Kompás
9 10 11 12 13 14 15 16 17 … 17 ›
Yfirlýsing frá Kompási Í kjölfar sýningu Kompásþáttarins í gærkvöldi sendi Einar Gautur Steingrímsson hrl, lögmaður Róberts Árna Hreiðarssonar, hdl fréttatilkynningu í dag þar sem gerðar eru athugasemdir við umfjöllun þáttarins. Kompás hefur svarað fréttatilkynningunni en yfirlýsingin frá Kompási er eftirfarandi: Stöð 2 19.9.2007 16:23
Vargur í véum Gott kvöld og velkomin í fyrsta Kompásþátt vetrarins sem héðan í frá verður á dagskrá á þriðjudagskvöldum. Kompás hefur á síðustu tveimur árum fjallað mikið um barnaníðinga og meðal annars notað tálbeitu til að sýna áhuga fullorðinna karlmanna á kynferðislegum kynnum við þrettán ára stúlku. Í kvöld veltum við upp áleitnum spurningum sem varða lögmann sem ákærður er fyrir alvarleg kynferðisbrot gegn unglingsstúlkum; á sama tíma og hann er verjandi barnaníðinga. Við segjum frá ákæruatriðum málsins og leitum svara í kerfinu. Stöð 2 19.9.2007 11:26
Verndaðir valdsmenn Flestir viðmælendur Kompáss eru sammála um að það sé siðferðislega óverjandi að maður sem sætir rannsókn og síðar ákæru vegna kynferðisbrota gegn unglingsstúlkum geti á þeim tíma tekið að sér að verja aðra menn sem sakaðir eru um hliðstæð kynferðisbrot. Þrátt fyrir vanþóknun á því geta menn illa bent á nein úrræði. Þetta er þó staða sem ekki er bundin við lögmannastétttina, að mati talsmanns Stígamóta. Þetta sé hluti af vanda sem snúi almennt að níðingum í valda- og áhrifastöðum. Stöð 2 19.9.2007 10:58
Dómsuppkvaðning 26. september Dómur í máli Róberts Árna Hreiðarssonar verður kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur þann 26. september næstkomandi. Eins og áður þegar við höfum fjallað um kynferðisbrot gegn börnum og unglingum þá viljum við benda fórnarlömbum kynferðisbrota á, að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000 eða Stígamót í síma 562-6868. Stöð 2 19.9.2007 10:10
Ver barnaníðinga en sætir ákæru sjálfur um kynferðisafbrot Lögmaður sem er ákærður um kynferðisafbrot gegn fjórum unglingsstúlkum hefur tekið að sér að verja meinta barnaníðinga þótt hann sæti sjálfur rannsókn vegna meintra kynferðisafbrota. Stöð 2 19.9.2007 10:03
Kompás 18. september Fyrsti Kompásþáttur vetrarins verður sýndur næstkomandi þriðjudag klukkan 21:45 sem verður fastur sýningartími þáttarins í vetur. Í þessum fyrsta þætti beinum við sjónum okkar að málum manns sem er ákærður fyrir alvarleg kynferðisbrot gagnvart unglingsstúlkum. Hægt er að nálgast stiklu þáttarins hér til hliðar. Stöð 2 14.9.2007 15:46
Sérfræðiálit Aquasel Agé grisjur sem notaðar voru á andlit Astridar á aldrei að nota á andlit. Þetta segir danskur læknir sem Kompás hafði samband við vegna þessa máls. Samkvæmt upplýsingum frá landlæknisembættinu starfa 8 lýtalæknar á Íslandi. Kompás hafði samband við 5 þeirra og neituðu þeir allir að skoða og eða gefa álit sitt á meðferð Astridar. Stöð 2 19.5.2007 13:27
Djúp ör Við kynnumst ungri stúlku sem fyrir tveimur árum brenndist illa í andliti og á höndum. Foreldrar stúlkunnar hafa kært meðferð stúlkunnar til lögreglu en þeir halda segja að læknamistök hafi leitt til þess að stúlkan verður aldrei söm á ný. Við heyrum sögu stúlkunnar og aðstandenda hennar, fáum sérfræðing til að leggja mat á meðferð stúlkunnar og rýnum í sjúkraskýrslur hennar. Til að áhorfendur fái sem gleggsta mynd af því sem gerðist sýnum við mydnir sem teknar voru á þessum tíma. Við vörum við þessum myndum þar en þær gætu valdið óhug. Stöð 2 19.5.2007 13:26
Svindlið í kvótakerfinu Við flettum ofan af kvótakerfinu og svindli í sjávarútveginum. Í þessu flókna kerfi viðgengst umfangsmikið svindl sem teygir anga sína allt frá bátnum sem veiðir fiskinn til fyrirtækja sem selja fiskinn úr landi. Í þættinum leggjum við fram gögn, vitnum til ábyrgra heimildarmanna og ræðum við menn sem allir staðfesta svindlið. Við sýnum ykkur semsagt hvernig svindlað er á kerfinu. Stöð 2 6.5.2007 13:06
