Íslenski handboltinn
83 84 85 86 87 88 89 90 91 … 123 ›
Stjarnan upp að hlið Valsstúlkna Stjörnustúlkur komust í dag upp að hlið Valsstúlkna á toppi DHL-deildar kvenna í handbolta með því að leggja Hauka af velli á heimavelli sínum, 21-15. Um sannkallaðan toppslag var að ræða því fyrir leikinn voru liðin með jafnmörg stig. Valur, Stjarnan og Grótta hafa öll fengið 18 stig en Grótta hefur spilað tveimur leikjum meira en tvö fyrstnefndu liðin. Handbolti 13.1.2007 19:32
Íslendingar töpuðu fyrir Tékkum Íslenska landsliðið í handbolta beið lægri hlut, 29-27, í æfingaleik gegn Tékklandi í Laugardalshöllinni í dag. Íslenska liðið lék langt undir getu í leiknum en megin munurinn á liðunum lá í markvörslunni. Liðin mætast öðru sinni á morgun. Handbolti 13.1.2007 17:42
Ísland einu marki yfir í hálfleik Íslenska landsliðið í handbolta hefur forystu, 16-15, í æfingaleik liðsins við Tékkland sem fram fer í Laugardalshöllinni. Íslenska liðið hefur verið nokkuð frá sínu besta í leiknum en jafnt hefur verið á nánast öllum tölum. Handbolti 13.1.2007 17:03
Valur lagði HK Valur lagði HK 25-22 í uppgjöri liðanna á toppi DHL deildarinnar í handbolta í dag eftir að Valsmenn höfðu yfir 14-10 í hálfleik. Markús Máni Michaelsson skoraði 8 mörk fyrir Val og Davíð Höskuldsson og Arnór Gunnarsson skoruðu 5 hvor. Valdimar Þórsson skoraði 8 mörk fyrir HK og Ragnar Hjaltested 6 mörk Handbolti 16.12.2006 17:44
Valur yfir í hálfleik Nú er kominn hálfleikur í leikjunum fjórum sem standa yfir í DHL deild karla í handbolta, en þetta eru síðustu leikirnir fyrir jólafrí. Valsmenn hafa yfir 14-10 gegn HK í toppslag liðanna í Laugardalshöll. Markús Máni Michaelsson hefur skorað 4 mörk fyrir Val og Davíð Höskuldsson og Ingvar Árnason 3 hvor, en Valdimar Þórsson 5 og Ragnar Hjaltested 4 fyrir HK. Handbolti 16.12.2006 16:46
Haukar lögðu granna sína í bikarnum 8-liða úrslitum SS bikars karla í handbolta lauk í kvöld með leik FH og Hauka í Hafnarfirði. Það voru Haukarnir sem höfðu betur 38-33 eftir að leiða með 5 mörkum í hálfleik. Haukar eru því komnir í undanúrslit keppninnar ásamt Fram, ÍR og Stjörnunni. Handbolti 13.12.2006 20:46
HK skellti Íslandsmeisturunum HK gerði sér lítið fyrir og lagði Íslandsmeistara Fram 32-29 í DHL deild karla í handbolta í Safamýri í dag. Valdimar Þórsson og Tomas Eitutis skoruðu 10 mörk hvor fyrir HK og Egidijus Petkevicius varði 22 skot í markinu en Andri Berg Haraldsson skoraði 7 mörk fyrir Fram. Handbolti 10.12.2006 17:36
Heimir Örn á heimleið Samkvæmt heimildum íþróttadeildar Stöðvar 2 verða Heimir Örn Árnason og Ólafur Björn Lárusson næstu þjálfarar handboltaliðs Fylkis. Sigurður Sveinsson lét af störfum sem þjálfari liðsins í vikunni eftir að liðið hafði tapað 5 leikjum í röð. Handbolti 7.12.2006 18:27
Naumur sigur Fram á Akureyri Fram tryggði sér í kvöld sæti í undanúrslitum SS-bikarsins í handbolta þegar liðið lagði Akureyri 31-30 í hörkuleik. Fram og Stjarnan hafa því tryggt sér sæti í undanúrslitum keppninnar. Handbolti 6.12.2006 21:05
Sigurður Sveinsson hættur hjá Fylki Stjórn handknattleiksdeildar Fylkis og Sigurður Sveinsson komust í dag að samkomulagi um að Sigurður léti af störfum sem þjálfari liðsins. Gengi Fylkis hefur valdið miklum vonbrigðum það sem af er leiktíðinni og er í næst neðsta sæti deildarinnar. Liðið hefur tapað fimm leikjum í röð, nú síðast fyrir Val um helgina. Fjallað verður um málið í íþróttafréttum Stöðvar 2 í kvöld. Handbolti 5.12.2006 17:24
