Körfubolti
190 191 192 193 194 195 196 197 198 … 216 ›
Kína valtaði yfir Saudi Arabíu Kínverska landsliðið í körfuknattleik þurfti ekki á hjálp Yao Ming að halda þegar það valtaði yfir lið Saudi Arabíu á Asíumeistaramótinu í gær og sigraði 98-10. Sport 14.10.2005 06:42
Logi til Bayeruth Logi Gunnarsson, landsliðsmaður Íslands í körfuknattleik, hefur undanfarna daga verið til reynslu hjá þýska 1.deildar liðinu Bayreuth og vonast hann til þess að ganga frá samningum við liðið á næstu dögum. Sport 14.10.2005 06:42
Stórleikur í Njarðvík í kvöld Það verður stórleikur í Reykjanesmótinu í körfubolta í kvöld þegar Njarðvíkingar taka á móti nágrönnum sínum í Keflavík. Bæði lið vonast til að geta teflt fullskipuðum liðum í leiknum en erlendu leikmenn liðanna eru mættir á klakann og þá hafa landsliðsmenn snúið aftur úr verkefnum tengdum Evrópukeppninni. Sport 14.10.2005 06:42
Shaq aðstoðaði við handtöku Miðherjinn Shaquille O´Neal hjá Miami Heat hefur löngum sagt að hann ætlaði sér að fara út í löggæslu þegar hann lýkur keppni í NBA deildinni, en um helgina tók hann lögin í sínar hendur þegar hann varð vitni að því að ráðist var á tvo homma í Miami. Sport 14.10.2005 06:42
Höttur fær til sín nýja menn Hattarmenn hafa fengið nýjan bandarískan þjálfara til að stjórna liðinu í frumraun sinni í úrvalsdeild karla í körfubolta. Með honum kemur nýr leikmaður sem meðal annars reyndi fyrir sér í NBA-deildinni í sumar. Sport 14.10.2005 06:42
Ilgauskas semur við Cleveland Litháinn stóri, Zydrunas Ilgauskas hjá Cleveland Cavaliers, hefur undirritað nýjan fimm ára samning við liðið sem færir honum rúmar 50 milljónir dollara í laun. Ilgauskas var með mikla heimþrá þegar hann hóf að leika með liðinu á sínum tíma, en segist nú hvergi annarsstaðar vilja vera ein í Cleveland. Sport 14.10.2005 06:42
Betri laun í Keflavík Í dag kemur til landsins Bandaríkjamaðurinn Jason Kalsow en hann er búinn að semja við Íslandsmeistaralið Keflavík í körfubolta. Kalsow var eftirsóttur leikmaður og Keflavík hafði betur í baráttunni við lið frá Þýskalandi og Danmörku um þjónustu hans. Sport 14.10.2005 06:42
Þjálfari Jordan á leið til Íslands Þann 17-18. september næstkomandi mun körfuboltaþjálfarinn Bill Guthridge koma hingað til lands og halda námskeið í húsakynnum körfuboltaakademíunnar í Reykjanesbæ. Guthridge var um árabil þjálfari eins virtasta háskóla Bandaríkjanna, Norður-Karólínu, þar sem hann þjálfaði m.a. sjálfan Michael Jordan á sínum tíma. Sport 14.10.2005 06:42
Shaq lét hnefana tala Shaquille O´Neal, leikmaður Miami Heat, lét hnefana tala um helgina þegar hann var staddur í veislu í New York ef marka má fréttir úr New York Post í gær. Ölvaður maður er sagður hafa stjakað við konu hans í veislunni, með þeim afleiðingum að hann fékk íturvaxinn hnefa tröllsins í andlitið og stóð skiljanlega ekki upp aftur eftir það. Sport 14.10.2005 06:42
Milljónir söfnuðust í Houston Í gær var haldinn sérstakur fjáröflunarleikur í Toyota-Center í Houston, þar sem margar af helstu stjörnum NBA deildarinnar komu saman og söfnuðu fé fyrir fórnarlömb náttúruhamfaranna í Suðurríkjunum um daginn. Sport 14.10.2005 06:41
