Körfubolti
192 193 194 195 196 197 198 199 200 … 216 ›
Saunders mun taka við Pistons Flip Saunders mun verða næsti þjálfari Detroit Pistons, ef marka má nýjustu fréttir frá Bandaríkjunum, en Pistons hafa sem kunnugt er komist að samkomulagi við Larry Brown um að hætta og hafa gert við hann starfslokasamning. Sport 13.10.2005 19:33
Brown rekinn frá Detroit Larry Brown, þjálfara Detroit Pistons í NBA-körfuboltanum, var vikið úr starfi í gærkvöldi. Brown átti þrjú ár eftir af samningi sínum en í nokkurn tíma hefur það legið fyrir að forystumenn Pistons-liðsins vildu losna við hann. Brown, sem er 64 ára, gerði Pistons að meisturum í fyrra og kom liðinu í úrslit í ár þar sem Pistons tapaði fyrir San Antonio Spurs. Sport 13.10.2005 19:33
Stórsigur Íslands Íslenska körfuknattleikslandsliðið skipað leikmönnum undir 18 ára vann stórsigur á Bosníu og Hersegóvínu, 75-56, á Evrópumótinu í Slóvakíu. Staðan í hálfleik var 43-22 Íslandi í vil. Stigahæstur íslenska liðsins var Brynjar Björnsson með 30 stig þar af sjö þriggja stiga körfur. Næstur honum var Hörður Axel Vilhjálmsson með 18 stig. Sport 13.10.2005 19:33
Grindavík vann Bílavíkurmótið Grindavík tryggði sér í kvöld sigur á Bílavíkurmótinu í körfubolta þegar liðið vann tíu stiga sigur á heimamönnum, 78-68, í úrslitaleik í Ljónagryfjunni í Njarðvík. Fjölnismenn tryggðu sér þriðja sætið eftir 16 stiga sigur á Íslandsmeisturum Keflavíkur, 96-80 en Keflavík tapaði öllum leikjum sínum á mótinu. Sport 13.10.2005 19:33
Grindavík og Njarðvík mætast Grindavík og Njarðvík spila í dag til úrslita í Bílavíkurmótinu í körfubolta sem er fjögurra liða mót sem hefur farið fram í Ljónagryfjunni í Njarðvík síðustu daga. Liðin hafa unnið báða leiki sína í mótinu gegn Keflavík og Fjölni og spila því um Bílavíkurbikarinn klukkan 20.30 í Njarðvík í kvöld. Keflavík og Fjölnir spila á undan um þriðja sætið. Sport 13.10.2005 19:33
Jón Arnór á Ítalíu næsta vetur Jón Arnór Stefánsson hefur gert eins árs samning við ítalska liðið Pompea Napoli en Jón Armór var hjá rússneska liðinu Dynamo St. Pétursborg á síðasta tímabili og varð meðal annars Evrópumeistari með liðinu. Þetta verður fimmta lið Jóns Arnórs á síðustu fimm árum. Sport 13.10.2005 19:32
Weiss ráðinn þjálfari Seattle Gamla brýnið Bob Weiss hefur verið skipaður aðalþjálfari bandaríska körfuknattleiksliðins Seattle Supersonics, en hann hefur verið aðstoðarþjálfari liðins í 11 ár. Weiss, sem er 63 ára, tekur við af Nate McMillan, sem fór til Portland Trailblazers í sumar. Weiss var eitt sinn aðstoðarþjálfari bandaríska landsliðsins. Sport 13.10.2005 19:32
Grindavík og Njarðvík unnu aftur Njarðvík og Grindavík hafa unnið báða leiki sína í Bílavíkurmótinu í körfubolta sem nú fer fram í Ljónagryfjuni. Njarðvík vann nágranna sína í Keflavík 90-80 í kvöld og Grindavík vann 30 stiga sigur á Fjölnir, 116-86. Páll Axel Vilbergsson skoraði 43 stig og 9 þriggja stiga körfur í kvöld. Liðin mætast í úrslitaleik á lokadegi mótsins á morgun. Sport 13.10.2005 19:32
Ísland missti leikinn frá sér Íslenska 18 ára landsliðið mátti sætta sig við fjögurra stiga tap, 67-71, fyrir Austurríki í fyrsta leik í sínum í milliriðli Evrópumóts U-18 í Ruzomberok í Slóvakíu. íslenska liðið leiddi með 15 stigum í hálfleik, 40-25, og náði best 20 stiga forskot í leiknum. Pavel Ermolinskij var atkvæðamestur með 20 stig, 17 fráköst og 8 stoðsendingar. Sport 13.10.2005 19:32
