Stj.mál

Fréttamynd

Lífstíðarfangelsi komi til greina

Bjarni Benediktsson alþingismaður, sem ekki hefur viljað samþykkja frumvarp um afnám fyrningar kynferðisbrota óbreytt, segir aðra leið mögulega, það er að breyta refsiramma þannig að alvarlegustu brotin varði lífstíðarfangelsi.

Innlent
Fréttamynd

Ríkið auki skatta með olíugjaldi

Ríkið er að auka skattheimtu með nýju olíugjaldi fyrsta júlí, segir Kristján L. Möller alþingismaður. Hann segir virðisaukaskatt og fleira leggjast ofan á eldsneytisverð, gjöld sem ekki renna til vegamála. Kristján segir allan hvata fyrir fólk að fá sér sparneytna og umhverfisvæna dísilbíla horfinn.

Innlent
Fréttamynd

Stjórnin næði ekki meirihluta

Samkvæmt nýrri könnun Fréttablaðsins myndu ríkisstjórnarflokkarnir fá 29 þingmenn af 63 ef boðað yrði til kosninga nú. Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur bæta aðeins við sig frá síðustu könnun.

Innlent
Fréttamynd

Vantalið í svari utanríkisráðherra

Eiríkur Bergmann Einarsson sérfræðingur í Evrópusambandsmálum segir að upplýsingar utanríkisráðherra um samþykkt Evrópusambandsgerða hér á landi séu villandi. Í svari ráðherrans við fyrirspurn Sigurðar Kára Kristjánssonar Sjálfstæðisflokki kom fram að undanfarinn áratug hafi 2527 Evrópusambandsgerðir verið teknar upp í EES samninginn eða aðeins um sex og hálft prósent af heildarfjölda ESB gerða á sama tímabili

Innlent
Fréttamynd

Annað en fyrningarafnám mögulegt

Bjarni Benediktsson alþingismaður sem ekki hefur viljað samþykkja frumvarp um afnám fyrningar kynferðisbrota óbreytt, segir aðra leið mögulega, það er að breyta refsiramma þannig að alvarlegustu brotin varði lífstíðarfangelsi.

Innlent
Fréttamynd

Geta útskrifast án samræmds prófs

Menntamálaráðherra hefur breytt reglugerð tímabundið um samræmd stúdentspróf þannig að nemendur geti útskrifast stúdentar í vor án þess að hafa þreytt samræmd próf. Nemendur sem tóku samræmdu prófin eru ekki ánægðir með lausn ráðherrans.

Innlent
Fréttamynd

53% meðlagsgreiðenda í vanskilum

53 prósent meðlagsgreiðenda eru í vanskilum við Innheimtustofnun sveitarfélaga og skulda samtals yfir 13 milljarða króna í meðlög og dráttarvexti. Þetta kom fram í svari félagsmálaráðherra á Alþingi í dag.

Innlent
Fréttamynd

Grikkir noti aðeins nafnið fetaost

Lögfræðilegur ráðgjafi við Evrópudómstólinn hefur lagt það til að Grikkir fái einir að kalla fetaost því nafni og hvetur dómstólinn til þess að vísa frá málum Dana og Þjóðverja sem einnig vilja nota heitið á sína framleiðslu.

Erlent
Fréttamynd

10 milljarða króna vanskil

Foreldrar sem greiða meðlög með börnum sínum voru á þrettánda þúsund um síðustu áramót. Meira en helmingur þeirra var þá í vanskilum við Innheimtustofnun sveitarfélaga, liðlega 53 prósent. Þetta kom fram í svari Árna Magnússonar félagsmálaráðherra við fyrirspurn Helga Hjörvar og fleiri Samfylkingarþingmanna á alþingi í gær.

Innlent
Fréttamynd

Frumvarpi um RÚV frestað

Stjórnarfrumvarp um Ríkisútvarpið verður saltað, sem og vatnalög, með samkomulagi sem stjórn og stjórnarandstaða á Alþingi náðu í dag um lok þingstarfa.

