Þorvaldur Gylfason

Röng viðbrögð
Frestur ríkisstjórnarinnar til að bregðast við úrskurði mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna um fiskveiðistjórnarkerfið er liðinn.

Svanasöngur í móa
Síðasta Reykjavíkurbréf Styrmis Gunnarssonar, fráfarandi ritstjóra Morgunblaðsins, fjallar um símahleranir Sjálfstæðisflokksins 1949-68 og viðbrögð fórnarlamba hlerananna.

Eftirlegukindur
Margir virðast líta svo á, að innganga Íslands í ESB þurfi að bíða þess, að Sjálfstæðisflokkurinn sjái sig um hönd. Þessi skoðun hvílir á þeirri hugsun, að Sjálfstæðisflokkurinn hafi haft stjórnarforustu fyrir þjóðinni nær allan lýðveldistímann og hann einn geti leitt Ísland inn í ESB líkt og hann leiddi Ísland inn í Nató á sínum tíma.

Stórt lán? Til hvers?
Efnahagsástandið er í ólestri eina ferðina enn. Verðbólgan æðir áfram, þótt ríkisstjórnin hafi sett sér það höfuðmarkmið að halda henni í skefjum. Bankar og ýmis fyrirtæki segja upp fólki í stórum stíl. Skuldir þjóðarinnar hanga á bláþræði yfir höfði hennar, erlendar skuldir jafnt sem innlendar.


Náttúruauður Noregs
Norskum börnum er kennt, að Noregur hafi verið fátækastur Evrópulanda 1905, þegar Norðmenn slitu konungssambandinu við Svíþjóð og tóku sér fullt sjálfstæði. Það er þó ekki alveg rétt, því að til dæmis Finnar og Íslendingar bjuggu þá við krappari kjör en Norðmenn.

Á þunnum ís?
Snögg innsýn í stjórnmálasöguna getur varpað ljósi á nýliðna atburði og sviptingar í efnahagslífi á Íslandi. Áratugum saman eftir að Framsóknarflokkurinn náði völdum á Íslandi 1927 með þriðjung kjósenda á bak við sig var landið reyrt í viðjar hafta umfram flest eða öll önnur ríki Vestur-Evrópu nema kannski Írland.

Hrói Höttur fengi flog
Mörg undangengin ár hef ég hér og víðar vakið máls á auknum ójöfnuði í skiptingu auðs og tekna á Íslandi, og það hafa aðrir einnig gert, þar á meðal Guðmundur Örn Jónsson verkfræðingur og Stefán Ólafsson prófessor.

Glæpagengiskenningin
Gengi gjaldmiðla sveiflast upp og niður á gjaldeyrismörkuðum. Til þess liggja tvær höfuðástæður.

Rjúkandi ráð
Sumir halda, að gengisfall krónunnar frá áramótum muni ganga til baka, kannski alla leið.

Þegar gengið fellur
Nálægar þjóðir nefna það skiptahlutfall sem við köllum gengi. Bæði orðin lýsa því, hversu mikið af innlendri mynt þarf til að greiða fyrir erlendan gjaldeyri, til dæmis hversu margar krónur fyrir einn dollara eða eina evru.

Fresturinn er hálfnaður
Mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna felldi þann úrskurð og kunngerði um miðjan desember 2007, að kvótakerfið íslenzka brjóti í bága við Mannréttindasáttmála SÞ.

Seðlabanki í sjálfheldu
Hagstjórnarmistök undangenginna ára blasa nú við landsmönnum. Fyrst birtist Jón Ásgeir Jóhannesson, einn helzti eigandi Glitnis, og varar við því í sjónvarpi og útvarpi, að vandamál viðskiptabankanna séu vandamál þjóðarinnar allrar og hvetur Seðlabankann til að lækka vexti og hleypa verðbólgunni aftur á skrið.

Drottning á fóðrum
Hagskyn er eins og húmor og matarlyst: fólk fær mismikið í forgjöf eins og gengur. Sumir hafa næmt hagskyn án þess að hafa nokkurn tímann lært hagfræði.

Heimur laganna
Öllum þykir okkur sjálfsagt, að læknar og hjúkrunarfólk láti sér annt um líðan fólks og heilsufar. Það stendur læknum nær en öðrum að leggjast gegn reykingum og öðrum heilsufarsógnum.

Löglaust og siðlaust
Árin í kringum 1970 vöktu hagfræðingar og aðrir máls á nauðsyn þess að hafa stjórn á fiskveiðum við Ísland, þar eð fiskstofnar þyldu ekki lengur frjálsa sókn á miðin. Lagt var til, að veiðum væri stjórnað með gjaldheimtu, þannig að útgerðir greiddu ríkinu fyrir aðgang að fiskimiðunum. Takmarkaður aðgangur hlaut að kalla á aðgangseyri, veiðigjald.

