Körfubolti
205 206 207 208 209 210 211 212 213 … 216 ›
Erfiðir mótherjar á EM í sumar <font face="Helv"> Íslenska körfuboltalandsliðið skipað leikmönnum sextán ára og yngri, sem vann það frækna afrek að bera sigur úr býtum í B-deild Evrópukeppninnar síðasta sumar á erfitt verkefni fyrir höndum í A-deildinni á þessu ári en dregið var í riðla í Prag í Tékklandi í gær. </font> Sport 13.10.2005 18:46
Iverson með 60 stig Allen Iverson, leikmaður Philadelphia 76ers í NBA-deildinni, setti persónulegt met í nótt er hann skoraði heil 60 stig í sigurleik gegn Orlando Magic. Iverson, sem er stigahæsti leikmaður NBA í ár, átti áður 58 stig best en hann gaf einnig 6 stoðsendingar og stal 6 boltum í leiknum. Sport 13.10.2005 18:46
Njarðvík yfir í hálfleik Njarðvíkingar hafa yfir í hálfleik gegn Fjölni í úrslitaleik bikarkeppni karla í körfuknattleik, 43-39. Njarðvíkingar komu sterkir til leiks og skoruðu átta fyrstu stig leiksins en þá tóku Fjölnismenn leikhlé og endurskipulögð leik sinni. Fjölnismenn komust síðan yfir um miðbik hálfleiksins en Njarðvíkingar sigu fram úr undir lokin. Sport 13.10.2005 18:46
San Antonio vann New Jersey San Antonio vann New Jersey, 101-91, í NBA-körfuboltanum í nótt. Houston sigraði Indiana, 91-83, Boston vann New York, 111-94 og Dallas sigraði Sacramento, 115-113. Sport 13.10.2005 18:46
Skemmtilegasti leikur vetrarins Haukar og Grindavík munu etja kappi í Laugardalshöll í dag en þá ráðast úrslitin í bikarkeppni KKÍ & Lýsingar í körfuknattleik. Haukastúlkur eru orðnar langeygar eftir bikartitli en þær báru sigur úr býtum árið 1984. Grindvíkingar hafa hins vegar aldrei unnið titilinn en liðið komst í úrslit árið 1994 en mátti lúta í lægra haldi fyrir nágrönnum sínum í Keflavík. Sport 13.10.2005 15:32
Níu stiga sigur Keflvíkinga Keflvíkingar tróna á toppnum í Intersport-deildinni í körfubolta með 28 stig en Keflavík sigraði KR, 88-79, í gær. Nick Bradford var stigahæstur í liði Keflavíkur með 25 stig og Magnús Gunnarsson skoraði 22. Sport 13.10.2005 15:32
Detroit sigraði Lakers örugglega Aðeins þrír leikir voru í NBA-körfuboltanum í nótt. Orlando vann Atlanta, 101-96, Detroit sigraði Los Angeles Lakers með 103 stigum gegn 81 og Seattle bar sigurorð af Sacramento, 115-107. Sport 13.10.2005 15:32
Reggie Miller hættir í sumar Reggie Miller, leikmaður Indiana Pacers í NBA-körfuboltanum, hyggst leggja skóna á hilluna eftir þetta tímabil, ef marka má orð systur hans, Cheryl Miller sem starfar sem íþróttaþulur hjá sjónvarpsstöðinni TNT. Sport 13.10.2005 15:32
Munnlegt samkomulag við Shaw Körfuknattleikslið Hauka í intersportdeildinni hafa gengið frá munnlegu samkomulagi um að Bandaríkjamaðurinn Demetric Shaw leiki með liðinu það sem eftir lifir tímabils. Sport 13.10.2005 15:32
Engill til ÍS Kvennalið ÍS hefur fengið liðsstyrk fyrir lokasprettinn í 1. deild kvenna í körfubolta því liðið hefur fengið til sín bandaríska framherjann Angel Mason sem mun spila með liðinu út tímabilið. Mason mun leika sinn fyrsta leik gegn KR í kvöld. Sport 13.10.2005 15:32