Rúlluðu upp Íslandsmeisturunum Kvennalið Grindavíkur lofar vissulega góðu fyrir veturinn en liðið hefur fengið til sín tvo mjög sterka leikmenn, endurheimt tvær uppaldar stelpur og æft gríðarlega vel undir stjórn nýja þjálfara síns Unndórs Sigurðssonar. Nú síðast vann Grindavík Íslandsmeistaralið Keflavíkur með 24 stiga mun, 70-46, í æfingaleik í Grindavík. Sport 14.10.2005 06:42
Ísland vann Rúmeníu í körfunni Íslenska landsliðið í körfuknattleik sigraði Rúmena með 80 stigum gegn 72 í Rúmeníu í gær. Magnús Gunnarsson var stigahæstur, skoraði 22 stig þar af 15 í síðari hálfleik. Logi Gunnarsson kom næstur með 13 stig. Íslendingar urðu í öðru sæti í riðlinum á eftir Dönum. Sport 14.10.2005 06:41
Geta ekki leikið í New Orleans George Shinn, eigandi NBA liðs New Orleans Hornets, segir að þó allir myndu helst vilja að liðið léki áfram í borginni, sé það einfaldlega ekki fræðilegur möguleiki. Fjöldi borga í Bandaríkjunum hefur boðið fram aðstoð sína og fljótlega mun liggja fyrir hvar liðið leikur heimaleiki sína í vetur. Sport 14.10.2005 06:41
Auerbach sagður á batavegi Red Auerbach, forseti Boston Celtics er sagður á batavegi eftir að hann var fluttur þungt haldinn á sjúkrahús fyrir helgina. Fregnir herma að hann hafi verið í dái og verið mjög illa á sig kominn, en nú segir talsmaður Boston að sá gamli sé að ná sér hægt og bítandi. Sport 14.10.2005 06:41
Ísland lagði Rúmeníu Íslenska landsliðið í körfuknattleik gerði góða ferð til Rúmeníu í dag og lagði sterkt lið heimamanna, 80-72. Það var Magnús Gunnarsson sem var stigahæstur í íslenska liðinu með 22 stig, þar af 18 í síðari hálfleik. Sport 14.10.2005 06:41
Ísland yfir í hálfleik í Rúmeníu Íslenska landsliðið í körfuknattleik var yfir 36-35 gegn Rúmeníu ytra, í lokaleik liðsins í Evrópukeppni landsliða. Logi Gunnarsson var stigahæstur í íslenska liðinu með 7 stig, en þeir Jón Arnór Stefánsson og Gunnar Einarsson eru ekki með vegna meiðsla. Sport 14.10.2005 06:41
NBA leikmenn styðja hjálparstarf Nokkrar af helstu stjörnum NBA deildarinnar í körfubolta hafa ákveðið að spila góðgerðaleik um helgina að frumkvæði fyrrum leikmannsins og sjónvarpsmannsins Kenny Smith, en allt fé sem safnast mun renna óskipt til fórnarlamba náttúruhamfaranna í suðurríkjunum á dögunum. Sport 14.10.2005 06:41
Danir í umspil þrátt fyrir tap Danska körfuknattleikslandsliðið er öruggt í umspil um laust sæti í A deild, þrátt fyrir tveggja stiga tap fyrir Rúmenum á heimavelli sínum í gærkvöld. Íslendingar leika við Rúmena ytra á laugardaginn og leggur af stað út í dag án tveggja manna sem eru meiddir. Sport 14.10.2005 06:41
Red Auerbach á sjúkrahúsi Körfuboltagoðsögnin Red Auerbach hefur verið fluttur alvarlega veikur á sjúkrahús, en ekki hefur verið gefið upp hvað amar að honum. Auerbach er 87 ára gamall og hefur unnið fleiri NBA titla en nokkur annar þjálfari í sögu deildarinnar. Sport 14.10.2005 06:41
Ming launahæstur í Kína Kínverski risinn Yao Ming, sem leikur með Houston Rockets í NBA deildinni í körfubolta, er launahæstur fræga fólksins í Kína samkvæmt Forbes blaðinu þar í landi. Sport 14.10.2005 06:41
