Ástin á götunni
309 310 311 312 313 314 315 316 317 … 334 ›
Enn tapar Notts County Notts County, lið Guðjóns Þórðarsonar í ensku annari deildinni, tapaði enn einum leiknum í kvöld þegar það tók á móti Boston United á heimavelli sínu. Boston hafði sigur 2-1. Sport 23.10.2005 15:03
Vilmundur fær 10 mánaða bann Aganefnd KSÍ dæmdi í gær Vilmund Sveinsson, leikmann í 2. flokki Víkings, í rétt tæplega 10 mánaða keppnisbann fyrir að leggja hendur á dómara í leik í gegn KA 17. september síðastliðinn. Auk þessa voru sex aðrir leikmenn dæmdir í leikbann af aganefndinni, fimm voru dæmdir í tveggja leikja bann og einn í þriggja leikja bann. Sport 23.10.2005 15:03
Nýtt lið gegn Pólverjum "Undirbúningurinn hefur ekki verið upp á það besta. Það vantar marga lykilmenn og nánast nýtt lið sem hleypur inn á völlinn. Flestir leikmannanna eru ungir að árum og að stíga sín fyrstu skref og oft ná þeir að spila upp fyrir sig í svona leikjum," sagði Ásgeir Sigurvinsson, landsliðsþjálfari Íslands, við Fréttablaðið eftir seinni æfingu landsliðsins í gær. Sport 23.10.2005 15:02
Ísland tapaði fyrir Pólverjum Vináttuleik Íslendinga og Pólverja í knattspyrnu er lokið með 3-2 sigri heimamanna. Kristján Örn Sigurðsson kom íslenska liðinu yfir í fyrri hálfleik og eftir að Pólska liðið jafnaði leikinn, kom Hannes Sigurðsson Íslendingum yfir á ný, en Pólverjar voru betri í síðari hálfleiknum og unnu sanngjarnan 3-2 sigur. Sport 23.10.2005 15:03
Einbeitingarleysi felldi okkur Logi Ólafsson, annar landsliðsþjálfarana, var þokkalega sáttur með frammistöðu sinna manna gegn Pólverjum í gær en sagði það óneitanlega vonbrigði að tapa leiknum með þessum hætti. Sport 23.10.2005 15:03
Loksins sigur hjá U-19 Íslenska U-19 ára landslið Íslands vann í dag góðan 2-0 sigur á Bosníu og Hersegóvínu í lokaumferð undankeppni EM, en riðillinn var spilaður í Bosníu. Theodór Elmar Bjarnason og Arnór Smárason skoruðu mörk íslenska liðsins seint í leiknum. Íslenska liðið hafnaði því í þriðja sæti í riðlinum og kemst ekki áfram í milliriðla. Sport 23.10.2005 15:02
Hannes kemur Íslendingum yfir Hannes Þ. Sigurðsson hefur komið íslenska landsliðinu aftur yfir í Varsjá og staðan er því orðin 2-1 fyrir Ísland, þegar skammt er eftir af fyrri hálfleik. Hannes skoraði með þrumuskoti úr vítateignum á 38. mínútu. Leikurinn er í beinni útsendingu á Sýn. Sport 23.10.2005 15:03
Ísland komið yfir gegn Pólverjum Íslenska landsliðið er komið yfir gegn Pólverjum í Varsjá. Það var Kristján Örn Sigurðsson sem skoraði markið með góðu skoti eftir stundarfjórðung, eftir að hafa fengið frábæra sendingu frá fyrirliðanum Brynjari Birni Gunnarssyni. Sport 23.10.2005 15:02
Warnock stjóri mánaðarins Neil Warnock hjá Sheffield United hefur verið kjörinn knattspyrnustjóri septembermánaðar í ensku fyrstu deildinni. United hefur þriggja stiga forskot á toppi deildarinnar og liðið vann m.a. fimm leiki í röð í mánuðinum. Sport 23.10.2005 15:02
Nýtt lið sem hleypur inn á völlinn "Undirbúningurinn hefur ekki verið upp á það besta. Það vantar marga lykilmenn og nánast nýtt lið sem hleypur inn á völlinn. Flestir leikmannanna eru ungir að árum og að stíga sín fyrstu skref og oft ná þeir að spila upp fyrir sig í svona leikjum," sagði Ásgeir Sigurvinsson, landsliðsþjálfari Íslands, við Fréttablaðið Sport 23.10.2005 15:02
