
Ástin á götunni

Liverpool sigraði í Soffíu
Liverpool sigraði CSKA Soffíu í kvöld 3-1 í forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Fernando Morientes gerði tvö marka Liverpool en Djibril Cisse eitt. Úrslit annara leikja í kvöld í forkeppni Meistaradeilda karla var eftirfarandi...

Benitez styður Morientes
Rafael Benitez, knattspyrnustjóri Liverpool, segir að stuðningsmenn Liverpool eigi enn eftir að sjá það besta sem framherjinn Fernando Morientes hefur upp á að bjóða.

Essien barði í borðið
Miðjumaðurinn Michael Essien hjá Lyon virðist loks vera á leið til Chelsea eftir að hafa átt fund með forseta félagsins og neitað öllum samningstilboðum hans. Peter Kenyon, stjórnarformaður Chelsea er nú á leið til Frakklands með það fyrir augum að ganga frá málinu í eitt skipti fyrir öll og væntir þess að klára það frá á næstu tveimur sólarhringum.
Valsstúlkur lögðu Noregsmeistara
Íslandsmeistarar Vals í knattspyrnu lögðu Noregsmeistarana í Röa að velli 4-1 í fyrstu umferð Evrópukeppni félagsliða en leikurinn fór fram í Finnlandi. Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði tvö mörk og þær Dóra María Lárusdóttir og Guðný Óðinsdóttir sitt markið hvor. Valur mætir finnska liðinu FC United á morgun en Finnarnir sigruðu Pärnu frá Eistlandi 2-0.

Anelka ekki til Newcastle
Nicolas Anelka mun ekki ganga í raðir Newcastle þetta fullyrti Freddi Shepherd stjónarformaður félagsins, en tyrkneska liðið Fenerbache ætlar ekki að selja Anelka. Sheppard hefur hins vegar fullvissað stuðningsmenn Newcastle að liðið muni fá til sín nýja leikmenn áður en langt um líður.
Toshack niðurlægir Savege
John Toshack hefur ákveðið að velja ekki Robbie Savage, leikmann Blackburn, í landslið Wales. Savage hætti að gefa kost á sér á síðasta ári en ákvað í síðasta mánuði að snúa aftur í landsliðið. Toshack, þjálfari hefur hins vegar lítinn áhuga á kröftum Savage og valdi marga neðri deildarleikmenn í hans stað.
Upprúllun í Krikanum
FH-ingar eru að bursta Grindvíkinga 4-0 í hálfleik í Landsbankadeild karla. Allan Borgvardt hefur gert tvö, Tryggvi Guðmundsson og Ásgeir Ásgeirsson eitt hvor.
Sigur hjá Ólafi Inga og félögum
Ólafur Ingi Skúlason og félagar í Brentford, í ensku C deildinni sigurðu Chesterfield 3-1 í kvöld á heimavelli. Ólafur Ingi byrjaði leikinn en var skipt út af á 38. mínútu.

Landsliðshópur Suður Afríku
Stuart Baxter, landsliðsþjálfari Suður-Afríku, hefur tilkynnt leikmannahópinn fyrir vináttulandsleikinn gegn Íslandi sem fram fer á Laugardagsvelli næst komandi miðvikudag.

Guðjón ánægður með sína menn
Guðjón Þórðarson, knattspyrnustjóri Notts County, og lærisveinar hans unnu góðan sigur á Wrexham í gær 1-0 með marki á lokamínútunni. "Þessi úrslit voru mjög góð gegn sterku Wrexham liði. Ég sagði mínum mönnum að vera þolinmóðir. Við biðum færis og það skilaði sér," sagði Guðjón kampakátur eftir leik.
Arsenal hætt við að kaupa Viera
Úrvalsdeildarlið Arsenal hefur samkvæmt nýjustu tíðindum frá Englandi hætt við að festa kaup á markverðinum Sebastien Viera frá Úrugvæ, eftir að kappinn stóðst ekki læknisskoðun hjá félaginu.
Liverpool yfir í hálfleik
Liverpool er 2-1 yfir gegn CSKA Soffíu frá Búlgaríu í hálfleik í forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Djibril Cisse og Fernando Morientes gerðu mörk Liverpool en Dimitrov gerði mark Búlgaranna en leikurinn fer fram í Soffíu.
Normaður dæmir í 1.deild
Norskur dómari, Ken Henry Johnsen, dæmir leik HK og Víkings R. í 1. deild karla sem fram fer á Kópavogsvellinum á föstudagskvöldið kemur, 12. ágúst. Samkvæmt tilkynningu sem KSÍ sendi frá sér í morgun er þetta liður í norrænum dómaraskiptum sem knattspyrnusamböndin á Norðurlöndum eru að hrinda í framkvæmd.
Hermann og Brynjar ekki með
Þeir Hermann Hreiðarsson og Brynjar Björn Gunnarsson verða ekki með íslenska landsliðinu í vináttuleiknum gegn Suður-Afríku á Laugardalsvelli næstkomandi miðvikudag. Brynjar Björn er meiddur og Hermann fær hvíld í landsleiknum, þar sem hann hefur verið að vinna sig út úr erfiðum meiðslum.