Damon Jones til Cleveland Leikstjórnandinn Damon Jones hjá Miami Heat í NBA deildinni er við það að ganga í raðir Cleveland Cavaliers, ef marka má fréttir frá ESPN í Bandaríkjunum. Staðarblöð í Cleveland fullyrða að Jones sé við það að skrifa undir fjögurra ára samning við félagið. Sport 14.10.2005 06:41
Keflvíkingar semja við Kana Keflvíkingar sömdu í gær við Jason Kalsow frá Bandaríkjunum en kappinn er rétt rúmir tveir metrar á hæð. Kalsow er annar erlendi leikmaðurinn sem gengur til liðs við Íslandsmeistara Keflavíkur í körfuboltanum í sumar. Sport 14.10.2005 06:41
Fjölnismenn komnir með nýjan kana Fjölnismenn eru búnir að ná sér í bandarískan leikmann fyrir komandi leiktíð í úrvalsdeildinni en sá heitir Jason Clark og spilaði með Virginia-háskólanum í 1. deild bandaríska háskólaboltans. Sport 14.10.2005 06:40
17 stiga tap fyrir Dönum Danmörk sigraði Ísland, 77-60 í sveiflukenndum leik í Keflavík nú síðdegis í Evrópukeppni landsliða í körfubolta. Danir hafa þar með tryggt sér efsta sæti riðilsins en vonir Íslendinga um sæti í A-deild er nú úr sögunni. Ísland þurfti að vinna 11 stiga sigur í leiknum. Sport 13.10.2005 19:46
Ísland yfir gegn Dönum Ísland var 1 stigi yfir gegn Danmörku í Evrópukeppninni í körfubolta, 50-49 þegar tæpar 8 mínútur voru eftir að leik liðanna. Staðan var 48-47 fyrir Ísland að loknum 3. leikhluta en leikið er í Keflavík. Íslenska liðið þarf að vinna leikinn með 11 stiga mun eða meira til þess að eiga möguleika á að vinna riðilinn og komast í úrslitakeppnina um sæti í A-deildinni. Sport 13.10.2005 19:46
Ísland-Danmörk að hefjast Ísland og Danmörk mætast í Evrópukeppni landsliða í Keflavík nú kl. 14:00. Leikurinn er síðari leikur þjóðanna, en í fyrri leiknum í Árósum í fyrra voru það Danir sem sigruðu með 10 stiga mun. Ísland þarf því að vinna 11 stiga sigur í leiknum.. Sport 13.10.2005 19:46
Aldrei æft eins vel saman Jón Arnór Stefánsson og félagar hans í íslenska körfuboltalandsliðinu mæta Dönum í Keflavík í dag klukkan 14.00 í mikilvægasta leik síðari ára en hann getur haft úrslitaáhrif um hvaða lið vinnur riðilinn og fær í kjölfarið möguleika á að vinna sér sæti meðal A-þjóða. Sport 14.10.2005 06:40
Michael Finley valdi Spurs Eftirsóttasti leikmaður NBA deildarinnar með lausa samninga, Michael Finley, gaf það út í gærkvöldi að hann myndi ganga til liðs við NBA meistara San Antonio Spurs á næstu dögum, en mörg lið voru búin að gera hosur sínar grænar fyrir honum síðustu daga. Sport 14.10.2005 06:40
Rútuferð á landsleikinn Íslenska landsliðið í körfuknattleik mætir Dönum á laugardag. Leikurinn fer fram í Keflavík og fyrir þá sem búa í bænum verður rútuferð á leikinn frá Íþróttahúsinu Smáranum í Kópavogi klukkan 12:30 en leikurinn hefst klukkan 14. Sport 14.10.2005 06:40
Yao Ming semur við Houston Kínverski risinn Yao Ming hefur gert langtímasamning við Houston Rockets í NBA deildinni og verður því á mála hjá félaginu til loka tímabilsins 2010-11. Ekki hefur verið gefið upp hve hár samningurinn er, en þó er talið að fyrsta ár hans muni færa Yao Ming um 12,5 milljónir í árslaun, en fari svo ört hækkandi eftir því sem líður á hann. Sport 14.10.2005 06:40