Pallarnir báðir í fínu formi Páll Axel Vilbergsson og Páll Kristinsson fundu sig vel í sínum fyrsta leik saman fyrir Grindavík en liðið vann 34 stiga sigur á Keflavík, 107-73, í fyrstu umferð Bílavíkurmótsins í gærkvöldi. Páll Axel var með 30 stig og Páll kristinsson bætti við 22 stigum og 14 fráköst. Báðir áttu þeir síðan 5 stoðsendingar. Sport 13.10.2005 19:32
Endalaus óheppni Helga Jónasar Helgi Jónas Guðfinnsson er einn allra besti leikstjórnandi á Íslandi en undanfarin ár hafa þrálát bakmeiðsli gert honum lífið leitt og því hefur hann ekki geta spilað að fullu með liði sínu. Sport 13.10.2005 19:32
Njarðvík sigraði Fjölni Njarðvík sigraði Fjölni 89-71 í Bílavíkurmótinu í körfubolta sem fram fer í Ljónagryfjunni í Njarðvík. Staðan í hálfleik var 49-40 gestgjöfunum í vil. Friðrik Stefánsson var stigahæstur heimamanna með 25 og næstur kom Jóhann Á Ólafsson með 23 stig. Í liðið Grafarvogspilta var Magnús Pálsson stigahæstur með 21 stig. Sport 13.10.2005 19:32
Brown hættur að þjálfa Detroit Larry Brown, sem stýrði Detroit Pistons til meistaratitils í fyrra og í úrslitin í ár, hefur komist að samkomulagi við stjórn félagsins um að láta af störfum, samkvæmt nýjustu fréttum frá Bandaríkjunum. Brown hafði verið í löngum samningaviðræðum við Pistons undanfarna daga, en nú er talið líklegt að félagið kaupi hann út úr þeim þremur árum sem eftir eru af samningi hans. Sport 13.10.2005 19:32
Sigur á Finnum Íslendingar mættu Finnum <font face="Arial" size="2">á EM U-18 karla í körfubolta í Ruzomberok í Slóvakíu. Íslendingar sigruðu 75-68 eftir að hafa leitt 40-27 í hálfleik, og tryggðu sér þar með sigur í riðlinum. Pavel Ermolinskij var stighæstur Íslendinga með 22 stig (10 fráköst), Árni Ragnarsson var með 14 stig og Brynjar Þór Björnsson með 13 stig (9/9 á vítalínunni).</font> Sport 13.10.2005 19:32
Snæfell fær liðsstyrk Snæfellingar í Stykkishólmi hafa fengið mikinn liðsstyrk fyrir átökin í úrvalsdeildinni á næsta ári, því þeir hafa nú gengið frá samningi við tvo serbneska leikmenn. Sport 13.10.2005 19:31
Góður sigur U-18 í körfunni Íslenska 18 ára körfuboltalandsliðið vann Makedóníu 79-69 í öðrum leik sínum í B-hluta Evrópukeppni U-18 ára landsliða pilta í Ruzomberkok í Slóvakíu í gær. Sport 13.10.2005 19:31
Divac hættur vegna meiðsla Serbneski miðherjinn hjá Los Angeles, Vlade Divac er hættur vegna bakmeiðsla. Divac kom fyrst inn í NBA deildina frá Partizan Belgrad árið 1989 og lék með Lakersum hríð áður en hann gekk til liðs við Sacramento Kings. Þar eyddi hann bestu árum sínum í NBA deildinni áður en hann gekkk aftur til liðs við Lakers fyrir síðasta tímabil. Sport 13.10.2005 19:31
Shaq líklega áfram hjá Miami Viðræður forráðamanna NBA liðsins Miami Heat við aðalstjörnu sína Shaquille O´Neal ganga vel að sögn Pat Riley</person /> yfirmanns körfuboltamála hjá Miami. Shaq leiddi Miami til úrslita í Austurströndinni en liðið tapaði fyrir Detroit í sjö leikjum. Sport 13.10.2005 19:30
Ísland tapaði fyrir Slóvakíu Ísland tapaði fyrir Slóvakíu med 27 stiga mun 59-86 í gær á Evrópumóti 20 ára og yngri í körfuknattleik en leikið er í Búlgaríu. Strákarnir leika gegn Pólverjum í kvöld. Sport 13.10.2005 19:29