Áleitnar spurningar Einn megin grunnur að fiskveiðiráðgjöf Hafró eru tölur um landaðan afla. Ef tölurnar eru kolrangar hlýtur ráðgjöfin að vera röng. Hafró tekur ekkert tillit til svika í landi og telur brottkast hafa lítil sem engin áhrif á stofnmælingu. Þó að sjómenn gagnrýni Fiskistofu harðlega fyrir slælegt eftirlit stekkur sjávarútvegsráðherra henni til varnar. Ráðherrann og Fiskistofa standa á því fastari fótunum að allt tal um stórfellt svik uppá þúsundir tonna og milljarða verðmæti, séu óstaðfestar ýkjusögur. Stöð 2 16.9.2008 14:45
Færeyska reynslan Fjölbreytileg svik og brottkast í kvótakerfi er ekki séríslenskt fyrirbæri. Færeyingar hafa reynslu af þessu úr sinni sögu þó að færeyska kvótakerfið hafi staðið stutt við eða einungis í tvö ár. Færeyingar gáfust upp á kvótakerfinu og köstuðu því fyrir róða, töldu það liðónýtt og spillt. Stöð 2 16.9.2008 14:44
Ill meðferð Ill meðferð á dýrum varða við lög en óheimilt er að hrekkja eða meiða dýr. Í fyrsta hluta þáttarins sjáum við óhugnanlegar myndir af tamningarmanni sem lemur hest. Við könnum hvort um hefðbundnar tamningaraðferðir sé að ræða eða einangrað tilvik. Stöð 2 27.4.2007 12:55
Pader Tuttugu ár eru síðan Joseph Kony og menn hans í hinum svonefnda frelsisher Drottins hófu skæruhernað sinn gegn stjórnarher Úganda. Verndin var hins vegar fljót að snúast upp í andhverfu sína. Kompás heimsótti átakasvæðin í Úganda þaðan sem óhugnanlegar sögur hafa borist af illvirkjum svokallaðs Frelsishers Drottinns. Stöð 2 27.4.2007 12:54
Hjálpin berst Við förum aftur til Mongólíu með MND félaginu þar sem fyrir nokkrum dögum var tekið á móti gámi fullum af hjálpartækjum sem er gjöf félagsins til MND sjúklinga í Mongólíu. Aðbúnaður MND sjúklinga í Mongólíu er afar slæmur. Stöð 2 27.4.2007 12:52
Er verið að misþyrma hestinum þínum? Er verið að misþyrma hestinum þínum? Kompás komst yfir óhugnanlegar myndir af tamningarmanni sem lemur hest. Teljast þetta hefðbundar tammingaraðferðir - eða eru um einangrað tilvik að ræða? Stöð 2 27.4.2007 13:03
Hetja í Kenýa Í þessum þætti kynnumst við konu sem á ósköp vengulegum degi fyrir þremur árum fór á bensínstöð í Grafarvogi og tók með sér bækling. Sú heimsókn var vendipunktur og nú býr hún í Kenýa. Við kynnumst lífi hennar í fátækrahverfum Nairóbí og einstöku starfi ABC. Stöð 2 25.4.2007 09:18
Erfitt val Það kostar ekki nema 3000 krónur á mánuði að framfleyta barni í Kenýa. Fyrir þá upphæð er hægt að kaupa mat, lyf, föt og borga skólagjöld fyrir eitt barn. Það hlítur að vera góð tilfinning að hjálpa barni á þennan hátt en það er ekki hægt að hjálpa öllum. Erfiðast er að velja hverjum skuli hjálpa. Stöð 2 18.9.2008 10:18
Kúba - Kópavogur Tinna og Yandi kynntust á Kúbu og ástin tók völdin. Þau þrá ekkert heitar en að stofna heimili og vera saman en íslensk lög og reglugerðir gera þeim erfitt fyrir þar sem hann fær ekki framlengingu dvalarleyfis. Verður unga parinu stíað í sundur? Kompás fylgdist með ástarsögu án landamæra. Stöð 2 16.4.2007 11:15
Lög og reglur Hvaða reglur gilda um það hverjir fá að setjast hér að og hverjir ekki? Skiptir máli frá hvaða landi fólk kemur eða getur hver sem er sest hér að? Við kynntum okkur reglurnar og lögin sem farið er eftir. Stöð 2 16.4.2007 11:12
Blind ást Eftir að reglunum um Evrópska efnahagssvæðið var breytt í fyrra þá er erfiðara fyrir íbúa utan þess svæðis að fá dvalarleyfi hér á landi. Við heyrum nú frásögn konu frá Höfn í Hornafirði sem segir fyrrverandi mann sinn hafa notað sig til að fá íslenskan ríkisborgararétt. Skömmu eftir að hann varð íslenskur ríkisborgari breyttist hegðun hans það mikið að skilnaður var óumflýjanlegur Stöð 2 16.4.2007 11:11