Óvænt tap HK gegn Stjörnunni HK missti af gullnu tækifæri til að komast á topp DHL-deildar karla í handbolta á nýjan leik með því að bíða í lægri hluti fyrir Stjörnunni á heimavelli sínum í dag, 27-30. Haukar lögðu Framara af velli og ÍR-ingar höfðu betur gegn Akureyri. Handbolti 3.12.2006 17:42
Kvennalandsliðið hafnaði í 3. sæti Íslenska kvennalandsliðið í handbolta hafnaði í 3. sæti í undanriðli sínum fyrir Heimsmeistaramótið í handbolta eftir góðan fimm marka sigur á Ítölum í morgun, 30-25. Rúmenía hafnaði í efsta sæti riðilsins og komst áfram í lokakeppnina. Handbolti 3.12.2006 13:14
Valur lagði Fylki örugglega af velli Valur endurheimti toppsætið í DHL-deild karla í handbolta, að minnsta kosti um stundarsakir, með 28-23 sigri á Fylkismönnum í Laugardalshöllinni í dag. Sigur Valsmanna var afar verðskuldaður en liðið leiddi með um og yfir fimm mörkum frá því um miðjan fyrri hálfleik. Handbolti 2.12.2006 17:48
Tap fyrir Portúgal Íslenska kvennalandsliðið í handbolta tapaði í dag sínum fyrsta leik í undankeppni HM sem fram fer í Rúmeníu þegar liðið lá 33-29 fyrir Portúgal. Portúgalska liðið hafði yfirhöndina frá upphafi til enda og hafði yfir 16-8 í hálfleik. Ágústa Edda Björnsdóttir skoraði 9 mörk fyrir Ísland og Hrafnhildur Skúladóttir 6 mörk. Handbolti 1.12.2006 17:16
Spila með rauð nef í kvöld Leikmenn FH og Aftureldingar ætlar að styrkja gott málefni þegar liðin mætast í 1. deild karla í handbolta í kvöld. Leikmenn beggja liða sem og dómarar, ætla að mæta til leiks með rauð nef og styrkja þar með Barnahjálp SÞ á þessum toppslag í deildinni. Leikurinn hefst klukkan 19:00. Handbolti 1.12.2006 16:09
HSÍ fellir niður sekt Hattar Handknattleikssamband Íslands hefur ákveðið að fella niður 250.000 króna sekt til handa handknattleiks deild Hattar eftir að liðið mætti ekki til leiks gegn ÍBV í 1. deildinni á dögunum. Eyjamönnum var dæmdur 10-0 sigur í leiknum, en þau úrslit munu standa. Formaður handknattleiksdeildar Hattar og Formaður HSÍ segja að sátt hafi náðst í málinu. Handbolti 30.11.2006 19:31
Fram lagði Fylki Fram er enn í þriðja sæti DHL deildar karla í handbolta eftir nokkuð öruggan sigur á Fylki í Safamýri 34-29 eftir að hafa leitt í hálfleik 18-12. Fylkir er í næst neðsta sæti deildarinnar. Handbolti 29.11.2006 22:18
Fram tekur á móti Fylki Einn leikur er á dagskrá í DHL-deild karla í handbolta í kvöld. Íslandsmeistarar Fram taka þá á móti Fylki í Framhúsinu í Safamýri og hefst leikurinn klukkan 20. Fram er í þriðja sæti deildarinnar, en Fylkir er í næst neðsta sæti. Þá er rétt að minna á stórleik í kvennakörfunni þar sem Keflavík tekur á móti Grindavík í Keflavík klukkan 19:15. Handbolti 29.11.2006 17:09
Ísland lagði Asera Íslenska kvennalandsliðið í handknattleik vann sigur á Aserum í fyrsta leik sínum í undankeppni HM í Rúmeníu í dag 31-28. Íslenska liðið var yfir 18-13 í hálfleik. Hanna Stefánsdóttir og Hrafnhildur Skúladóttir skoruðu 6 mörk hvor fyrir íslenska liðið í dag og Rakel Dögg Bragadóttir skoraði 5 mörk. Liðið mætir Portúgölum klukkan 15 að íslenskum tíma á föstudaginn. Handbolti 28.11.2006 17:17
Akureyri lagði Val Akureyri gerði sér lítið fyrir og lagði topplið Vals í DHL-deild karla í handbolta í dag 25-22. Goran Gusic skoraði 8 mörk fyrir Akureyri en þeir Ingvar Árnason og Baldvin Þorsteinsson skoruðu 4 hvor fyrir Val. Handbolti 26.11.2006 17:47
