Ástin á götunni
329 330 331 332 333 334 … 334 ›
Gerrard hvíldur í vetur Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, verður hvíldur reglulega á komandi keppnistímabili til þess að hann verði ekki ofkeyrður fyrir heimsmeistarakeppnina í Þýskalandi á næsta ári. Sport 13.10.2005 19:30
Sænska úrvalsdeildin Gunnar Heiðar Þorvaldsson skoraði eina mark Halmstad þegar liðið tapaði fyrir Gais 2-1 í sænsku bikarkeppninni í gær. Ásthildur Helgadóttir lék í 75.mínútu þegar lið hennar malmö bar sigurorð af AIK 2-0 í sænsku úrvalsdeildinni í gærkvöldi. Malmö og Umea eru efst í deildinni með 25 stig. Sport 13.10.2005 19:30
Young Boys Skagamaðurinn fyrrverandi Grétar Rafn Steinsson lék allann leikinn með Youngs Boys þegar liðið vann Neuchatel Xamax 3-1 í fyrsta leik svissnesku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í gær. Sport 13.10.2005 19:30
Kaupir Juventus Vieira í dag? Luciano Moggi, framkvæmdastjóri Juventus er staddur í London þessa stundina, þar sem hann segist vera að ganga frá kaupum á fyrirliða Arsenal, Patrick Vieira. Sport 13.10.2005 19:30
Evrópukeppni félagsliða í kvöld ÍBV og Keflavík verða í eldlínunni í dag í forkeppni Evrópukeppni félagsliða í knattspyrnu. Eyjamenn leika á heimavelli fyrri leik sinn gegn Færeyska liðinu B-36 og hefst leikurinn á Hásteinsvelli klukkan sex. Keflvíkingar leika gegn Etzella frá Luxembourg á útivelli og verður flautað til leiks klukkan 16.30. Sport 13.10.2005 19:30
Selfoss saxaði á Leikni Tveir leikir fóru fram í 2. deild karla í kvöld. Topplið Leiknis gerði 1-1 jafntefli í nágrannaslagnum gegn ÍR og Selfoss vann Tindastól 3-0. Leiknir er efst með 22 stig eftir 10 leiki en Selfoss komst í 2. sætið með sigrinum og hafa 19 stig eftir 10 leiki. ÍR komst úr fallsæti með jafnteflisstiginu og eru í 7. sæti með 10 stig. Sport 13.10.2005 19:31
ÍBV náði ekki að sigra heima ÍBV og B36 frá Færeyjum gerðu 1-1 jafntefli í fyrri leik liðanna í 1. umferð forkeppni Evrópukeppni félagsliða en leiknum var að ljúka á Hásteinsvellinum í Eyjum. Færeyska liðið skoraði strax á 7. mínútu en Pétur Óskar Sigurðsson jafnaði á 25. mínútu. Sport 13.10.2005 19:31
Draumur að spila með aðalliðinu Bjarni Þór Viðarsson, knattspyrnumaðurinn ungi, lék sinn fyrsta leik með aðalliði enska liðsins Everton á miðvikudagskvöld þegar hann kom inn sem varamaður í æfingaleik gegn skoska liðinu Dundee United. Sport 13.10.2005 19:31
Fyrsta deild karla í kvöld Þrír leikir eru í fyrstu deild karla í fótbolta í kvöld og flautað verður til leiks klukkan 20. Fjölnir tekur á móti Víkingi Reykjavík. Haukar og Breiðablik eigast við og Völsungar mæta KA á Húsavík. Leiknir og ÍR leika í annarri deild og Selfoss og Tindastóll. Sport 13.10.2005 19:30
Liverpool og TNS í kvöld Liverpool mætir Welska liðinu TNS í 1. umferð forkeppni meistaradeildarinnar í knattspyrnu í kvöld. Leikurinn verður sýndur beint á Sýn en hann hann hefst klukkan 18:45. Margir leikmenn í TNS-liðinu eru gallharðir stuðningsmenn Liverpool. Sport 13.10.2005 19:30
Efstu sætin í Visa bikar kvenna KR, Fjölnir og Breiðablik tryggðu sér sæti í undanúrslitum Visa bikars kvenna í knattspyrnu í gær. KR lagði Stjörnuna að velli 1-3.Hrefna Jóhannesdóttir skoraði tvívegis fyrir KR. Sport 13.10.2005 19:30
Sir Alex á eftir markverði Stoke Manchester United hafa gert 130 milljóna króna kauptilboð í varamarkvörð Stoke City, Ben Forster. Forster sem er 22 ára hefur enn ekki spilað leik með Stoke en markvarðarmál Stoke eru í öruggum höndum Steve Simonsen sem á sínum tíma var dýrasti markvörðurinn í enska boltanum. Sport 13.10.2005 19:30
Beretta tekinn við Parma Mario Beretta hefur verið ráðinn nýr þjálfari ítalska liðsins Parma. Beretta var rekinn frá Chievo seint á síðasta tímabili eftir að liðið var komið niður í fallsvæðið. Það stoppaði þó ekki Parma. Sport 13.10.2005 19:30
Mathias Jonson til Djugardern Sænski sóknarmaðurinn Mathias Jonson sem leikið hefur með Norwich City er á leiðinni til Djurgarden en með liðinu leika íslendingarnir Kári Árnason og Sölvi Geir Ottesen. Félögin hafa komist að samkomulagi um kaupverð en Jonson á eftir að semja um launaliði. Sport 13.10.2005 19:30
Forseti Juventus til London Samkvæmt Sky fréttastofunni er Luciano Moggi, forseti Juventus, mættur ásamt fylgdarliði sínu til London til að ræða við Arsenal um hugsanleg kaup á Patrick Vieira, franska miðvallarleikmanninum í liði Arsenal. Sport 13.10.2005 19:30