Guðni hundfúll "Ég fer ekki leynt með að ég er hundfúll með að koma þessu stórefnilega liði ekki í milliriðil," sagði Guðni Kjartansson, þjálfari U19 ára landslið Íslands í knattspyrnu sem tapaði fyrir Króatíu 3-2 í undankeppni Evrópumóts landsliða þegar liðin mættust í Sarajevo í Bosníu í gær og er þar með úr leik. Sport 23.10.2005 15:02
Ziege að hugsa um að hætta Þýski varnarmaðurinn Christian Ziege óttast að þrálát ökklameiðsli sem hann hefur átt við að stríða lengi séu að neyða hann til að leggja skóna á hilluna. Ziege leikur með Gladbach í þýsku úrvalsdeildinni, en lék áður á Englandi, meðal annars með Liverpool og Tottenham. Sport 23.10.2005 15:02
Ferdinand heldur líklega sæti sínu Varnarmaðurinn Rio Ferdinand mun að öllum líkindum halda sæti sínu í vörn enska landsliðsins þegar það mætir Austurríki á laugardaginn, en miklar vangaveltur hafa verið um það hvort Sol Campbell myndi taka sæti hans, eftir að Ferdinand hefur verið nokkuð frá sínu besta að undanförnu. Sport 23.10.2005 15:02
Bent ætlar á HM Framherjinn knái hjá Charlton, Darren Bent, segist gera sér grein fyrir að hann verði að halda áfram að skora grimmt ef hann ætli sér að komast í enska landsliðshópinn fyrir HM í Þýskalandi næsta sumar, en mikil samkeppni er meðal framherjanna sem koma til greina í liðið. Sport 23.10.2005 15:02
Hremmingar í Póllandi Landsliðsframherjinn Heiðar Helguson, leikmaður Fulham, boðaði forföll af persónulegum ástæðum í vináttulandsleikinn gegn Pólverjum annað kvöld en hann verður hins vegar með gegn Svíum á miðvikudaginn. Hannes Þ. Sigurðsson, leikmaður Stoke, var kallaður inn í hópinn í hans stað. Sport 23.10.2005 15:02
Gunnar heiðar metinn á 250 millur Verðmiði Gunnars Heiðars Þorvaldssonar, framherja Halmstad, sem slegið hefur í gegn í sænsku úrvalsdeildinni, er á bilinu 125 til 250 milljónir íslenskra króna. Þetta kemur fram í sænska blaðinu Aftonbladet í gær. Sport 23.10.2005 15:02
Rooney segist hafa þroskast Hinn ungi en skapheiti framherji Wayne Rooney hjá Manchester United, heldur því fram að hann hafi þroskast mikið síðan hann gekk í raðir liðsins og segir að aukin ábyrgð sem fylgi því að spila fyrir stórliðið muni verða til þess að flýta fyrir þroska sínum. Sport 23.10.2005 15:02
Nistelrooy í áflogum Það var heitt í kolunum á landsliðsæfingu hjá Hollendingum í dag, því Ruud van Nistelrooy var tekinn á teppið af Marco van Basten þjálfara og látinn biðjast afsökunar á því að hafa sparkað í landa sinn Ron Vlaar, varnarmann AZ Alkmaar. Sport 23.10.2005 15:02
Okocha að hætta með Nígeríu Miðjumaðurinn Jay-Jay Okocha hjá Bolton hefur gefið það út að hann muni líklega hætta að spila með landsliði Nígeríu eftir HM í Þýskalandi næsta sumar, ef liðið kemst þá á mótið. Sport 23.10.2005 15:02
Bætt afkoma hjá Tottenham Úrvalsdeildarfélagið Tottenham Hotspurs lagði fram ársreikninga sína í morgun og þar sýndi félagið fram á bætta afkomu frá árinu þar á undan. Eftir að 2,7 milljóna punda halli var á rekstri félagsins á árinu 2003-04, hefur það nú sýnt fram á 4,1 milljón punda hagnað á síðasta reikningsári. Sport 23.10.2005 15:02
