Sport

Brown rekinn frá Detroit

Larry Brown, þjálfara Detroit Pistons í NBA-körfuboltanum, var vikið úr starfi í gærkvöldi. Brown átti þrjú ár eftir af samningi sínum en í nokkurn tíma hefur það legið fyrir að forystumenn Pistons-liðsins vildu losna við hann. Brown, sem er 64 ára, gerði Pistons að meisturum í fyrra og kom liðinu í úrslit í ár þar sem Pistons tapaði fyrir San Antonio Spurs. Detroit Pistons þarf að greiða Brown tæpan 1,2 milljarða króna til þess að losna við hann. Brown þarf þó ekki að kvíða því að verða atvinnulaus því New York Knicks hefur boðið honum þjálfarastarf á næstu leiktíð. Fyrir þennan árs samning ætlar Knicks að bjóða Brown 780 milljónir króna.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×