Karl Malone hættur í NBA Malone hafði fullan hug á að leika með San Antonio Spurs í vetur áður en hann komst að þeirri niðurstöðu að ferillinn væri á enda. Sport 13.10.2005 15:32
Karl Malone hættur Bandaríski körfuboltasnillingurinn Karl Malone hefur ákveðið að hætta spilamennsku og mun hann tilkynna það á blaðamannafundi á sunnudaginn að því er fram kom í bandarískum fjölmiðlum síðdegis. Malone er án efa einn öflugasti framherjinn í sögu NBA körfuboltans enda í 2. sæti yfir skorhæstu leikmenn í sögu NBA deildarinnar. Sport 13.10.2005 15:32
Leik KFÍ og Snæfells frestað Leik KFÍ og Snæfells í úrvaldsdeild karla í körfuknattleik hefur verið frestað, en Snæfellingar komust ekki vestur vegna veðurs. Ekki hefur verið ákveðinn nýr leiktími. Sport 13.10.2005 18:46
Fjölnir ætlar sér að fylla Höllina Fjölnismenn sætta sig ekki við neitt annað en að Laugardalshöllin verði full út úr dyrum á úrslitaleiknum í Bikarkeppni KKÍ og Lýsingar sem fram fer næsta sunnudag en þetta er fyrsti úrslitaleikurinn í sögu félagsins. Sport 13.10.2005 18:46
Úrslit úr körfunni í kvöld Þrír leikir fóru fram í úrvaldsdeild karla í körfuknattleik í kvöld. Haukar sigruðu ÍR-inga nokkuð örugglega í Hafnafirði í kvöld með 107 stigum gegn 73. Í keflavík sigruðu heimamenn KR 88-79 og á Sauðakróki sigruðu Grindvíkingar Tindastól 102-101 í miklum spennuleik. Sport 13.10.2005 18:46
Óvæntur sigur Wizards á Spurs San Antonio Spurs, sem er með besta vinningshlutfallið í NBA-deildinni í körfuknattleik, tapaði fyrir Washington Wizards, 95-87, í nótt. Los Angeles Lakers lögðu New Jersey Nets með eins stigs mun, 104-103, en Lakers léku án Kobes Bryants. Sport 13.10.2005 18:46
Jón Arnór tilnefndur í stjörnulið Jón Arnór Stefánsson, körfuknattleiksmaður hjá rússneska úrvalsdeildarliðinu Dynamo St. Petersburg, hefur verið tilnefndur í bakvarðarstöðu Evrópuúrvalsins sem mætir úrvali erlendra leikmanna í Stjörnuleik sem fram fer í Limassol á Kýpur þann 14. apríl næstkomandi. Sport 13.10.2005 18:46
Jón Arnór í 16 manna Evrópuúrval Jón Arnór Stefánsson, körfuknattleiksmaður með Dynamo St. Pétursborg, er einn af 16 bakvörðum sem eru tilnefndir í Evrópuúrvalið fyrir stjörnuleik Körfuknattleikssambands Evrópu, sem fram fer 14. apríl á Kýpur. Kosning í Evrópuúrvalið fer fram á heimasíðu Körfuknattleikssambands Evrópu en hægt að er að fara inn á hana í gegnum heimasíðu Körfuknattleikssambands Íslands, kki.is. Sport 13.10.2005 18:46
Erla tryggði Grindavík sigur Erla Þorsteinsdóttir skoraði sigurkörfu Grindavíkur um leið og leiktíminn rann út í 86-88 sigri liðsins á KR í framlengdum leik í 1. deild kvenna í körfubolta í kvöld. Í hinum leik kvöldsins sigruðu Íslandsmeistarar Keflavík granna sína í Njarðvík 102-85 og bundu þar með enda á fjögurra leikja taphrinu. Sport 13.10.2005 18:46
Spurs enn á sigurbraut San Antonio Spurs halda áfram sigurgöngu sinni í NBA-körfuboltanum. Spurs, án Tim Duncans, sigruðu Charlotte Bobcats með 104 stigum gegn 85. Steve Nash skoraði 33 stig fyrir Phoenix sem sigraði Sacramento 125-123. Cleveland lagði Toronto 104-91, Chicago Bulls sigruðu Dallas með 7 stiga mun, 107-100, og Milwaukee burstaði Boston 121-97. Sport 13.10.2005 18:46