Everton vill Gunnar Heiðar Stuðningsmannasíða enska úrvalsdeildarfélagsins Everton greindi frá því nú skömmu undir hádegið að félagið hafi hug á að fá markamaskínuna Gunnar Heiðar Þorvaldsson. Gunnar Heiðar sem leikur með Halmstad í Svíþjóð hefur skorað alls 23 mörk í 34 leikjum fyrir sænska liðið á tímabilinu og hefur sú frammistaða vakið mikla athygli víðsvegar um Evrópu. Sport 23.10.2005 15:02
Cissé ósáttur hjá Liverpool Franski framherjinn Djibril Cisse hjá Liverpool segir að hann muni ekki sætta sig við að vera á varamannabekknum hjá liðinu í allan vetur og segist muni hugsa sér til hreyfings ef ástandið lagast ekki fljótlega. Sport 23.10.2005 15:02
Helena áfram með KR Helena Ólafsdóttir hefur verið ráðinn þjálfari KR í Landsbankadeild kvenna. Helena, sem er KR-ingur í húð og hár tekur við liðinu af Írisi Björk Eysteinsdóttur en Helena hafði leyst hana af í sumar eftir að Íris Björk þurfti að fara í barneingnarfrí. Sport 23.10.2005 15:02
Þarf metnaðarfyllra starfsumhverfi Jóhannes Karl Guðjónsson, knattspyrnumaður hjá Leicester City, segist tilbúinn til þess að gefa kost á sér í landsliðið á nýjan leik. "Ég er tilbúinn til þess að gefa kost á mér á nýjan leik þegar metnaðarfyllra starfsumhverfi skapast." Sport 23.10.2005 15:02
Moyes hélt krísufund David Moyes, stjóri botnliðs Everton í ensku úrvalsdeildinni, hélt krísufund með leikmönnum sínum í kjölfar tapsins gegn Manchester City um helgina. Everton er í neðsta sæti deildarinnar með aðeins þrjú stig og hefur aðeins náð að skora eitt mark í leikjunum sjö sem það hefur spilað. Sport 23.10.2005 15:02
Gerrard vill gleyma Belfast Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, segir að hann og félagar hans í enska landsliðinu vilji gera allt sem í þeirra valdi stendur til að gleyma óförunum gegn Norður-Írum í Belfast á dögunum og til þess verði þeir að eiga góðan leik gegn Austurríkismönnum um helgina. Sport 23.10.2005 15:02
Hannes í landsliðið í stað Heiðars Hannes Þ. Sigurðsson, leikmaður Stoke City, hefur verið kallaður inn í íslenska landsliðshópinn fyrir leikinn við Pólverja á föstudaginn í stað Heiðars Helgusonar hjá Fulham, sem hefur fengið að sleppa leiknum af persónulegum ástæðum. Sport 23.10.2005 15:02
Eriksson í vandræðum með bakverði Sven-Göran Eriksson, landsliðsþjálfari Englendinga, á í mesta basli með að velja í bakvarðastöðurnar í liðinu fyrir leikinn gegn Austurríkismönnum um helgina, eftir að í ljós kom að Ashley Cole verður frá í nokkrar vikur vegna meiðsla. Sport 23.10.2005 15:02
Gunnar Heiðar með gegn Svíum "Póllandsleikurinn á föstudaginn er úr sögunni en ég reikna fastlega með því að verða klár í slaginn gegn Svíum," sagði Gunnar Heiðar Þorvaldsson í samtali við Fréttablaðið eftir að hann kom úr læknisskoðun í gær. Hann meiddist í ökkla gegn Djurgården á mánudaginn og leist ekki á blikuna eftir leikinn. Sport 23.10.2005 15:02
Valur í vandræðum Guðbjörg Gunnarsdóttir, markvörður Vals í knattspyrnu hefur átt við erfið veikindi að stríða undanförnu og getur líklega ekki leikið með liðinu á Laugardalsvelli gegn Potsdam í 8 liða úrslitum Evrópukeppninnar í knattspyrnu á sunnudag. Sandra Sigurðardóttir markvörður Stjörnunnar mun líklega standa í marki Vals í fyrri leiknum í það minnsta. Sport 23.10.2005 15:02