Innlent
Fréttamynd

Strætó líklega frá Kirkjusandi

Starfsemi Strætó bs. mun að öllum líkindum flytja af Kirkjusandslóð á þessu ári og lóðin verða seld. Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri segir lóðina vera eina þá bestu í bænum og að verðið verði eftir því. Starfsemi Strætó bs. hefur verið fundin ný lóð.

Innlent
Fréttamynd

Hissa á viðkvæmni barnageðlækna

Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra er hissa á því hversu viðkvæmir barnageðlæknar eru fyrir umræðu um þá miklu aukningu sem orðið hefur á notkun barna á ofvirknilyfjum.

Innlent
Fréttamynd

Meirihluti á móti göngum

"Ég verð að viðurkenna að það kemur mér á óvart að það skuli vera svona mikill munur á jákvæðri og neikvæðri afstöðu manna," segir Sturla Böðvarsson samgönguráðherra, þegar niðurstöður úr nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins um Héðinsfjarðargöng voru borin undir ráðherrann.

Innlent
Fréttamynd

Þinglok á miðvikudag?

Óvíst er hvort þinglok verði á miðvikudaginn eins og gert hefur verið ráð fyrir því mörg stór og umdeild mál bíða enn afgreiðslu Alþingis. Samkvæmt starfsáætlun eiga þingmenn að fara í frí á miðvikudaginn eftir eldhúsdagsumræður. Í morgun hefur verið tekist á um samkeppnislög sem stjórnarandstæðingar telja veikja eftirlit með samkeppni hér á landi.

Innlent
Fréttamynd

Lög um RÚV og vatnalög í salt

Frumvarp ríkisstjórnarinnar um Ríkisútvarpið og vatnalög verða sett í salt samkvæmt samkomlagi sem náðist nú fyrir nokkrum mínútum milli stjórnar og stjórnarandstöðu um lok þingstarfa. Þetta þýðir að önnur stjórnarfrumvörp munu renna í gegn, þar á meðal samkeppnislög og samgönguáætlun, en gert er ráð fyrir að Alþingi fari í sumarfrí á miðvikudag.

Innlent
Fréttamynd

Olíugjaldi mótmælt í dag

Fyrirhuguðu olíugjaldi verður mótmælt í Reykjavík í dag, en 1. júlí verður það hækkað þannig að verð á díselolíu hækkar verulega. Það eru ferðaklúbburinn 4X4, Félag hópferðaleyfishafa, Landssamband sendibílstjóra, Frami, stéttarfélag leigubílstjóra og Bifreiðastjórafélagið Átak sem standa fyrir mótmælunum.

Innlent
Fréttamynd

Fáir hlynntir Héðinsfjarðagöngum

Mikill meirihluti er á móti því að ráðist verði í gerð Héðinsfjarðarganga eins og samgönguáætlun Sturla Böðvarssonar gerir ráð fyrir samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins. Eru alls tæp 70 prósent þeirra sem afstöðu tóku á móti framkvæmdinni en aðeins rétt rúm 30 prósent fylgjandi.

Innlent
Fréttamynd

Mótmæltu háu olíugjaldi

Eigendur dísilbíla flautuðu fyrir utan Alþingishúsið nú síðdegis til að mótmæla háu olíugjaldi. FÍB furðar sig hins vegar á mótmælunum.

Innlent
Fréttamynd

Markmið náist ekki vegna olíuverðs

Háu dísilolíuverði verður mótmælt formlega í dag með hópakstri frá Holtagörðum að Alþingi. Þeir sem að mótmælunum standa segja markmið nýrra laga um dísilolíu ekki nást með þeim leiðum sem ríkisstjórnin vill fara.

Innlent
Fréttamynd

Geislavirkur leki í Sellafield

Í ljós hefur komið að um 20 tonn af stórhættulegri blöndu geislavirkra efna hafa lekið úr hriplekum pípum í Sellafield, kjarnorkuendurvinnslustöðinni í Bretlandi.

