Bakgarðshlaup

Fréttamynd

„Þess vegna hafði ég mjög miklar á­hyggjur fyrir þetta hlaup“

„Hún er líklega best í því að komast í gegnum verki og þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup,“ segir Njörður Lúðvíksson, unnusti Mari Järsk, sem styður við sína konu í Elliðaárdalnum á HM í bakgarðshlaupi. Mari fæddi þeirra fyrsta son í ágúst síðastliðnum.

Sport
Fréttamynd

Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu

Það er ekki að sjá á hlaupadrottningunni Mari Jaersk að hún sé á leið heim úr landsliðskeppni í Bakgarðshlaupum á næstunni. Hún nýtir hverja einustu sekúndu milli hringja til hins ítrasta.

Sport
Fréttamynd

Tár féllu í Bakgarðshlaupinu

Gleðitár féllu er ein af dætrum Ís­lands­met­hafans í Bak­garðs­hlaupum, Þor­leifs Þor­leifs­sonar, mætti óvænt til landsins til þess að styðja við bakið á pabba sínum í lands­liðs­keppni sem nú stendur yfir í Elliðaár­dalnum.

Sport
Fréttamynd

Bein út­sending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi

Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi fer fram um helgina í Elliðarárdalnum. Fimmtán hlauparar hlupu af stað í hádeginu á laugardag og stefna á að hlaupa eins lengi og líkaminn leyfir. Vísir er í beinni útsendingu og vakt frá hlaupinu.

Sport
Fréttamynd

„Gríðar­lega særandi að hlusta á þetta“

Þorleifur Þorleifsson, Íslandsmethafi í bakgarðshlaupi, kveðst afar sár yfir umræðu þess efnis að honum sé svo annt um Íslandsmet sitt að hann myndi viljandi hætta keppni fyrr en ella til þess að verja metið sitt.

Sport
Fréttamynd

Átti aldrei að geta hlaupið aftur en vann Bak­garðinn

Kristján Karl Björnsson fagnaði sigri í Bakgarðshlaupinu í Heiðmörk þar síðustu helgi eftir að hafa hlaupið látlaust í 39 klukkustundir og farið rúmlega 261 kílómetra. Hann þakkar fyrir hvern þann kílómetra sem hann getur hlaupið þar sem hann átti aldrei að geta hlaupið aftur eftir slys í æsku.

Sport
Fréttamynd

Ís­lenska lands­liðið í bakgarðshlaupum klárt

Íslenska landsliðið í bakgarðshlaupum hefur verið valið fyrir HM sem fer fram í næsta mánuði. Íslandsmethafinn Þorleifur Þorleifsson er í liðinu og einnig er þar að finna hlaupadrottninguna Mari Järsk.

Sport