við Íslending á hættusvæði sem segir biðina eftir hamförum kvíðvænlega.

Leynd yfir aðgerðum kennara og í beinni frá höllinni
Skæruverkföll eru fram undan í átta skólum samþykki kennarar verkfall í atkvæðagreiðslu sem er hafin. Ekki hefur verið gefið upp í hvaða skólum kennarar hyggjast leggja niður störf en formaður Kennarasambands Íslands mætir í myndver og segir frá fyrirhuguðum aðgerðum og stöðu deilunnar í beinni í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Stjórnlaus ásókn í megrunarlyf og „árás“ á flugvöll
Sala á lyfinu Ozempic, sem oft er notað til að stuðla að þyngdartapi, hefur meira en tuttugufaldast á einungis fimm árum. Sölutölur það sem af er ári gefa til kynna að notkun þyngdarstjórnunarlyfja sé enn að stóraukast. Læknir óttast of auðvelt aðgengi fólks að lyfjunum.

Heppni að ekki fór verr þegar tveggja ára drengur féll niður nokkra metra
Upphafi skólaárs hefur verið frestað í Líbanon vegna öryggisógnar í landinu. Íbúar í Beirút lýsa nóttinni sem skelfilegri vegna loftárása Ísraelsmanna sem eru sagðar þær umfangsmestu á svæðinu frá upphafi átakanna.

Átök í miðausturlöndum, ný forysta VG og mállýska unga fólksins
Beirút, höfuðborg Líbanon, er líkt við stríðssvæði. Ísraelsmenn og Hezbollah samtökin hafa gert árásir á báða bóga á landamærunum í dag á sama tíma og fólk á Gasasvæðinu er hvatt til að flýja. Lögregla þurfti að hafa afskipti af mótmælendum í Reykjavík á samstöðufundi fyrir Palestínu.

Blóðgjöf samkynhneigðra karla leyfð og ósáttar húsmæður
Samkynhneigðir karlmenn fá að gefa blóð hér á landi frá og með næsta ári. Heilbrigðisráðherra segir mikið ánægjuefni að þetta skref sé loks tekið.

Heilsugæslan til rannsóknar og síðasta farþegaflug júmbóþotu
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins rifti samningi sínum við Samgöngustofu, Fluglæknasetur og KSÍ um aðgang að sjúkraskrám eftir nýlegan úrskurð Persónuverndar. Rætt verður við forstjóra Persónuverndar í beinni í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Lækkaðir stýrivextir og óánægja með afnám kynjaskiptingar
Seðlabankinn lækkaði stýrivexti í fyrsta sinn í fjögur ár í morgun. Við ræðum við Breka Karlsson, formann Neytendasamtakanna í beinni í kvöldfréttum.

Nýjustu vendingar í Ísrael og bróðir í sárum
Íran skaut nú síðdegis eldflaugum að Ísrael. Neyðarástandi var lýst yfir í Ísrael og loftvarnarlúðrar ómuðu í helstu borgum. Svo virðist sem hættan sé liðin hjá í bili. Við förum yfir nýjustu vendingar fyrir botni Miðjarðarhafs í kvöldfréttum Stöðvar 2, sýnum myndir frá loftárás Írana og rýnum í stöðuna með Samúel Karli Ólasyni, fréttamanni.

Bylting í skólakerfinu og flugfreyja sem eyddi húsnæðissparnaðinum í flugnám
Menntamálaráðherra boðar nýtt og gríðarumfangsmikið matskerfi, sem taka á upp í grunnskólum á næsta skólaári. Kennarasambandið styður nýja kerfið heilshugar. Viðskiptaráð segir einfalt að gera breytingar á kerfinu, það þurfi að taka upp samræmd próf á ný.

Íbúar kalla eftir úrbótum á hættulegum gatnamótum við Sæbraut
Íbúar í Vogabyggð lýsa yfir miklum áhyggjum af gatnamótum Sæbrautar og Kleppsmýrarvegar, þar sem banaslys varð í nótt er ekið var á gangandi vegfaranda, og krefjast úrbóta. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum og rætt verður við G. Pétur Matthíasson, upplýsingafulltrúa Vegagerðarinnar.

Sundrun á hægri vængnum og örvænting meðal fyrstu kaupenda
Í kvöldfréttum Stöðvar 2 köfum við í pólitíkina en kosningabarátta er hjá flestum flokkum komin á fullt. Við heyrum í háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra sem er spennt fyrir ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Miðflokks.

„Skítastaða“ á Stuðlum, vongóðir nýliðar og búð þar sem allt er ókeypis
Vernda þarf börnin á Stuðlum fyrir hvert öðru en húsakosturinn býður ekki upp á aldursskiptingu að sögn framkvæmdastjóra hjá Barna- og fjölskyldustofu. Leitað sé logandi ljósi að nýju húsnæði en þangað til sé uppi „skítastaða“ eins og hann kemst að orði vegna óheillaþróunar. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Ráðþrota móðir, umtöluð rannsókn og skiltaþjófnaður
Móðir þrettán ára drengs, sem er með ADHD og fíknivanda, stendur bæði ráðþrota og örmagna frammi fyrir kerfinu. Hún segir galið að ekki sé aldursskipt úrræði í boði hjá Stuðlum. Þar hafi hann komist í kynni við eldri stráka í mun verri málum. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður rætt við móðurina sem segir engin úrræði í boði fyrir drenginn sinn.

Stórfelldur þjófnaður í matvörubúðum og slysahætta á „ævintýraeyju“
Erlend þjófagengi herja á búðir hér á landi og á síðasta ári nam andvirði þýfisins í matvöruverslunum um fjórum milljörðum króna. Þá hafa eldri konur orðið sérstaklega fyrir barðinu á skipulögðum glæpahópum í verslunum. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Tíðindi í glænýrri könnun, innbrotafaraldur og biðin sem sligar fjölskyldur
Talsverð tíðindi eru í glænýrri könnun Maskínu; þeirri fyrstu sem birtist eftir upphaf síðasta þingvetrar kjörtímabilsins. Heimir Már Pétursson rýnir í könnunina í kvöldfréttum Stöðvar 2 og ræðir við Svandísi Svavarsdóttur, formannsefni VG, sem telur rétt að stefna að kosningum í vor. Þá heyrum við í formönnum Miðflokksins og Flokks fólksins í beinni útsendingu.