Haukar lögðu ÍR Haukar lögðu ÍR 31-29 í DHL deild karla í handbolta í dag eftir að hafa verið þremur mörkum yfir í leikhléi 16-13. Árni Þór Sigtryggsson skoraði 8 mörk fyrir Hauka og Guðmundur Pedersen 7. Brynjar Steinarsson skoraði 8 mörk fyrir ÍR og þeir Jón Gunnarsson og Björgvin Hólmgeirsson 6 hvor. Handbolti 26.11.2006 17:28
Hálfleiksstaðan í DHL deildinni Haukar hafa yfir 16-13 gegn ÍR í viðureign liðanna í DHL deild karla á Ásvöllum. Guðmundur Pedersen og Árni Sigtryggsson hafa skorað 5 mörk hvor fyrir Hauka, en þeir Brynjar Steinarsson, Jón Gunnarsson og Linaf Kalasuaskas 3 hver fyrir ÍR. Handbolti 26.11.2006 16:38
Auðveldur sigur Fram á Stjörnunni Einn leikur fór fram í DHL deild karla í handbolta í dag. Íslandsmeistarar Fram burstuðu Stjörnuna 31-20 í Safamýri. Jóhann Gunnar Einarsson skoraði 10 mörk fyrir Fram í dag, þar af 9 úr vítum, en Guðmundur Guðmundsson skoraði 5 mörk fyrir Stjörnuna. Handbolti 25.11.2006 18:07
Ísland lagði Færeyjar öðru sinni Íslenska kvennalandsliðið í handknattleik lagði það færeyska í annað sinn á tveimur dögum í æfingaleik þjóðanna í Framhúsinu í dag 27-21 eftir að hafa leitt í hálfleik 16-11. Sólveig Lára Kjærnested var markahæst í íslenska liðinu með 5 mörk Rakel Bragadóttir 4 og Hanna Stefánsdóttir, Elísabet Gunnarsdóttir og Eva Kristinsdóttir skoruðu 3 hver. Handbolti 25.11.2006 15:46
Auðveldur sigur á Færeyingum Íslenska kvennalandsliðið í handbolta vann í kvöld auðveldan sigur á því færeyska í Framhúsinu 43-11 eftir að hafa leitt í hálfleik 23-7. Hanna G. Stefánsdóttir var markahæst í íslenska liðinu með 10 mörk, Dagný Skúladóttir skoraði 6 mörk og þær Ágústa Edda Björnsdóttir og Sólveig Lára Kjærnested 5 hvor. Liðin eigast aftur við á sama stað á morgun klukkan 14:15. Handbolti 24.11.2006 21:38
Júlíus tilkynnir landsliðshópinn Júlíus Jónasson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í handbolta, hefur tilkynnt leikmannahóp sinn sem tekur þátt í undankeppni HM í Rúmeníu í næstu viku. Íslenska liðið leikur tvo æfingaleiki við Færeyinga í Safamýri á morgun og laugardag og eru þeir leikir lokaundirbúningur liðsins fyrir Rúmeníuferðina. Handbolti 23.11.2006 22:36
Handboltinn stendur höllum fæti í Hafnarfirði Handboltinn í Hafnarfirði stendur afar höllum fæti og skulda handknattleiksfélög Hauka og FH þar í bæ samtals 113 milljónir króna. Handknattleiksdeildir félaganna eru komnar í þrot og hafa leitað aðstoðar bæjaryfirvalda. Hörður Magnússon greindi frá þessu í íþróttafréttum Stöðvar 2 í kvöld. Handbolti 23.11.2006 19:33
Ísland leikur við Færeyjar um helgina Íslenska kvennalandsliðið í handknattleik mætir því færeyska í tvígang um næstu helgi. Hér er um að ræða æfingaleiki fyrir íslenska liðið sem er að undirbúa sig fyrir forkeppni HM sem fram fer í Rúmeníu í næstu viku. Handbolti 22.11.2006 22:07
Fram lagði Akureyri Einn leikur var á dagskrá í DHL-deild karla í handknattleik í kvöld. Íslandsmeistarar Fram lögðu lið Akureyrar 32-29 eftir að hafa verið með sjö marka forskot í leikhléi 19-12. Jóhann Einarsson skoraði 9 mörk fyrir Fram og Sigfús Sigfússon 7, en Goran Gusic skoraði 11 mörk fyrir Akureyri, þar af 10 úr vítum. Fram er í þriðja sæti deildarinnar en Akureyri í því fjórða. Handbolti 22.11.2006 20:49
Akureyri og Fram mætast í 8-liða úrslitunum Í dag var dregið í 8-liða úrslit SS-bikarsins í handbolta í karla- og kvennaflokki. Í karlaflokki er aðeins einn úrvalsdeildarslagur þar sem Akureyri tekur á móti Íslandsmeisturum Fram. Stórleikurinn í kvennaflokki er án efa viðureign Hauka og Stjörnunnar. Handbolti 22.11.2006 14:15