Málið er ekki dautt
Noregur hefur tvisvar fengið athugasemdir frá Mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna og brást við þeim í bæði skiptin með fullnægjandi hætti að dómi nefndarinnar.

Dvínandi afli í Evrópu
Evrópusambandið var í öndverðu reist á þeirri snjöllu hugmynd, að millilandaátök um náttúruauðlindir, einkum kol og stál, hefðu haft svo hörmulegar afleiðingar í álfunni, þar á meðal þrjár styrjaldir á sjötíu árum, að nauðsyn bæri til að færa þessar auðlindir undir sameiginlega yfirstjórn til að koma í veg fyrir frekari stríðsátök í Evrópu.

Framsókn bankanna
Bankar eiga að vera gróðafyrirtæki, ekki félagsmálastofnanir. Þess vegna voru ríkisbankarnir og fjárfestingarsjóðir ríkisins færðir í einkaeigu eins og gert hafði verið víða annars staðar, svo sem í Austur-Evrópu.

Afturhvarf til ójafnaðar
Menn ganga mislangt. Einn helzti talsmaður kvótakerfisins hefur sagt í mín eyru, að ókeypis úthlutun aflakvóta síðan 1984 sé ekkert til að gera veður út af, því að sumir hafa heppnina með sér.

Seðlabanki í öngstræti
Seðlabanki Íslands hefur sætt harðri gagnrýni mörg undangengin ár. Hvernig ætti annað að vera?

Láglaunabasl í skólum
Fyrir nokkrum árum birti bandaríska vikuritið NewsWeek frásögn af tveim unglingsstelpum í Grindavík. Þær ætluðu að ganga menntaveginn og koma sér burt úr plássinu og báru því við, að þar væri ekki nógu mikið við að vera, allra sízt strákarnir, því að þeir gætu ekki fest hugann við neitt nema fisk.

Samkeppni minnkar vaxtamun
Þjónusta er mikilvægasti atvinnuvegur heims. Hefjum söguna 1971. Þá stóð þjónusta á bak við tæpan helming landsframleiðslunnar hér heima á móti röskum 60 prósentum í Bandaríkjunum.

Munkar og skunkar
Ríkisstjórnir Norður-Kóreu og Kúbu eiga sitthvað sameiginlegt, þar á meðal þetta: önnur hefur hangið við völd með ofbeldi um margra áratuga skeið og ríghaldið fólkinu í ólýsanlegri fátækt fyrir velvild Kínverja, hin fyrir óvild Bandaríkjastjórnar.

Er ballið að byrja?
Hingað til lands kom um daginn maður að nafni Manuel Hinds, hagfræðingur og fyrrum fjármálaráðherra El Salvadors. Málflutningur Hinds vakti athygli víða um heim árin eftir 1990, þar eð hann varð einna fyrstur hagfræðinga til að brjóta hrun Sovétríkjanna til mergjar og lýsa því með þungum rökum, að áætlunarbúskaparlag Sovétríkjanna og leppríkja þeirra í Austur-Evrópu hlaut að bera dauðann í sér.

Herör gegn okri
Samkeppnislögum er ætlað að torvelda fyrirtækjum að okra á almenningi. Viðskiptaháttalag, sem tíðkaðist á Íslandi um langt árabil, til dæmis í bönkum og olíufélögum, og var þá löglegt, varðar nú við lög. Svo er Evrópu fyrir að þakka.

Við bjargbrúnina
Hagstjórnarstefna ríkisstjórnarinnar og Seðlabankans hefur haldizt óbreytt nú í nokkur ár að sögn þeirra sjálfra. Hagstjórnarviðleitni þeirra hvílir á tveim meginforsendum. Ríkisstjórnin hefur í fyrsta lagi kappkostað að halda ríkisbúskapnum í þröngum skilningi nokkurn veginn hallalausum og greiða niður erlendar skuldir ríkisins.

Bankaskjálfti í Ameríku
Atkvæðisréttur í þingkosningum var í öndverðu bundinn við eignir manna og fór sums staðar eftir fjölda glugga á húsum þeirra. Hugsunin var þá sú, að eignamönnum einum væri treystandi fyrir stjórnmálum. Framsókn lýðræðisins í okkar heimshluta rauf þessi tengsl milli lýðréttar og auðs með því að veita eignaleysingjum atkvæðisrétt og önnur réttindi til jafns við auðmenn.

Smápústrar í miðbænum
Aðalvarðstjóri lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hafði þetta að segja í viðtali við DV 30. júlí: „Smápústrar sem þessir eru mjög algengir í miðbænum. ... Í dag linna menn ekki látum fyrr en fórnarlambið er annaðhvort meðvitundarlaust eða verulega illa farið.“

Fortíðin er geymd
Suður-Afríka ein stendur á bak við meira en þriðjung allrar framleiðslu Afríkulanda sunnan Saharaeyðimerkurinnar. Hlutfallið hefur haldizt stöðugt síðan 1960, en það hefur þó farið heldur lækkandi síðan 1985.