Keflavík til Úkraínu og Finnlands Íslandsmeistarar Keflavíkur í körfuknattleik leika í riðli með Lappeenranta frá Finnlandi og Sumihimprom frá Úkraínu í áskorendakeppni Evrópu í haust. Keflvíkingar leika fyrri leikina ytra. Sport 13.10.2005 19:27
Dregið í Evrópukeppninni í körfu Karlalið Keflavíkur og kvennalið Hauka eiga erfið verkefni fyrir höndum í haust, en um helgina var dregið í riðla í Evrópukeppni félagsliða í körfubolta. Sport 13.10.2005 19:27
Milwaukee valdi Bogut Það kom fáum á óvart að Milwaukee Bucks skyldu velja Andrew Bogut frá Utah Háskólanum fyrstan í nýliðavalinu í NBA í gærkvöldi, en hann er talinn muni láta hart að sér kveða í deildinni strax. Atlanta valdi hinn unga Marvin Williams frá Norður-Karólínu númer tvö. Sport 13.10.2005 19:26
Nýliðavalið í NBA verður í nótt Í nótt fer fram hið árlega nýliðaval í NBA deildinni og þar kemur í ljós hjá hvaða liðum bestu nýliðarnir enda í haust, en einnig má búast við að miklar hræringar verði í kring um valið í ár, þar sem nokkur lið munu reyna að skipta leikmönnum fyrir betri valrétti. Sport 13.10.2005 19:26
Jón Ólafur aftur í Snæfell Miðherjinn Jón Ólafur Jónsson sem lék með KR í úrvalsdeildinni í körfuknattleik í fyrravetur, hefur gengið til liðs við sitt gamla félag Snæfell og mun leika með þeim á næstu leiktíð. Sport 13.10.2005 19:26
Utah Jazz fær þriðja valréttinn Strax er farið að draga til tíðinda í nýliðavalinu í NBA deildinni sem fram fer í kvöld, en Utah Jazz gerði nú rétt í þessu stór skipti við Portland Trailblazers og tryggðu sér þriðja valréttinn í kvöld, með það fyrir augum að ná í einn hinna frambærilegu leikstjórnenda sem eru í boði. Sport 13.10.2005 19:26
Cleveland ræður framkvæmdastjóra Cleveland Cavaliers hafa gengið frá samningi við Danny Ferry, fyrrum leikmann liðsins, um að taka við stöðu framkvæmdastjóra félagsins, en það tekur loks af allan vafa um að Larry Brown þjálfari Detroit taki við stöðunni. Sport 13.10.2005 19:26
San Antonio NBA meistarar ! San Antonio Spurs tryggðu sér í nótt NBA meistaratitilinn í körfubolta þegar liðið sigraði Detroit Pistons í hreinum úrslitaleik, 81-74 í Texas. Þetta var sjöundi leikur liðanna í úrslitaeinvíginu sem Spurs unnu samtals 4-3. Tim Duncan var stigahæstur meistaranna nýkrýndu með 25 stig og var valinn besti leikmaður úrslitakeppninnar. Sport 13.10.2005 19:24
Verkfalli afstýrt í NBA Þær gleðifréttir bárust úr NBA deildinni nú í kvöld að samkomulag hefur náðst í kjarasamningum milli fulltrúa leikmanna og deildarinnar, en þar með er ljóst að ekkert verður af verkfalli sem virtist óumflýjanlegt fyrir nokkrum dögum þegar hvorki gekk né rak í viðræðunum. Sport 13.10.2005 19:24
Fyrrum KR-ingur æfir hjá Lakers Körfuknattleiksmaðurinn Aaron Harper, sem lék með KR-ingum í Intersportdeildinni eftir áramót, er nú staddur í æfingabúðum NBA stórveldisins Los Angeles Lakers. Harper fluttist til Venesúela eftir að Íslandsmótinu lauk hér á landi og er óhætt að segja að Harper hafi staðið sig vel hjá liði sínu því hann var fyrir skömmu valinn verðmætasti leikmaðurinn. Sport 13.10.2005 19:24
Unndór þjálfar Grindavík Unndór Sigurðsson mun þjálfa kvennalið Grindavíkur í körfuknattleik á næsta ári, en hann skrifaði undir eins árs samning við félagið á dögunum. Unndór, sem er Grindvíkingur þjálfaði lið ÍS með góðum árangri í fyrra. Víkurfréttir greindu frá þessu í dag. Sport 13.10.2005 19:21