Erlent
Fréttamynd

Afhentu ráðherra áskorun

Stjórn og aðalfundur Ferðafélagsins 4x4, Landsamband sendibílstjóra, Frami, félag leigubílstjóra, Félag hópferðaleyfishafa og bifreiðastjórafélagið Átak afhentu Geir H. Haarde fjármálaráðherra áskorun við Alþingishúsið í dag vegna gjalds sem lagt verður á dísilolíu 1. júní næstkomandi. Félögin stóðu fyrir hópakstri frá Holtagörðum niður í bæ vegna þessa.

Innlent
Fréttamynd

Annir á þingi í dag

Fjörtíu og þrjú mál eru á dagskrá Alþingis í dag, en fundur hefst nú klukkan hálfellefu. Stefnt er að því að þingstörfum ljúki á miðvikudaginn, 11. maí, en ekki er víst að það takist. Sum málanna sem taka á fyrir á þingi í dag eru umdeild og má þar nefna samkeppnislög, vatnalög auk laga um Ríkisútvarpið, fjarskiptalög og vegalög.

Innlent
Fréttamynd

Aðeins 6,5% gerða í íslensk lög

Aðeins 6,5 prósent af tilskipunum og öðrum gerðum Evrópusambandsins hafa verið tekin inn í íslensk lög. Andstæðingar Evrópusambandsaðildar á Alþingi segja þessar upplýsingar afhjúpa þá blekkingu að Íslendingar þyrftu með EES-samningnum að innleiða 80 prósent af reglugerðaverki Evrópusambandsins.

Innlent
Fréttamynd

Tannlæknar styðja reykingabann

Tannlæknafélag Íslands hefur sent frá sér á ályktun þar sem félagið lýsir yfir fullum stuðningi við breytingar á lögum um tóbaksvarnir þar sem m.a. er kveðið á um reykingabann á veitinga- og skemmtistöðum. Telur Tannlæknafélagið að umrætt frumvarp sé í fullu samræmi við markmið félagsins að stuðla að bættri tannheilsu landsmanna.

Innlent
Fréttamynd

Veltur framtíð Blairs á ESB?

Evrópumálin verða líklega stærsta verkefni Tonys Blairs, forsætisráðherra Bretlands, á þriðja kjörtímabili hans. Takist honum ekki að fá bresku þjóðina til að samþykkja nýja stjórnarskrá Evrópusambandsins kann það að binda enda á pólitískan feril hans.

Erlent
Fréttamynd

Samflokksmenn Blairs vilja afsögn

Þingmenn og aðrar áhrifamenn innan breska Verkamannaflokksins skora á Tony Blair forsætisráðherra að láta af embætti áður en þriðja kjörtímabil hans er á enda.

Erlent
Fréttamynd

Mjótt á mununum í formannskjöri

Ný skoðanakönnun Fréttablaðsins sýnir að lítill munur er á fylgi þeirra Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur og Össurar Skarphéðinssonar þegar litið er til svara stuðningsmanna allra flokka. Kjósendur Samfylkingarinnar virðast þó heldur hallast að Ingibjörgu.

Innlent
Fréttamynd

Tilbúnir í nýjan fjölmiðlaslag

Stjórnarandstæðingar eru tilbúnir að sitja næstu vikur á þingi ef reynt verður að keyra í gegn frumvarp um Ríkisútvarpið án nauðsynlegrar umræðu, segja þeir. Kynntar verða breytingar á frumvarpinu í menntamálanefnd þingsins í dag.

Innlent
Fréttamynd

Samkeppnislögin rædd eftir helgi

Þingmenn ræddu breytingar á samkeppnislögum í allan gærdag þar til þingfundi var slitið um klukkan hálf sjö. Lengstu ræðurnar voru á þriðju klukkustund. Þrettán voru á mælendaskrá þegar fundi lauk og verður því umræðunni haldið áfram á mánudag.

Innlent
Fréttamynd

Ingibjörg með meira fylgi en Össur

Samkvæmt skoðanakönnun sem Fréttablaðið gerði í gæer er lítill munur á fylgi Össurar og Ingibjargar Sólrúnar þegar tekið er mið af öllum svöurm. Össun nýtur hins vegar bara stuðnings um fjórðungs þeirra sem segjast kjósa Samfylkingunna.

Innlent