Keflavíkurstúlkur fá liðsstyrk Kvennalið Keflavíkur í körfubolta fær nýjan bandarískan leikmann, Alex Stewart, að nafni á næstu dögum. Hún er 24 ára leikstjórnandi og leysir Resheu Bristol af hólmi en Keflavík hefur gengið illa eftir að Bristol þurfti af hætta af persónulegum ástæðum. Sport 13.10.2005 18:46
Ginobili í stjörnuleikinn Argentíski körfuboltamaðurinn Manu Ginobili, leikmaður San Antonio Spurs, var í dag valinn í lið Vesturdeildarinnar fyrir stjörnuleik NBA sem fram fer í Denver síðar í mánuðinum. Ginobili var einn sex leikmanna, sem valdir voru í dag, sem taka munu þátt í stjörnuleiknum í fyrsta skiptið. Sport 13.10.2005 18:46
Carter yfir 10 þúsund stig skoruð Vince Carter skoraði 43 stig þegar New Jersey Nets lagði Philadelphia 76ers, 107-97, í NBA-körfuboltanum í fyrrinótt. Sport 13.10.2005 18:45
Jón Arnór með 9 stig í sigri Dynamo St. Pétursborg, lið Jóns Arnórs Stefánssonar, vann í kvöld sinn 14. leik í röð í Evrópudeild FIBA þegar liðið bar sigurorð af Iraklis frá Þessalóníku, Grikklandi, 100-82. Sigurinn var öruggur en Jón Arnór byrjaði á bekknum og lék 28 mínútur og skoraði 9 stig ásamt því að gefa 2 stoðsendingar. Einnig fékk Jón á sig 4 villur. Sport 13.10.2005 18:46
Helena með tvöfalda þrennu Helena Sverrisdóttir náði tvöfaldri þrennu í 75-82 sigri Hauka á ÍS í Kennaraháskólanum í 1. deild kvenna í körfubolta í kvöld. Helena var með 22 stig, 13 stoðsendingar og 10 fráköst í leiknum en Ebony Shaw var engu síðri með 27 stig og 16 fráköst. Með sigrinum eru Haukastúlkur farnar að blanda sér í toppbaráttuna í deildinni. Sport 13.10.2005 18:46
Nýtt lið í WNBA Stjórn bandarísku kvennakörfuboltadeildarinnar bætti í dag við nýju liði í hina sívaxandi WNBA-deild sína. Nýja liðið verður í hinni miklu körfuboltaborg Chicago og verður 14. lið deildarinnar, en ekki er lengra síðan 1997 sem deildin var stofnuð með aðeins átta lið innanborðs. Ekki hefur enn verið fundið gælunafn á liðið. Sport 13.10.2005 18:46
Hill í skýjunum með Stjörnuleik Grant Hill, leikmaður Orlando Magic, trúði vart eigin eyrum þegar honum var tilkynnt að hann væri í byrjunarliði Austurdeildarinnar í Stjörnuleik NBA sem fram fer í Denver sunnudaginn þann 20. febrúar. Sport 13.10.2005 18:45
Karl Malone í viðræðum við Spurs Karl Malone, fyrrum leikmaður Utah Jazz og LA Lakers í NBA deildinni í körfuknattleik, á um þessar mundir í viðræðum við lið San Antonio Spurs um að gera samning við félagið. Sport 13.10.2005 18:45
Phil Jackson til Lakers? Eftir að Rudy Tomjanovich sagði starfi sínu lausu sem aðalþjálfari Los Angeles Lakers í NBA-körfuboltanum, hefur mikið verið ritað um hver muni taka við þjálfun liðsins. Sport 13.10.2005 18:45
Fannar kominn í þýska boltann Landsliðsmaðurinn Fannar Ólafsson hefur skipt um lið en hann hefur leikið með gríska 2. deildarliðinu Ase Doukas Athens í vetur. Sport 13.10.2005 18:45