Shearer og Parker meiddir
Alan Shearer, fyrirliði Newcasstle og Scott Parker miðjumaðurinn sem Newcastle fékk frá Chelsea verða ekki með liðinu gegn Arsenal á Highbury í fyrsta leik liðsins í ensku úrvalsdeildinni sem verður á sunnudag. Þá á Shay Given, markvörður liðsins við nárameiðsli að stríða og alls óvíst hvort hann leiki með gegn Arsenal.
Jóhann til reynslu hjá AGF
Á heimasíðu AGF í dag er greint frá því að Jóhann B. Guðmundsson knattspyrnumaður í Örgyte í Gautaborg er þessa dagana til reynslu hjá danska félaginu AGF í Árósum og það ræðst um næstu helgi, hvort honum verði boðinn samningur.
Ferdinand segist ekki gráðugur
Varnarmaðurinn Rio Ferdinand hjá Manchester United, segir að það hafi ekki verið græðgi sem tafði undirritun nýja samnings hans í gær og blæs á sögusagnir um að hann hafi verið að bíða eftir að United samþykkti að borga honum 120.000 pund í vikulaun.

Sannleikanum hagrætt að mati Fram
Í yfirlýsingu frá Fram segir að frjálslega sé farið með sannleikann í tengslum við félagaskipti Bo Henriksen frá Val til Fram.

Segir Owen að fara til Newcastle
Sir Bobby Robson, fyrrverandi knattspyrnustjóri Newcastle, segir að Micheal Owen eigi að fara til Newcastle, fari svo að hann yfirgefi herbúðir Real til að snúa aftur í ensku úrvalsdeildina.
Breiðablik færist nær titlinum
Stelpurnar í Breiðablik komust skrefinu nær Íslandsmeistaratitilinum í knattspyrnu þegar liðið gerði markalaust jafntefli við KR á útivelli í kvöld. Þá sigraði FH lið Stjörnunnar 2-1 í Garðabæ.
Gautaborg er á toppnum
Gautaborg er á toppnum í Svíþjóð með 32 stig, stigi meira en Djurgarden sem er í öðru sæti. Gautaborg vann góðan útisigur á Helsingborg, 2 - 0 , en Helsingborg sem er í fjórða sæti með 30 stig hefði með sigri skotist á toppinn í deildinni. Elfsborg sigraði Hacken, 2 - 0 , og Sundsvall og Gelfe skildu jöfn, 2 - 2.
United yfir í hálfleik
Manchester United er 1-0 yfir gegn Debrechen frá Ungverjalandi í forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Wayne Rooney gerði mark United á 7. mínútu.Þá er leik Glasgow Rangers frá Skotlandi lokið, þeir sigruðu Anorthosis frá Kýpur 2-1 á útivelli í sömu keppni.

Forlan verður okkur erfiður
Mickael Arteta, miðjumaður Everton, segir að Diego Forlan, fyrrverandi leikmaður Man. Utd, sé sá leikmaður sem liðið óttist mest í liði Villareal, en liðin eigast við í 3. umferð Meistaradeildarinnar í kvöld. Viðueignin er sýnd í beinni útsendingu á Sýn.
Buryak látinn fara
Stjórnarmenn úkraínska knattspyrnuliðsins Dynamo Kiev ráku í dag Leonid Buryak þjálfara liðsins þrátt fyrir að Buryak hafi aðeins stjórnað liðinu í 2 mánuði. Liðinu hefur gengið illa í úkraínsku deildinni og var slegið út í forkeppni meistaradeildar Evrópu af svissneska liðinu Thun í síðustu viku. Anatoly Demyanenko var ráðinn í stað Buryaks

Sigur hjá Árna Gauti og félögum
Árni Gautur Arason og félagar í norska liðinu Välerenga sigruðu Club Brugge frá Belgíu 1-0 í forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Manchester United sigraði Debrechen frá Ungveralandi 3-0 með mörkum frá Wayne Rooney, Ruud van Nistelrooy og Ronaldo. Úrslit kvöldsins í forkeppni Meistaradeildarinnar eru eftirfarandi....
Enski boltinn á Sýn í kvöld
Í kvöld verður leikið í þriðju umferð í forkeppni Meistaradeildarinnar í knattspyrnu. Manchester United mætir Debrecen frá Ungverjalandi á Old Trafforf í fyrri leik liðanna, en leikurinn verður sýndur beint á Sýn klukkan 18.55.
Glæsilegur sigur Vals
Íslandsmeistarar Vals í kvennaflokki unnu í dag frábæran 4-1 sigur á Noregsmeisturum Roa Idrettslag í Evrópukeppni félagsliða kvenna, en liðin leika í riðli sem fram fer í Finnlandi. Sigurinn hlýtur að teljast enn merkilegri fyrir þær sakir að norsk kvennalið eru talin með þeim bestu í Evrópu.
Norska úrvalsdeildin
Einn leikur var á dagskrá í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gær. Viking og Start gerðu jafntefli, 1 - 1. Hannes Þ. Sigurðsson kom inná sem varamaður í liði Vikings í síðari hálfleik rétt eins og Jóhannes Harðarson sem leikur með Start.

Sigur hjá Guðjóni
Guðjón Þórðarson og lærisveinar hans í Notts County sigruðu í kvöld lið Wrexham á heimavelli sínum 1-0. Mark County kom á lokamínútu leiksins. Þetta var annar leikur liðsins í ensku 3.deildinni, þeim fyrri lauk með markalausu jafntefli.
Úrslitin úr ensku 1.deildinni.
Fjöldi leikja fór fram í ensku 1.deildinni( Championship) í kvöld. Jóhannes Karl var í liði Leicester sem sigraði Stoke, Ívar Ingimarsson var í liði Reading sem vann Brighton, Bjarni Guðjónson sat allan tíma á varamanna bekknum í liði Plymouth og það sam gerði Gylfi Einarsson í liði Leeds. Úrslit kvöldsins voru sem segir..