Hjálpartæki til Mongólíu Lítil hugmynd sem kviknaði hjá íslendingi í Japan, varð að stórverkefni í Mongólíu. Fjörtíu feta gámur fullur af hjálpartækjum fyrir MND veika var sendur til þessa stóra lands í austri. Kompás var með í för og kynntist heilbrigðiskerfinu, götubörnum sem lifa í ræsunum og fátækrahverfum í útjaðri höfuðborgarinnar. Stöð 2 3.4.2007 17:02
Götubörnin og gerhverfin Rúm fimmtán ár eru síðan Sovétríkin liðu undir lok og árið 1992 var komið á þingræði í Mongólíu. Landið hefur verið að þróast í átt til markaðshagkerfis, en fátæktin er þar mikil. Í köldustu höfuðborg heims getur lífið orðið erfitt hjá mörgum. Stöð 2 3.4.2007 16:59
Kompás 1. apríl 2007 Kompás hefur þegar vakið mikla athygli, ekki einasta fyrir djarft og glöggt efnisval heldur ekki síður fyrir vönduð efnistök. Hér er á ferðinni alvörufréttaskýringaþáttur þar sem hispurslaus og vönduð rannsóknarblaðamennska er í hávegum höfð. Ef þú hefur áhuga á að vita hvað verður í þættinum næsta sunnudag, 1. apríl 2007 þá má nálgast stiklu þáttarins hér. Stöð 2 28.3.2007 15:09
Kaldrifjað morð Íslendingar eru sjaldan fórnarlömb skipulagra morða. Gísli Þorkelsson var myrtur á hrottafenginn hátt í Suður Afríku sumarið 2005, af manni sem Gísli taldi vin sinn. Lík hans fannst steypt í ruslatunnu sex vikum seinna. Réttarhöldin yfir morðingjunum standa nú yfir í Jóhannesarborg. Stöð 2 23.3.2007 16:28
Bloodgroup Þau eru fjögur, tveir bræður, systir þeirra og kærasti hennar. Saman skipa þau hljómsveitina Bloodgroup. Tvö þeirra búa á Egilsstöðum, eitt í Reykjavík og eitt í Færeyjum. Þrátt fyrir það hafa þau spilað saman í tæpt ár og vakið athygli fyrir skemmtilega sviðsframkomu og hressandi raftónlist. Stöð 2 23.3.2007 10:59
Kompás sunnudaginn 25. mars Á sunnudagskvöld eru tvö mál á dagskrá Kompáss. Íslendingar eru sjaldan fórnarlömb skipulagra morða. Gísli Þorkelsson var myrtur á hrottafenginn hátt í Suður Afríku sumarið 2005, af manni sem Gísli taldi vin sinn. Kompás fylgdist með réttarhöldunum yfir morðingjum Gísla í Jóhannesarborg. Stöð 2 23.3.2007 16:00
Barist um atkvæðin Það er hart barist um atkvæði Hafnfirðinga sem ganga að kjörborðinu 31. mars. Í þeim kosningum á að ákveða hvort álver Alcan í Straumsvík verði stækkað. Þær upplýsingar sem Hafnfirðingar hafa til að styðjast við eru þó æði misvísandi, hvort sem um er að ræða tölur um mengun eða fjárhagslegan ávinning. Óhjákvæmilegur fylgisfiskur álvinnslu er að til verður verðurl koltvísýringur, flúorkolefni og brennisteinsdíoxíð. Brennisteinsdíoxíð er ekki hreinsað í álverinu, en forsvarsmenn álversins fullyrða að engin hætta sé á því að börn eða fullorðnir í nágrenninu bíði heilsutjón vegna starfseminnar þótt tugþúsundum tonna af brennisteinsdíoxíði sé blásið út í andrúmsloftið. Stöð 2 9.3.2007 16:06
Starfsfólkið Starfsmenn hjá Alcan á Íslandi eru nú um 470. Áætlað er að stækkun álversins skapi í allt 1200 ný og varanleg störf, um 350 bein störf hjá fyrirtækinu og ríflega tvöfalt fleiri afleidd störf vegna aukinna umsvifa. Þetta er án efa staðreynd sem kjósendur munu hafa í huga þegar gengið er að kjörborðinu. Það vekur hins vegar athygli að starfsmannamál álversins hafa verið áberandi í fjölmiðlum undanfarin misseri, aðallega í tengslum við uppsagnir. Stöð 2 9.3.2007 15:59
Á að stækka? Stækkun álversins í Straumsvík hefur verið á teikniborðinu í fjölda ára . Athygli vekur að fyrrverandi forstjóri álversisns fór fram á það við bæjaryfirvöld í Hafnarfirði að ný íbúabyggð myndi ekki rísa nær álverinu. Það gerði hann árið 1995, eða fyrir einum tólf árum. Stöð 2 9.3.2007 14:11
Athugasemdum við Kompásumfjöllun svarað Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, sendi nýverið ritstjórn fréttaskýringaþáttarins Kompás bréf þar sem gerðar voru athugasemdir við umfjöllun Kristins Hrafnssonar fréttamanns, í þættinum um trúarlíf Íslendinga. Ritstórn þáttarins sendi biskupi í dag greinagerð frá Kristni þar sem öllum athugasemdum biskups er svarað. Stöð 2 7.3.2007 17:51