Zidane hvetur Viera til að fara Franska goðsögnin, Zinedine Zidane, leikmaður Real Madrid hvetur landa sinn Patrick Viera til að róa á önnur mið. Bæði Juventus og Real Madrid hafa sýnt Viera, sem er 29 ára gamall miðjumaður, mikinn áhuga. Sport 13.10.2005 19:30
Mourinho barmar sér Jose Mourinho segir að það sé ekki tekið út með sældinni að eltast við góða leikmenn ef maður er knattspyrnustjóri Chelsea, því lið séu fljót að rísa upp á afturlappirnar ef einhver af leikmönnum þess er orðaður við ensku meistarana. Sport 13.10.2005 19:30
Gerrard með þrennu Liverpool sigraði T.N.S. frá Wales 3-0 í 1.umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Steven Gerrard gerði öll þrjú mörk liðsins en leikurinn fór fram á Anfield í Liverpool. Þetta var fyrsta þrennan hans fyrir félagið. Liðin mætast að nýju að viku liðinni á heimavelli T.N.S. Sport 13.10.2005 19:30
Beretta tekinn við Parma Mario Beretta hefur verið ráðinn nýr þjálfari ítalska liðsins Parma. Beretta var rekinn frá Chievo seint á síðasta tímabili eftir að liðið var komið niður í fallsvæðið. Það stoppaði þó ekki Parma. Sport 13.10.2005 19:30
Liverpool bauð í Milito Spænska liðið Real Zaragoza hefur staðfest að Liverpool hafi komið með tilboð í varnarmanninn Gabriel Milito en segja að leikmaðurinn sé ekki til sölu. Sport 13.10.2005 19:30
Forseti Barcelona strippar Forseti spænsku meistaranna í Barcelona, Joan Laporta, reif sig úr görmunum fyrir framan flugvallarstafsmenn í Madrid í gær. Öryggishlið sem Laporta þurfti að fara í gegnum, bjallaði í þrígang og þegar forsetinn reyndi í fjórða skiptið missti hann stjórn á skapi sínu. Sport 13.10.2005 19:30
Simon Samuelsson til Keflavíkur Eftir helgi kemur færeyski landsliðsmaðurinn Simon Samuelsson til reynslu hjá Keflavík. Hann hefur leikið með Vogi í Færeyjum og þykir mjög efnilegur framliggjandi miðjumaður. Móðir hans er íslensk og er úr Keflavík en Simon hefur búið í Færeyjum í ellefu ár. Sport 13.10.2005 19:30
Ólöglegur með Notts County Varnarmaðurinn Brian O´Callaghan er enn samningsbundinn Keflavík í Landsbankadeildinni í fótbolta. O´Callaghan hefur þegar skrifað undir samning við Guðjón Þórðarson hjá Notts County þrátt fyrir að vera samningsbundinn hjá Suðurnesjaliðinu. Sport 13.10.2005 19:30
Liverpool er 2 - 0 yfir Liverpool er 2-0 yfir í hálfleik gegn Velska liðinu TSN í 1.umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Steven Gerard gerði bæði mörk liðsins en leikurinn fer fram á Anfield. Sport 13.10.2005 19:30
Wright-Phillips einbeittur Stuart Pearce, knattpyrnustjóri Manchester City, segist vera orðinn dauðleiður á orðrómi um að Shaun Wright-Phillips sé á leið frá félaginu, en segir jafnframt að leikmaðurinn ungi hafi sýnt mikinn þroska með því að láta orðróminn ekki hafa áhrif á sig við æfingar. Sport 13.10.2005 19:30
Chelsea sigraði í æfingaleik Chelsea sigraði lið Wycombe í æfingaleik í kvöld 5-1. Jiri Jarosik gerði tvö marka Chelsea og þeir Arjen Robben, Carlton Cole og Joe Cole eitt mark hvor. Eiður Smári lék með Chelsea en var óheppinn að skora ekki, skot hans var varið á marklínu. Asier Del Horno lék sinn fyrsta leik með ensku meisturunum. Sport 13.10.2005 19:30
Bjarni Þór spilaði með Everton Bjarni Þór Viðarsson, leikmaður Everton, lék sinn fyrsta leik með aðalliði Everton í dag þegar liðið mætti skoska liðinu Dundee United í æfingaleik. Everton vann leikinn 1-0. Bjarni Þór sem einungis er 18 ára var fastamaður í varaliði Everton á síðast liðnu tímabili. Sport 13.10.2005 19:30
Shelbourne sigraði Írlands slaginn Shelbourne frá Írlandi sigraði Glentoran frá Norður Írlandi í 1. umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld en leikurinn fór fram á Norður Írlandi. Þá tapaði HB frá Færeyjum fyrir Kaunas frá Litháen 4-2 í Færeyjum í sömu keppni. Þegar 63 mínútur eru liðnar af leik Liverpool og TNS er staðan 2-0 fyrir Liverpool. Þetta eru fyrri leikir liðanna. Sport 13.10.2005 19:30
Fróði og Pól á leið til landsins ÍBV mætir B36 á morgun í Vestmannaeyjum í 1.umferð UEFA keppninnar í knattspyrnu. B36 er í efsta sæti færeysku Formúludeildarinnar ásamt Skála og HB. Sport 13.10.2005 19:30
FH tapaði í Azerbadjan FH-ingar töpuðu fyrir Neftchi frá Azerbadjan 2-0 í 1.umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu en leikurinn fór fram í Baku í Azerbadjan. Sport 13.10.2005 19:30